Tíminn - 16.05.1973, Page 11

Tíminn - 16.05.1973, Page 11
lYliðvikudagur 16. mai 1973 TÍMINN n Stefán Halldórsson, sést hér spyrna knettinum aftur fyrir sig i leik með unglingaiandsliðinu. Fyrir aftan hann sést Hörður Jóhannesson. Þeir leika báðir á ítaliu. Fyrsti leikur íslenzka unglingalands- liðsins verður gegn Englendingum, núverandi Evrópumeisturum Mótslit Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu voru sviplaus SÍÐASTI leikur Reykjavikur- mótsins i knattspyrnu var leikinn á mánudagskvöldið. Þróttur sigr- aði þá Armann 2:1 i leik.sem fór fram á Melavellinum. Halldór Bragason og Aðalsteinn örnólfs- son, skoruðu inörk Þróttar i fyrri hálfleik, en Bragi Jónsson, skor- aði mark Armanns, þegar 15 sek. voru til leiksloka. Um 30 áhorf- endur sáu leikinn og urðu vitni að einhverri ömurlegustu verð- Búa í nógrenni skakka turnsins á Ítalíu fer Ák veðið hefur verið, að fyrsti leikur íslenzka unglinga- landsliðsins i úrslita- keppni Evrópumóts- ins i knattspyrnu, sem hefst á ítaliu um næstu mánaðamót, verði gegn núverandi Evrópumeisturum, Englendingum. Eins og kunnugt er, dróst ísland i riðli með Englendingum, Belgiumönnum og Svisslendingum. Leikurinn gegn Englend- ingum fer fram 31. mai i borginni Viareggio. Dómari i þeim leik verður búlgarskur. Gegn Belgiu verður svo leikið 2. júni i Massa og mun austur- riskur dómari dæma þann leik. Þriðji og siðasti leikur i riðlinum verður gegn Sviss- lendingum 4. júni i borginni Forte dei Marmi, sem er á norð-vesturströnd ítaliu, skammt frá Pisa, borginni frægu, þar sem skakki turninn er. Dómari i leiknum verður norskur. Islenzka liðið er i svo sterkum riðli, að tæplega er við þvi að búast, að það komist i undanúrslit, en keppnin i undanúrslitum fram strax á eftir. Að sögn Arna Agústssonar, formanns unglinganefndar KSI, hefur gengiö hálferfið- lega með æfingar unglinga- landsliðsins að undanförnu, og stafar það af þvi að ung- lingalandsliðspiltarnir taka þátt i æfingum félaganna og keppa með þeim, og eru sumir piltanna bundnir á einu eða tveimur mótum. Aðalfararstjóri með ung- lingalandsliðinu til Italiu verður Friðjón Friðjónsson, gjaldkeri KSl, en auk þess verða með i förinni unglinga- nefndarmenn. Körfuknattleikur: EINVIGINU LAUK MEÐ SIGRI BANDARÍKJAMANNA BANDARÍKJAMENN og Rússar háðu einvigi i körfuknattleik um daginn. Þjóðirnar léku sex leiki, víðs vegar i Bandarikjunum. Olympiulið Sovétrikjanna, sem hlaut gullið i Munchen lék gegn áhugamannalandsliði Banda- rikjamanna (ieikmcnn úr há- skólaliðum). (Jrslitin i einviginu urðu þau, að Bandarfkjamenn unnu fjóra leiki, en Sovétmenn tvo. Fyrsti leikurinn fór fram i Los Angeles. t honum meiddist bezti leikmaöur bandariska liðs- ins, Bill Volton, og gat hann ekki leikið með liðinu í hinum fimm leikjunum. En þeir voru leiknir vfðs vegar i stórborgum. Sfðasti leikurinn fór fram í New York. Aðdragandinn að þessu einvigi var sá, að Bandarikjamenn buðu Sovétmönnum til Bandarikjanna. Þeir vildu sýna fram á, hverjir væru beztir i körfuknattleik. En eins og menn muna, þá sigruðu Sovétmenn á OL i Míinchen i mjög sögulegum leik gegn Bándarikjamönnum. Banda- rikjamenn sigruðu i leiknum, en dómarar færðu Sovétmönnum gullið á silfurbakka. Eins og menn muna, þá var leikurinn æsispennandi og höfðu Sovétmenn yfir 49:48 þegar fáar sek. voru til leiksloka. Þá fengu þeir dæmd vitaköst á sig. Banda- rikjamenn jafna 49:49 og skora 50:49 úr vitunum. Þá sýndi klukk- an að aðeins 1 sek. væri eftir til leiksloka, en dómararnir ákváðu að bæta 2 sek. við þann tima. Á þessum 3 sek. tókst Sovétmönnum að skora körfu, — þeir hentu boltanum yfir endi- langan völlinn, þar sem Sovét- maður náði honum, og sendi hann i körfuna um leið og dómararnir flautuðu leikinn af. Bandarikja- menn mótmæltu. En úrskurði dómaranna varð ekki breytt, þó að það væri talið útilokað, að Sovétmönnum hefðu nægt 3 sek. til þess að skora. Eftir Olympiuleikana buðu Bandarikjamenn Sovétmönnum að koma til Bandarikjanna og leika þar sex leiki. Sovétmenn þáðu boðið og Bandarikjamenn sýndu þeim, hverjir væru beztir i körfuknattleik. „Þegar „áreiðanlegu heimildirnar" bregðast „AREIÐANLEGAR heimildir” reynast ekki alltaf áreiðanlegar, þegar að er gáð. Þannig var það með frásögn- ina af leik Akraness og Breiðabliks, sem birtist i blaðinu í gær, en þar var sagt, að Breiöabliksliðið hefði gengið af leikvelli i mótmæla- skyni við dómara leiksins. Þetta var orðum aukið, svo ekki sé meira sagt, þvf að enda þótt hitnað hefði i kolunum i leiknum, kom aldrei til þess, að Breiðabliks- menn yfirgæfu leikvöllinn i mótmælaskyni. Hins vegar mun iiafa komið til orðaskaks milli dómara og leikmanna Breiðabliks. launaafhendingu, sem hefur átt sér stað lengi. Eftir leikinn fengu leikmenn Fram afhentan Reykjavikurmeistarabikarinn, fjórða árið i röð. Þeir voru kulda- lega klæddir, þegar þeir tóku bik- aruum. Klæddir frökkum og kuidaúipum. Á þessu sést, að það þykir ekki lengur neinn heiður, að taka við Reykjavikurmeistara- titilinum i knattspyrnu. Lokastaðan i Reykjavikurmót- inu, varð þessi Fram 6 4 2 0 17:4 10 KR 6 4 0 2 12:3 8 Valur 6 3 12 7:5 7 Vikingur 6 3 12 10:9 7 IBV 6 12 3 4:7 4 Þróttur 6 12 3 2:8 4 Armann 6 10 5 3:19 2 Eftirtaldir leikmenn, mótinu: skoruðu i Hér á myndinni, sjást Bandarikjamcnn fagna, er þeir töldu sig hafa unnið Sovétmenn á OL. En dómararnir gerðu gullvonir þeirra að engu. Eggert Steingrimss. Fram5 Simon Kristjánsson, Fram 5. Framhald á bls. 15. New York Knicks fór með sigur af hólmi Sigruðu í hinni óopinberu heims- meistarakeppni félagsliða í körfuknattleik NEW YORK Knicks sigraði hina óopinberu heimsmeistarakeppni félagsliða i körfuknattleik. Liði i sigraði Los Angcles, meistarana frá þvi i fyrra. Liðin háðu einvigi fyrir stuttu. Fyrirkomulagiö var þannig, aö átti að leika átta lciki. Úrslitin fcngust eftir fimm leiki. Los Angeles sigraöi fyrsta leik- inn, en New York Knicks fór með sigur af hólrni i næstu fjórum leikjum og var þvi staðan 4:1 þegar einviginu var hætt. 011 sterkustu atvinnumannalið Bandarikjanna taka þátt i þessari keppni. Liðunum er skipt i tvo riðla. Þannig að liðin á austur- ströndinni leika saman i riðli og liðin á 'vesturströndinni leika saman i riðli. Sigurvegararnir úr riðlunum mætast siðan i úrslita- einvigi. Liðin á austurströndinni eru miklu sterkari, en liðin frá vesturströndinni. Það má þvi seja, að aðalbaráttan i keppninni, hafi verið á milli New York Knicks og Boston i undanúrslit- um. Liðin háðu átta leikja einvigi, sem var æsispennandi og tvisýnt. íslandsmót í handknatt- leik utanhúss STJORN H.S.I. hefur ákveðið að Islandsmót i handknattleik utan- húss 1973 fari fram á timabilinu 4. júli til 20. júni, i meistaraflokki karla og i ágústmánuði i meist- ara- og 2. flokki kvenna. Þeir aðilar, sem hug hafa á þvi að annast framkvæmd móta þessara eru beðnir um að senda umsóknir sinar til stjórnar H.S.Í. fyrir 26. mai n.k.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.