Tíminn - 16.05.1973, Síða 13
Miðvikudagur 16. mai 1973
TÍMINN
13
Frímerkjasýning og
landsþing frímerkja-
safnara á Selfossi
LANDSSAMBAND islenzkra fri-
merkjasafnara mun halda 6.
landsþing sitt á Selfossi 19. mai
n.k. Þingið verður sett i Gagn-
fræðaskólanum kl. 14.30. Rétt til
setu á þinginu eiga fulltrúar
aðildarfélaga L.Í.F., sem nú eru
‘niu svo og stjórn og fram-
kvæmdaráð L.l.F. ásamt vara-
fulltrúum eða alls 34 fulltrúar. Þá
hefur Félagi frimerkjasafnara,
Reykjavik, verið boðið að senda
gest til þingsins.
Félag frimerkjasafnara Sel-
fossi gegnst jafnframt fyrir
frimerkjasýningu á Selfossi sama
dag og er hún haldin i Gagnfræða-
skólanum. 1 sambandi við sýning-
una mun pósthúsið á Selfossi hafa
i notkun sérstimpil laugardaginn
19. mai. Félag frimerkjasafnara
Selfossi hefur i samvinnu við
L.l.F. gefið út sérstök umslög,
sem verða til sölu fyrir sýninguna
i frimerkjaverzlunum i Reykja-
vik og á sýningarstað. Upplag
umslaganna er 1700.
Minnispeningur
Landssamband islenzkra
frimerkjasafnara hefur ákveðið
að gefa út minnispening i tilefni
100 ára afmælis islenzka frimerk-
isins.
A framhlið minnispeningsins
stendur islenzka frimerkið 100
ára 1873, 1973 auk póstlúðurs, á
bakhlið er merki L.l.F. Stærð er
sama og 10 krónu myntarinnar.
Upplag verður 100 eintök úr gulli
og 500 eintök úr silfri. Hver gull-
peningur kostar kr. 6000.00 og
silfurpeningur kr. 1000.00 Pöntun-
um er veitt móttaka i Frímerkja-
húsinu, Lækjargötu 6B og
Frimerkjamiðstöðinni, Skóla-
vörðustig 21A. Til staðfestingar
pöntun þarf að greiða fyrirfram
helming andvirðis pöntunar.
Reykjavik 11.5 ’73.
Electrolux
Frystikista
3IO Itr.
Electrolux Frystikista TC114
310 lítra Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa. Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
Vorumarkaðurinn hf.
ARMÚLA IA. SÍMI BGII2. REVKJAVÍK.
Bifreiða-
viðgerðir
Flfóttog vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bi freiöasti llíngin
Síðumúla 23, sími
81330.
Frá Vinnuskóla
Hafnarf jarðar
Vinnuskóli Hafnarfjarðar tekur til starfa i
byrjaðan júni og verður starfræktur á
svipaðan hátt og siðast liðið sumar. í
vinnuskólann verða teknir unglingar
fæddir 1958 1959 1960.
Vinna i skólagörðum hefst i byrjun júni. Sú starfsemi er
ætluð 9-12 ára börnum. Þátttökugjald tilkynnist við innrit-
un.
Innritun fer fram i æskulýðsheimilinu við Flatahraun kl.
4-7 siðdegis dagana 21. og 22. mai næstkomandi. Iþrótta og
leikjanámskeið fyrir 6-12 ára börn hefjast 4 júni. Innritun
á námskeiðin fer fram á Hörðuvöllum frá og með 1. júni
næst komandi.
Allar nánari upplýsingar um starfsemi skólans verða
veittar i æskulýðsheimilinu á innritunartima svo og 17.og
18. mai kl. 9-12
Forstöðumaður.
Sumardvalarheimili
Sjómannadagsins
að Hrauni i Grimsnesi tekur til starfa 20.
júni n.k. og starfar i 9 vikur.
Tekin verða börn á aldrinum 5-8 ára. Heimilt er að skipta
dvöl eftir 4 vikur.
Gjald er hið sama og hjá Rauða krossinum 1.800.- á viku
auk fargjalds,sem greiðist við brottför.
Forgangsrétt að dvöl hafa munaðarlaus börn sjómanna og
þau sem við erfiðar heimilisástæður búa.
Skriflegar umsóknir sendist Sjómannadagsráði Hrafnistu
fyrir 10. júni næst komandi.
Stjórnin.
framboð
v.þýzka flutningabílaiðnaðarins
S
Vöru-eöa sendibíll verður aö henta
því verkefni, sem honum er ætlaö. Stærö
skiptir máli, einnig vélarorka, palllengd,
burðarþol og eöli notkunar, s.s. undir hús,
pall eöa geymi. öxulþungatakmarkanir og
þungaskattsákvæöi þarf að ihuga, einnig
fjölda öxla og mismunadrifslása. Fram-
hjóladrif kemur til álita-og svo má lengi
telja.
Fjölbreytni í framleiöslu Hanomag-
Henschel hefur þvi tilgang. Þann, aö bjóöa
yður einmitt bilinn, sem yður hentar bezt.
Þér eigiö því erindi til okkar-verið velkomin.
2>Aó££a^kvé£a/t Á/
SUOURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SIMI 86500 • SIMNEFNI ICETRACTORS