Tíminn - 16.05.1973, Qupperneq 6

Tíminn - 16.05.1973, Qupperneq 6
6 TÍMINN Miðvikudagur 16. mai 1973 NYJAR KEPPNIS- GREINAR FÁKS Myndin er af Óðni, sem sigraði I 250 metra unghrossahiaupi. Knapi er Sigurbjörn Bárðarson. Vorkappreiðar Hestamanna- félagsins Fáks i Reykjavík fóru fram á kappreiðavelli félagsins, Viðivöllum, sunnudaginn 13. þ.m. Keppt var nú i 6 keppnisgreinum, þar af tveimur, sem ekki hefur verið keppt i áður hjá félaginu. Það voru 1500 metra kerruakstur og stökkhestakeppni á 1500 metra sprettfæri. Urslit kappreiðanna urðu þessi: t 250 metra skeiði varð fyrstur Randver á 24,9 sek. Eigandi: Jónina Hliðar. Knapi, Aðalsteinn Aðalsteinsson. Annar varð óðinn á 25,0 sek. Eigandi: Þorgeir Jóns- son. Knapi, Aðalsteinn Aðal- steipss. og þriðji varð Blesi á 25,1 sek. Knapi og eigandi Aðalsteinn Aðalst. 1 kerruakstri varð fyrstur Kommi, á 3.31,4 min. Eigandi: Kommafélagið, Borgarnesi. Knapi Einar Karlesson. Annar varð Vinur, á 3.45,5 min. Eigandi: Kristbjörg Eyvindsdótir. Knapi Hreggviður Eyvindsson, og þriðji varð Hrimnir 3.45,6 min. Eig- andi: Eyvindur Hreggviðsson. Knapi, Kristbjörg Eyvindsdóttir. 1 unghrossahlaupi, 250 m. varð fyrstur óðinn, á 19,8 sek. Eig- andi: Hörður G. Albertsson, Knapi, Sigurbjörn Bárðarson. Annar varð Muggur á 20,0 sek. Eigandi: og knapi Sigurbjörn Bárðarson, og þriðji varð Breki á 20.2 sek. Eigandi og knapi Trausti Þ. Guðmundss. 1 350 m . keppni stökkhesta varð fyrstur Hrimnir, á 26,2 sek. Eig- andi: Matthildur Harðardóttir. Knapi, Sigurbjörn Bárðarson. Annar varð Þjálfi, á 26,3 sek. Eig- andi: Sveinn Sveinsson. Knapi, Aðalsteinn Aðalsteinsson. Þriðji varð Svarthöfði á 26,7 sek. Eig- andi og knapi Kristján Guð- mundsson. 1 800 m. keppni stökkhesta varð fyrstur Stormur, á 63,8 sek. Eig- andi: Oddur Oddsson. Knapi Oddur Oddsson. Annar varð Blakkur á 64,4 sek. Eigandi Hólmsteinn Arason. Knapi Einar Karelsson, og þriðji varð Ljúfur á 66.2 sek. Eigendur: Sigurður og Gisli, Vindási. Knapi Guðmundur Pétursson. t 1500 m. keppni stökkhesta varð fyrstur Lýsingur á 2.16,2 min. Eigandi: Baldur Oddsson. Knapi Oddur Oddsson. Annar varð Gráni, á 2.18,0 min. Eigandi: Gisli Þorsteinsson. Knapi Guð- mundur Pétursson. Veitt voru verðlaun besta knapa kappreiðanna. Hlaup þau Sigurbjörn Bárðarson. ÚTBOÐ Tilboð óskast um sölu á 68.500 m. af koparvír, af ýmsum stærðum og gerðum, fyrir Rafmagnsveitu Reykjavfkur Otboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 7. júni n.k. kl. 11.00. Utgáfa tónverka Menntamálaráð íslands veitir á þessu ári 300 þús. kr. til útgáfu á islenzkum tónverk- um, einkum með hljómplötuútgáfu i huga. Umsóknir um fjárveitingu þessa sendist Menntamálaráði, Skálholtsstig 7. Menntamálaráð íslands. Sumarbústaður - land 30 fermetra sumarbústaður til sölu og flutnings. Land fyrir hendi á góðum stað um 45 min. akstur frá Reykjavik. Upplýsingar i sima 22827. Stýrimannafélag íslands vill hömlur á undanþágur til skipstjórnar Stýrimannafélagi Islands hefir alllengi verið ljóst enda staðfest af umræðum og blaðaskrifum undanfarið, að algjört neyðar- ástand er rikjandi vegna skorts á nægilega menntuðum skip- stjórnarmönnum á islenzka skipastólinn. Mjög slæmar horfur eru á að þetta ástand komist i betra horf á næstu framtið, að óbreyttu ástandi. Nokkrar staðreyndir benda til þess að heldur muni siga á ógæfuhlið á næstunni. Þar má nefna að áhugi fyrir námi til skip- stjórnar virðist fara minnkandi, Samgönguráðuneytið gefur hömlulaust út undanþágur i skjóli verkamannafélaga viðkomandi byggðarlaga, sem þannig stuðla sjálf að þvi að koma ekki skipum sinum á veiðar eftir nokkur ár. Á farskipunum mun ástandið vera nokkru skárra en á fiskiskipun- um, þó er það svo,að ekki er eins- dæmi að Samgönguráðuneytið veiti undanþágu til manna til að gegna stýrimannsstörfum á skip um i utanlandasiglingum, sem alls enga skipstjórnarmenntun hafa hlotið og i einu tilviki til pilts sem ekki hefir náð lágmarks aldri, sem lög um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna ákveða um þá menn, sem uppfylla þó allar aðrar kröfur, er atvinnuskirteini krefst. Þá eru og dæmi til að einn og sami maður hafi fengið undan- þágur til að vera stýrimaður og vélstjóri yfir sama timabil. Þetta sýnir bezt hversu gegndarlausar og eftirlitslausar undanþágu- veitingar ráðuneytisins hafa verið og er dæmigert fyrir þann hugsunarhátt, sem þar rikir, og það sjálfdæmi, er ráðuneytið hefir tekið sér i þessum efnum. Áður en skipaflotinn verður meira og minna bundinn vegna þessa sjálfskaparvitis, skal Landsambandi isl; útvegsmanna og öllum öðrum er hagsmuna hafa að gæta eindregið bent á að bindast samtökum um tölulega úttekt á ástandinu. Ljóst þarf að vera, hve marga skipstjórnar- menn vantar nú á flotann, hver aukningin verði, t.d. i næstu fimm ár, og þar með hve margir réttindamenn þurfa að koma að útgerðinni á næstu árum. Að könnun þessari lokinni ættu þessir aðilar að leita til stjórn- valda um mótun á raunhæfum úr- lausnum til að leysa vandann og manna rétt skipastól fram- tiðarinnar. Nemendur Stýrimannaskólans hafa lýst tillögum sinum um undanþáguveitingar. Af raunsæi hafa þeir gert þessar tillögur þvi þeim er ljóst, að svo langt hefir verið gengið i þá átt að brjóta niður nauðsynlega aðsókn að Stýrimannaskólanum, að mörg ár mun taka að koma málinu i rétt horf. Félög skipstjórnarmanna hafa ekki á undanförnum árum viljað skrifaðar reglur um undanþágu- veitingar, en hafa fengið loforð um hömlur á undanþágur frá ráðuneytinu, en flest þessara loforða hafa ekki verið efnd. Allir aðilar, sem mál þetta snertir, verða að gera sér ljóst að kröfur til skipstjórnarréttinda eru i öllum tilvikum lágmarks- kröfur. Núverandi skipakostur og skip framtiðarinnar auka stöðugt þær kröfur, sem gera verður til skipstjórnarmanna. Allir aðilar verða aðleggja sinn skerf til þess, að mennta næga skipstjórnar- menn til lausnar þessum vanda, og snúa núverandi óheillastefnu upp i markvisst uppbyggingar- starf fyrir framtiðina. Skálatúnsheimilið i Mosfellssveit óskar að taka á leigu húsnæði i sumar, einhvers staðar á Suð-Vestur- landi. Upplýsingar gefur forstöðukona i sima 6-62-49. Æskulýðsmót Bandalag fatlaðra á Norðurlöndum efnir til æskulýðsmóts á Jótlandi i Danmörku dagana a-9.júni n.k. Ferðastyrkur kemur til greina. Umsóknarfrestur er til 25. mai. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjálfs- bjargar L.S.F. simi 25388. 'AVa'B i ^ al ti lanti' Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12 - Simi sson Æ i 22804 ,Æ> SÓLUM með djúpum slitmiklum munstrum. Hjólbarðaviðgerðir. Tökum fulla óbyrgð ó sólningunni. Vörubílamunstur — Fóklsbílamunstur — Snjómunstur — Jeppamunstur. BARÐINNf ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.