Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Miðvikudagur 16. mai 1973 Vonandi verð ég tilkvaddur nú þegar. Farðu varlega með fótinn. Vertu sæl, Jana. Hún var að klippa túlipana þegar hann kom, og var með störan vönd á handleggnum. Hún starði ásakandi á þá. Hvernig gat þvi vikið við að þessir ylriku rauðu og gulu litir yrðu allt I einu gráir og liflausir. Eða var það að- eins hún sjálf, sem áa' þá i þessu ljósi? Hún vissi vel hvað hann var að fara jafngreinilega og hann hefði hrópað það I eyra á henni, en hún skildi það ekki. A Bastions áttu sér stað atvik, sem hún aldrei mundi fá skilið, en allt virtist, á einn eða annan hátt vera bundið við herbergi Leu. Þar hafði Simon verið áður en hann kom til hennar út i garðinn. Það var vita árangurslaust að brjóta heilann um þetta, ellegar gera nokkrar ráðstafanir gegn þvi er verða vildi. 24. Sherida og Katrin borðuðu miðdegisverð saman á litlum veitingastaö i Soho siðdegis. Þær höfðu fengið litið borð rétt við glugga og höfðu ágætis útsýni yfir alla ljósadýrðina. Hávaði umferðarinnar náði eyrum þeirra eins og veikur ómur á þessu milda sumarkveldi, en eina truflunin voru blaðadrengirnir, sem hrópuðu flugufregnir kvöld- blaðanna um striðsútlitið. Katrin var i svörtum kvöld- búningi, sem fór henni ágætlega, með litinn hatt á höfðinu, en samt sem áður gat Sherida ekki sagt að hún liti vel út. Það var eins og komin væri yfir hana einhver háleit rósemi, og hún brosti svo oft og mikið, að Sheridu varð á að likja henni við sjúkling i aftur- bata eftir langstæð veikindi. — Hvernig gengur það á Bastions? spurði Katrin. — Ertu ein á ferð? — Nei, majórinn kom méð mér, hann er að fara á ráðstefnu með heimavarnarliðinu. Hann fer heim annað kvöld, en ég mun taka miðdegislestina. Annars héld ég að allt gangi vel á Bastions, að visu eru flestir spenntir vegna styrjaldar- útlitsins, en svo er væntanlega um allt landið. — Já, það er hræðilegt að slikt skuli vofa yfir. Það verður sér- staklega þungbært fyrir Leu, ef fjölskyldan dreifist til ýmislegra skyldustarfa. Logan verður liklega sá sem fyrstur fer. Sherida sagði ekkert, en horfði með nokkurri vanþóknun á Katrinu. — Ég ætla með þér á morgun, Sherida. Áætlanir minar hafa breytzt. Heldurðu að fjölskyldan hafi nokkuð á móti þvi að fyrsta brúðkaupið fari fram fremur viðhafnarlitið? — Brúðkaup? 0, ég er svo glöð Katrin, og það verða allir aðrir lika. Majórinn sagði, að hann vonaði svo innilega að þið settuð ekki styrjaldar-útlitið fyrir ykkur, en hélduð ykkar strik. — Það var ekki aðeins þetta, sem ég meinti. Aðrar aðstæður koma þarna til greina. — Þessar „aðrar aðstæður” eru þinn eiginn hugarburður, Katrin. Það er vist Logan búinn að segja þér oftar en einu sinni, og mér þykir sannarlega vænt um að þú ert farin að hlusta á hann. — Á vissan hátt get ég verið þakklát styrjaldarástandinu, þaö hefur skipt mér i tvo hluta, annar helmingurinn liggur bak við, og hefur enga þýðingu lengur. Það verður gaman að koma heim aftur. Logan veit ekki um það ennþá, ég verð að hringja hann upp þegar við höfum borðað. Logan tók á móti þeim á stöðinni, og Sheridu varð hugsað til þess þegar hún kom i fyrsta sinn til Bastions. Það var álika hvasst þá og nú, og himininn var álika dökkur og ógnandi, en nú vissi hún að hverju hún var að ganga. Það er skritið hvað manni getur þótt vænt um einhvern stað eða heimili, aðeins ef manni feliur vel við manneskjurnar, sem þar eru, hugsaði hún. Það hafði verið heitt og mollulegt i Lundúnum, og henni fannst sem hún væri orðin að nýrri mann- eskju, þar sem hún stóð á járn- brautarstöðinni og andaði að sér svölu, söltu, sjávarloftinu. Katrin hafði verið föl á leiðinni, en hún var ekki fyrr komin á stöðina en að roði kom i kinnarnar og öll taugaveiklun var fokin út I veður og vind. — Þú hefur samt sem áður ekki haft svo mjög mikið að gera i Lundúnum? sagði hann. Hún hristi höfuðið. — Ég hafði yfirleitt ekkert þangað að gera, Logan. Við höfum um annað að hugsa, ef þú hefur þá tima, sagði hún og brosti glettnislega. — Það verða einhver ráð með það. Mér þótti væntum það að þú skyldir ná i Katrinu fyrir mig, Sherida. Hoppið inn. Við ökum fyrst til Bastions, Lea vili gjarnan fá að heilsa þér Katrin. Hann hefur þá sagt Leu frá þvi, sem ég sagöi við hann i simann, hugsaði Katrin. Gott, við höfum brotið allar brýr að baki okkar. Hún andvarpaði léttilega. Teningunum var kastað. Lea sat við arininn þegar þau komu. Hún var i spánýjum kjól, og demantshringirnir leifruðu i hinum blaktandi arinloga. Það var greinilegt að hún vildi sýna að stundin væri hátiðleg. Hún brosti vinsamlega til Katrinar og rétti henni báðar hendurnar. — Velkomin tilbaka.min kæra! Það var ánægjulegt að þú skyldir koma svona fljótt til baka, við vorum orðin hrædd um að þú yrðir lengur burtu en okkur langaði að hugsa til. Það mun hafa verið fortölugáfa Sheridu, sem hefur komið þessu til leiðar. Hún tók við sherryglasi, sem Logan rétti henni. — Þetta er meiri hátiðisdagur en trúlofunar- dagurinn, sagði hún. — Skál fyrir brúðkaupsdeginum, Katrin. Rennur hann fljótlega upp? — Ég held það. Það er litið vit i þviað kasta frá sér-timanum eins og ástatt er. Hún dreypti á vininu og mætti augum Leu — öruggar og stilli- legar en nokkru sinni áður. Siminn hringdi úti i skálanum, og Lea bað Kristínu að svara.Hún kom strax inn aftur. Hún var búin að fá stirðnaða drætti kringum munninn, en andiitið svipbrigða- laust að öðru leyti. — Það var pabbi, hann kemur ekki heim fyrr en á morgun, og þá verður hann að fara beina leið á fund. Hann spurði hvort Sherida gæti mætti honum á stöðinni með skýrslurnar, svo hann þyrfti ekki að koma við heima. Það er að segja ef hún hefur fri. — En ég, byrjaði Sherida að segja, en Lea tók brosandi frammi fyrir henni. — Auðvitað hefur þú fri, Sherida. Ég þarf þin ekki við á morgun, og það er sjálfsagt að þú hjálpir Mallory heldur. Komdu aftur, Katrin þegar þú ert búin að borða, svo við getum talað nánar um brúðkaupið. Ekki svo að skilja að foreldrar brúðgumans hafi mikið að segja i þessu máli, en það ge'tur verið gagnlegt: að tala um það. — Við höfum ekki gert neina áætlun ennþá! Við viljum helzt að brúðkaupið fari viðhafnarlaust fram og aðeins boðið nanustu ættingjum og vinum. Hvernig liður þér i ökklanum, Jana? — Mér er óðum að batna, svaraði Jana, og tæmdi glasið. —• Dr. Fortesoue kemur hingað á morgun og fjarlægir gipsum- búðirnar. — Dr. Fortescue? Katrin leit snöggt til hennar. — Er Simon Crowdy i frii, eða er hann hættur hér? — Að vissu leyti er hann hættur. Hann er farinn til Lundúna til þess að ganga i heilbrigðis- þjónustuna, og gerir ráð fyrir að taka til starfa innan skamms. Við munum öll sakna hans. Jana sagði þetta stillilega og að yfirveguðu máli. Lea setti glasið á borðið svo að small við. — Simon er ákaflegá eirðar- laus, sagði hún i léttum tón. — Hann er upp til handa og fóta af hrifningu einn daginn, en svo er það allt búið að vera þann næsta, og honum fer að leiðast hvað litið sem er að. Mig furðar á þvi hvað hann hefur tollað hér lengi hjá okkur, þvi ég þekki hann talsvert. Okkar'á milli sagt held ég að Sybilla,eða hvað hún nú hét, hafi hlotið að ganga i gegnum sitt af hverju. Mig skyldi ekki undra þó hann hafi skilið við hana sem hverja aðra taugahrúgu. Sé þig seinna, Katrin. Þegar hjónaefnin voru komin inn i bilinn sagði Logan: — Hvað var það sem fékk þig til að skipta um skoðun, Katrin? Var það eitthvað sem Sherida sagði við þig? 1403 Lárétt 1) Konur.-6) Mistak.-8) Aria,- 9) Streð.- 10) Garg,- 11) Hvoftur,- 12) Fótavist,- 13) Maður.- 15) Láni,- Lóðrétt 2) Ýkjanna.- 3) 1001,- 4) Mokafli.- 5) Fáni.- 7) Þátttaka.- 14) Kall.- Ráðning á gátu No. 1402. Lárétt 1) Fálki.- 6) Slæ,- 8) Söl,- 9) Róm,- 10) Ara,- 11) Ask,- 12) Sel,- 13) Unt.- 15) Fráar,- Lóðrétt 2) Aslákur,- 3) LL.- 4) Kærasta.- 5) öslar.- 7) Smali.- 14) Ná,- Bhs r Lff ‘ m’ --enm —;-«- M ■r ■*~ ~m~ n gpTTj m=py Dreki ég heyrði um þig, þegar ég var barn, faðir minn er sólin og móðir mirTl máninn. Ert þú virkilega,, ’ □ \ maður, sem ekki » BXgeturdáið? ■lISlilill i! Miðvikudagur 16. maí Í;í:$í 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir.kl. 7.00, 8.15 og ||| 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 *í$íi (0§ forustugr. dagbl.), 9.00 S:|; og 10.00. Morgunbæn kl. ;ívg 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barn- anna kl. 8.45: Edda Schev- ill; ing heldur áfram að lesa íi;!;!;! söguna „Drengina mina” $i5íi eftir Gustaf af Geijerstam pg (9). Tilkynningar kl. 9.30. !£; Létt lög á milli liða. í;;;;;!;! Sálmalög kl. 10.25. Fréttir £xí kl. 11.00. Morguntónleikar: !;!;!;!;!;: 12.00 Dagskráin. Tónleikar. i*!;! Tilkynningar. i!;!;!;!;!; 12.25 Fréttir og veðurfregnir. m Tilkynningar. :;!;!;!;!;! 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. SS!! 14.30 Siðdegissagan: „Sól !;!;!;!;!; dauðans” eftir Pandelis ;!;!;!;!;! Prevelakis. Þýðandinn, ;!;!;!;!;! Sigurður A. Magnússon les ;!;!;!;!;! 15.00 Miðdegistónleikar: 116.00 Fréttir. £ 16.15 Veðurfregnir. Tilkynn- !;!; ingar. í! 16.25 Popphornið. £17.10 Tónlistarsaga. Atli !;!; Heimir Sveinsson sér um :;!;! þáttinn. !;í 17.40 Tónleikar. !;!; 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. ;!;! Tónleikar. Tilkynningar. £ 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá !;!; kvöldsins. >;! 19. Fréttir. Tilkynningar. !;! 19.20 Bein lina. ;!; 20.00 Kvöldvaka. !;! 21.30 Útvarpssagan: „Músin !;! sem læðist” eftir Guðberg 5; Bergsson. Nina Björk ;! Arnadóttir les (5). !; 22.00 Fréttir. Veðurfregnir. í 22.15 Hrcindýr á lslandi. Gisli !;! Kristjánsson ritstjóri talar ;! við Rögnvald Erlingsson á ;i Viðivöllum i Fljótsdal. 5 22.30 Nútimatónlist. í 23.20 Fréttir i stuttu máli. ;! Dagskrárlok. i MIÐVIKUDAGUR ! 16. maí. 18.00 Töfraboltinn. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. Þul- ur Guðrún Alfreðsdóttir. 18.10 Einu sinni var. Gömul og fræg ævintýri i leikbúningi. Þulur Borgar Garðarsson. ; 18.35 Mannslikaminn. 4. þátt- ur. N.æring og melting. Þýð- andi og þulur Jón O. Ed- wald. 18.50 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 A stefnumót við Barker. Flutningamaðurinn. Brezk- ur gamanleikur með Ronnie Barker i aðalhlutverki. Þýðandi Jón Thor Haralds- son. Leikurinn gerist i Lundúnum á krýningardag- inn árið 1937. Vailefjöl- skyldan er að flytja, en hús- móðirin ákveður að fara og horfa á skrúðgöngurnar. Aður en hún fer, felur hún þjónustustúlkunni að gæta hússins og flutningamanns- ins, sem kominn er á vett- vang. 20. 55 Nýjasta tækni og vis- indi. Tilbúið loftslag. Meng- un sjávar. Henri Mondor- spitalinn, Listaverk varð- veitt með kjarnorku. Um- sjónarmaður örnólfur Thorlacius. 21.20 Hugrakkar dætur. (Daughters Courageous) Bandarisk biómynd frá ár- inu 1939. Aðalhlutverk John Garfield, Claude Rains, Jeffrey Lynn og Lane-syst- ur. Myndin greinir frá mið- aldra konu og dætrum henn- ar fjórum. Eiginmaður hennar hefur yfirgefið heimilið fyrir nær 20 árum og nú hefur konan i hyggju að giftast gömlum fjöl- skylduvini. En þá gerist ó- væntur atburður. 23.05 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.