Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 16. mai 1973 MERKIÐ.SEM GLEÐUR HHtumst i kmspfélaginu Gistiö á góöumkjörum CZ! \m rÉ a| nl SGOÐI Ljj fyrirgóöun mut $ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS Skylab I bilaður NTB-Kennedyhöfða — Bilun varð i geimstöðinni Skylab I f fyrra- kvöld rétt eftir að hún var komin á loft og hcfur það I för með sér, að geimfararnir þrfr, Conrad, Kervin og Weitz verða aö biða þar til á sunnudag með að fara um borð og hefja störf sin. Búizt er við aö hægt verði aögera aðmestu við bilunina. Þess má geta, að Skylab-áætlunin hefur þegar kostað 2,5 milijarða dollara. bað var litil hlif, sem rifnaði af, skömmu eftir skotið, en hún átti að varna þvi að agnir i loftinu gætu borizt inn i hin viðkvæmu tæki stöðvarinnar. Þetta hafði siðan i för með sér, að sólspeglar, sem vinna eiga orku úr sólar- ljósinu, opnuðust ekki. í gær kom i ljós, að hitinn inni i stöðinni var um 45 stig og sér- fræðingar viðurkenndu, að þeir væru ekki vissir um hvernig ætti að laga það. Þetta er fyrsta alvarlega óhappið, sem hent hefur geimférðastofnun Bandarikj- anna, siðan 1970, þegar hætta varð við ferð Apollo 13. til tunglsins. Þremenningarnir fóru von- sviknir i gær aftur til Houston, þar sem þeir vinna að undir- búningi farar sinnar, sem frestað hefur verið til sunnudagsins. Ef þeir skyldu komast klakklaust um borð i Skylab, verður dvöl þeirra þar aðeins 16-21 dagur i stað 28 eins og áætlað var. Þeir eiga að hafa meö sér nýtt stykki sem tengt verður við þann hluta stöövarinnar, sem enn er í lagi. Þessar faliegu stúlkur komu hingaö til lands I fyrrakvöld á vegum Globus hf. innflytjenda Viceroy-vindlinga. Væntanlega hafa allir tekið skrautlegum augiýsingum á vörunni I búðargiuggum undanfarið, þar sem m.a. má sjá myndir af dömunum sex. Hér munu þær líta inn f tóbaksverzlanir og heimsókninni iýkur meö hófi á hótei Sögu, þar sem veitt verða verðlaun fyrir hitt og þetta I sambandi við stúlkurnar og vöruna, sem þær auglýsa. (Tímamynd: Róbert) Verður dollarinn felldur? — Nýtt metverð á gulli í gær NTB-London og Washington — Bandariski doliarinn átti f gær I mestu erfiðleikum sfnum siðan hann var feildur i marz. Jafn- framt hækkaði gullverð upp úr öllu valdi og bandarfska verzlunarráðuneytið sendi út til- kynningu um viðskiptajöfnuð iandsins við útlönd, en hann er óhagstæður um 11.227 milljónir doliara á fyrsta ársfjóðrungi nfu á móti 1616 milljónum ársfjórðung- inn á undan. 1 fyrradag komst gullverð i fyrsta sinn yfir 100 dollara únsan, en i gær var verðið i Paris orðið 128.50 dollara únsan. Það er þrefallt það verð, sem gildir á gulli i Bandarfkjunum, 42 dollarar. Haft var i gærmorgun eftir Herbert Stein, ráðgjafa Nixons i efnahagsmálum, að liklega myndi dollarinn verða felidur á næstunni, en siðdegis var hann kominn á aðra skoðun og sagði þá að allar fréttir um gengisfellingu dollarans væru taugaveiklunar- hjal i Evrópumönnum. Bæði i kauphöllinni i New York og á Evrópskum peninga- mörkuðum er talið, að það sé Watergate-hneykslið sem á fyrst og fremst sök á vanda dollarans. Öttast er að hneykslið kunni að grafa undan valdi Nixons i al- þjóðlegum samningum um verzlun og gjaideyrismái. Fundur Nixons og Pompidous: Lagfæringar hafnar næstu daga ET-Reykjavík.— Einhvern næstu daga verður hafizt handa við aö gera nauðsyniegar lagfæringar á Kjarvalsstööum, myndlistar- húsinu á Mikiatúni, fyrir fund þeirra Nixons og Pompidous. Að vísu á stjórn hússins eftir að veita formlegt samþykki sitt, en búizt cr við, að það fáist í vikunni. Myndlistarhúsinu sem minnst breytt Húsameistara rikisins hefur yeriö falið að gera tillögur um lagfæringar á myndlistarhúsinu i fullu samráði við arkitekt hússins og hússtjórn. Reynt verður að gera sem minnstar breytingar á húsinu, enda er alls engin þörf á að verja fundasalina frá þvi, sem nú er, þvi að á þeim eru engir gluggar nema þakgluggar. Húsið stendur á bersvæði, svo öll gæzla utan dyra verður mun auðveldari en ella. Útlendingaeftirlit hert Lögreglustjórinn í Reykjavik sagði I viðtali við blaðið, að stöðugt væri unnið að undir- Liúningi öryggisráðstafana vegna komu forsetanna. Aftur á móti væri það vandasama starf á algeru frumstigi. Aðspurður kvaðst lögreglu- stjóri ekki vita, hve margir öryggisverðir fylgdu forsetunum hingað til lands né hvort þeir yrðu vopnaðir. Þó taldi hann það fasta venju. að slíkir verðir bæru vopn, en þeim væri ekki beitt, nema lifsnauðsyn krefði. Að sjálf- sögðu gengi lögreglan úr skugga um þessi atriði, er þar að kæmi. Lögreglustjóri sagði, að eftirlit með útlendingum hefði verið hert, um leið og tilkynning um fundinn var gefin út. Hann kvað starfsmenn tJtlendingaeftirlits- ins hafa sérstakar gætur á þeim- útlendingum, er hingað kæmu, m.a. kanna vandlega skjöl þeirra við komuna til landsins og fylgjast með dvalarstað þeirra. Alltaf eitthvað nýtt um Watergate: KISSINGER KOM LÍKA VIÐ SÖGU NTB-Washington — Þá er hinn frægi ráðunautur Nixons, Henry Kissinger einnig farinn að koma við Watergatemálið. Hann viöurkenndi i gær, að hafa séð skýrslur samdar á grundvelii símahlerana. Hann segist hafa rætt um siíkar að- gerðir við Hoover, fyrrum yfirmann FBI, en ekki hafi I þeim viðræöum veriö nefnd nein sérstök nöfn. Nefnd sú i öldungadeildinni sem rannsakar Watergate- máliö, samþykkti i gær, að John Dean skyldi ekki ákærð- ur, ef hann segir allt, sem hann veit um málið, sem enn er að aukast að vöxtum. Þá hefur nefndin skýrt frá nafni nýs vitnis, Roys Skeppard, en hann á einnig að fá tak- markaða þinghelgi eins og Dean. Ekki er vitað, hvar Sheppard þessi kemur inn i málið. 1 gær komu i ljós pappirar á skrifstofu Ehrlichmans i Hvita húsinu, sem vörðuðu simahleranir hjá stjórnar- mönnum og blaðamönnum, meðal annars um Daniel Ells- berg og Pentagon-málið. FBI hafði látið hlera simana, en skjöl þessi voru álitin týnd og ekki lengur til. Elliot Richardsson, dóms- málaráðherra hefur sagt, að hann ætli ekki að blanda sér i rannsókn málsins, að öðru leyti en þvi, að hann tilnefnir óviðkomandi mann til að reyna að koma til botns i málinu. I gær þótti liklegt að hann veldi Harold nokkurn Tyler, dómara frá New York, en það var ekki staðfest. Blað republikana i S-Kali- forniu ,,Santa Anna Register” skrifar i gær, að Nixon hafi tekið milljón dollara úr kosningasjóði sinum til að kaupa hús sitt i San Clemente. Segist blaðið hafa þetta upp úr skýrslum frá FBI. Ronald Ziegler, blaðafulltrúi Nixons segir þessar fréttir vera lygi frá rótum. FBI-maður sagði i viðtali við blaðið, að margt benti til þess, að þessir peningar hefðu farið úr sjóðnum inn á leynilegan bankareikning og siðan til húsakaupanna. A fimmtudaginn hefjast nýjar yfirheyrzlur vitna sem liklegt er að viti eitthvað um hinar ólöglegu njósnir. Mun þá m.a. reynt að komast að þvi, hvort Nixon vissi eitthvað um hleranirnar i Watergate. John Dean verður sennilega mikilvægasta vitnið i þessum yfirheyrslum. Aður hefur hann ásakað Nixon um að hafa sagt ósatt, þegar hann talaði til þjóðarinnar i marz sl. Framhald á bls. 15. Dansað í Árbæ17. júní Útflutningur iðnaðarvara '72: Skinnavörur og prjónles enn helztu vöruflokkarnir Klp. Reykjavik — Kvenfélag Arbæjarsóknar og Iþróttafélagið Fylkir i Arbæjarhverfi hafa óskað eftir þvi við borgarráð, að kannaðir yrðu möguleikar á þvi, aö hátiðarhöidin 17. júni n.k. verði haidin innan hverfisins. Borgarráð gaf samþykki sitt fyrir þessu, en óskaði þess, aö um fyrirkomulag hátiðarhaldanna veröi haft samráð við þjóð- hátiðarnefnd. Margrét Einarsdóttir, for- maður Kvenfélagsins, sagði i viðtali við Timann i gær, að nokkuð væri liðið siðan þessi hug- mynd hefði fyrst komið fram i Arbæjarhverfinu en nú ætti að reyna að framkvæmda hana. ,,Við gælum við þá hugmynd að 17. júni hátiðarhöldin færist út i hverfin og að þannig verði i fram- tiðinni” sagði Margrét.,,Við erum svolitið einangruö þarna upp i Arbæjarhverfinu og það getur verið allmikið fyrirtæki fyrir stóra fjölskyldu að ferðast meö hóp barna niður i miðbæ og aftur til baka og i þeim mannfjölda, sem þar er sjá minnstu börnin ekkert af þvi, sem þar er um að vera. Við hugsum okkur aö hafa þessa hátið eins fullkomna og hægt er, þ.e.a.s. með barna- og unglingakemmtunum, dansi og öðru. En þetta mun skýrast betur i dag, þvi þá höldum við fund með þjóðhátiðarnefnd, þar sem skipst verður á skoðunum um málið og það rætt frá báðum hliðum”. ARIÐ 1972 voru fluttar út iðnaðarvörur fyrir 3,9 milljarða króna og er það 118% verðmætis- aukning frá árinu 1971. Útflutn- ingur jókst um 31% úr 889 millj- onum i 1.164 milljónir króna, en þá er útflutningur Alversins i Straumsvik ekki meðtalinn. Stærstu vöruflokkarnir voru skinnavörur. 286 milljónir króna, prjónavörur og fatnaður, 239 milljónir, niðursuðuvörur 230 milljónir og kisilgúr 194 milljónir króna. Af öðrum vörum má nefna vélar og tæki fyrir 10 millj. kr., skrautmunir fyrir 4 millj. kr. og stólar fyrir 3 millj.kr. Veruleg breyting verður á skiptingu útflutningsins á markaðssvæði, ef tekið er tillit til inngöngu Dana og Breta i EBE. Af heildarútflutningnum 1972 fór 48% til EFTA, en hlutfallið verður 27% miðað við núverandi skipt- ingu. EBE var á sama hátt 31%, en verður 52%. Til N-Ameriku fór 5%, A-Evrópu 11% og annarra landa 5%. Ef útflutningurinn er at- hugaður, ál undanskilið, fóru 29% tilEfta landa, en verður 18% eftir breytinguna, til EBE landa fóru 17% en verður 28% eftir breyt- inguna. Til N-Ameriku fóru 18%, 35% til A-Evrópu og 1% til annarra landa. SJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.