Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 16. mai 1973
TÍMINN
5
STOÐUVEITINGU VIÐ
HÁSKÓLASAFN MÓTMÆLT
Gengið fram hjd þrem menntuðum bókavörðum
BLAÐINU hefur borizt afrit af
opnu bréfi til menntamálaráö-
herra og háskólaráös, frá 11
bókavörðum og 16 nemendum i
bókasafnsfræðum þár sem mót-
mælt er veitingu stöðu bóka-
varðar i Háskólabókasafni, sem
augiýst var laus tii umsóknar 9.
febrúar sl. Ingi Sigurðsson,
Ph.D., sagnfræðingur, hefur nú
hlotiö stöðu þessa, sá eini
umsækjenda, sem ekki hefur sér-
menntun i bókasafnsfræðum. t
bréfinu er m.a. bent á að þegar
starfar einn sagnfræðingur við
Háskólabókasafnið.
Umsækjendur auk Inga
Sigurðssonar voru Páll Skúlason,
cand.jur. sem auk þess hefur sér-
menntun I bókasafnsfræðum.
Þórir Ragnarsson, BA. frá Hí
með bókasafnsfræði sem aðal-
grein, sem stundar nú framhalds-
nám i Wales, og Guðrún Gisla-
dóttir B.A. frá Ht með bókasafns-
fræði sem aðalgrein. Guðrún og
Páll eru bæði starfandi bóka-
verðir. Þórir hefur einnig starfs-
reynslu i greininni.
í bréfi bókavarðanna og bóka-
safnsfræðinemanna segir m.a.:
,,Það er alkunna, að Hbs gegnir
tvenns konar hlutverki. Annars
vegar er það kennslustofnun,
starfsmenn þess sjá að miklu
leyti um menntun bókavarða við
H.I. Hins vegar er það rann-
sóknarbókasafn, það á að þjóna
nær öllum rannsóknarstofnunum
H.l. Það liggur þvi i augum uppi,
að við safnið og útibú þess þurfa
að vinna menntaðir starfsmenn,
sem hafa trausta undirstöðu-
menntun i bókasafnsfræðum og
einnig góða þekkingu á einhverju
þvi rannsóknarsviði, sem safnið á
að þjóna. Við val starfsliðs ætti að
hafa þessi sjónarmið i huga.
Nú hefur það gerzt, að Inga
Sigurðssyni, Ph.D., hefur verið
veitt umrædd staða, og þannig
gengið fram hjá þremur
umsækjendum, sem allir hafa
háskólapróf i bókasafnsfræðum.
Það sem virðist hafa ráðið þessu
vali, er einkum umsögn háskóla-
bókavarðar, en þar segir m.a.:
„...teldi ég það hættumerki i þjóð-
félagi offárra valkosta, sem hér-
lendis eru, ef eigi stæði áá kostur
Eggjatínsla bönnuð
Stranglega er bönnuð eggjatinsla I Vogs-
landi, Hraunahreppi, Mýrasýslu.
Málarafélag Reykjavikur.
Matvælaframleiðendur
Fanntóform eru harðplast umbúðir i ótrú-
lega fjölbreyttu úrvali — svo sem:
Kjötbakkar, dósir, öskjur, kassar og ávaxtabakkar, enn-
fremurglös, diskar og fjölmargar stæðir af meðaladósum
og margt fleira.
Framleiðum lika allar stærðir af plastpokum.
Leitið upplýsinga hjá okkur.
Fanntó - Hveragerði - Sími 99-4287
Forsætisráðuneytið
r
Oskum að ráða ritara
sem fyrst. Þarf að hafa mikla leikni i
vélritun og vera vel að sér i islenzkra og
enskri stafsetningu.
Laun samkvæmt 15. launaflokki rfkisstarfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar, Stjórnarráðs-
húsinu við Lækjartorg.
Fjármálaráðuneytið
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Stöðvun atvinnurekstrar þeirra aðilja,
sem skulda söluskatt fyrir mánuðina
janúar, febrúar og marz s.l., svo og ný-
álagðar hækkanir á söluskatti eldri
timabila, hefst án frekari fyrirvara 21.
þessa mánaðar hafi skattinum þá eigi
verið skilað ásamt dráttarvöxtum.
opinn að setja stöku sinnum
úrvalsmenn án bókavarðarprófs i
stöðu i Hbs. (og eins i Lands-
bókasafni, en helzt hvorki oftar
né sjaldnar en mér þykir hæfa i
Hbs). Auk þess að koma
einokunarorðrómi á okkur bóka-
varðastéttarmenn gæti útilokun
stéttarpróflausra átt þátt i, að
stéttin kynni að trénast að
einhverju leyti”.
Þessari skoðun hljótum við
undirr. að mótmæla Við teljum
að hér hafi verið brotið gegn þeim
sjónarmiðum, sem einkum ættu
aðgilda við ráðningu starfsmanna
við rannsóknarbókasafn. Þess
12 til 14 ára
stúlka óskast á sveitaheimili
til barnagæzlu og léttra inni-
starfa.
Upplýsingar i sima 3-36-96.
M/S HEKLA
fer'frá Reykjavik þriðjudag-
inn 22. þ.m. austur um land I
liringferö.
Vörumóttaka miðvikudag,
fimmtudag og föstudag til
Austfjarðahafna, Þórshafn-
ar, Raufarhafnar, Húsavlk-
ur, Akureyrar, Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar.
ber þó að geta, að i fjölmennum
þjóðfélögum reynist oft nauðsyn-
legt að ráða starfsfólk i rann-
sóknarbókasöfn án háskólaprófs i
bókasafnsfræðum, en að jafnaði
er slikur starfskraftur látinn
vinna að mjög sérhæfðúm
verkefnum innan einhvers
ákveðins þekkingarsviðs: þetta
eru þó oftast nær störf, sem
krefjast ekki kunnátttu i
almennum bókasafnsfræðum.
Þá hefur ekki verið haft i huga,
er Inga Sigurðssyni var veitt
staðan, að Hbs. er litið safn á
alþjóðlegan mælikvarða. Þar
biða lika mörg verkefni, sem
óhugsandi er, að sé óleyst við er-
lent rannsóknarbókasafn. Safnið
hefur t.a ,m. ekki enn verið skráð:
bækur þess hafa ekki allar veriö
flokkaðar. Slik störf krefjast sér-
kunnáttu i bókasafnsfræðum. Svo
litlum bókasöfnum er og lifsnauð-
syn að starfsmenn kunni skil á
öllum verkþáttum þess. Það
hefur þvi naumast efni á þvi, að
ráða bókavörð sem hefur ekki
aflað sér menntunar i bókasafns-
fræðum.
Þar við bætist, að önriur atriði
úr umsögn háskólabókavarðar
eru villandi. Hann segir m.a.:
„...Ingi reyndist þá sem oftar
ágætiseinkunnarmaður.. hann er
fremstur umsækjenda að
háskólaprófum...”
Að jafnaði tekur það 6 ár að
ljúka Ph.D. prófi frá brezkum
háskólum. Slikt próf svarar til
venjulegs kandidatsprófs við H.í.
Benda má einnig á, að lögfræði er
talin 6 ára nám. Og einkunn á
prófi lýsir lítið starfshæfni heldur
námshæfni.
Við viljum að lokum minna á,
að H.í. útskrifar bókaverði með
réttindi til starfa i bókasöfnum.
H.l gegnir þvi mjög ábyrgðar-
miklu hlutverki. En til hvers er
svo verið að kosta öllu þessu til, ef
svo er gengið framhjá þeim
mönnum, sem lagt hafa það á sig
að afla sér menntunar I þessari
grein?”.
—SJ
VIÐ
SMÍÐUM
HRINGANA
SÍMI 24910
Danmörk
kallar
Tveir ungir menn óskast á
tvöbændabýli, hvort með 180
hektara lands.
Frjálslegt með ungu fólki.
Hans Jörgen Holtz.e
Kronge
DK-4930 Maribo
llllMmwiiík
EKKI
eru líkurnar fyrir því
að þú látist af völdum
lungnakrabbameins
1 á móti 30.000