Tíminn - 08.06.1973, Síða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
Hálfnað
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Atlantshafs-
bandalagið:
Danir og
Norðmenn
krefjast
brottfarar
herskip
Freigátan Scylla á siglingu út af Vestfjörftum I gær. Sjá má, aö þilfarsstyttur á þyrluþilfari eru brotnar. Brezka varnarmálaráöuneytiö sagöi
svo frá i gær, aö Ægir heföi siglt á freigátuna, en ekki væri lfklegt, aö hún sykki!
— Tímamynd: Róbert.
Herskip sigldi á Ægi
á 18 sjómílna ferð
Skemmdir litlar,og bjargaði snarræði varðskipsmanna að ekki fór verr
BREZKA freigátan Scylla þver-
braut alþjóölegar siglingareglur f
Þjóðhdtíðin í ór:
Nýtthneyksli
eða betri
bragur?
MEÐ heimiid borgarráös hefur
þjóöhátiöarnefnd Reykjavikur 17.
júnf ákveöiö aö efna til dans-
skemmtana aö kvöldi
þjóðhátiöardagsins viö Mela-
skóla, Álftamýrarskóla, Lang-
holtsskóla, Arbæjarskóla og
Breiöholtsskóla. Á þessum stöö-
um munu hljómsveitir leika fyrir
dansi á timabilinu kl. 21 til
miðnættis.
Þetta er gert sem tilraun til
breyttrar tilhögunar kvöld-
skemmtana á þjóöhátiöardaginn
og þær vonir viö hana bundnar, aö
annar og betri bragur, veröi á
þessum kvöldsamkomum, en
þeim, sem fram fóru I miöbænum
i Reykjavik 17. júni 1972.
Aö ööru leyti munu hátiðarhöld
17. júni i ár verða meö svipuöum
hætti og undanfarin ár, nema að
þvi er snertir barnaskemmtun og
; siðdegissamkomu, sem hvort
tveggja verður haldiö á Lækjar-
torgi. Munu þvi skrúðgöngur
stefna til Lækjartorgs i stað
Laugardals, þar sem barna-
skemmtun hefur veriö haldin 17.
júni nú siðustu ár.
gærmorgun og sigldi á varöskipiö
Ægi skammt frá isröndinni út af
Barða. Enginn brezkur togari var
þar nærri og var Ægir i
rannsóknarleiöangri aö athuga
isröndina. Freigátan sigldi fram
úr Ægi og þvert fyrir stefni skips-
ins. Varöskipsmenn beygöu
snöggt undan og voru vélar Ægis
settar fulla ferö aftur á bak og
skipinu þannig forðaö. Heföi Ægir
haldið siglingunni áfram, eins og
hann átti fullan rétt á, er ekki gott
aö segja hverjar afleiðingarnar
heföu oröiö. Scylla er 2450 lestir
aö stærö, Ægir 927 lestir.
Þarna nærri voru brezkir
togarar, en tveir vestur-þýzkir á
siglingu. Var herskipiö þvi ekki
að verja veiöiþjófa, en elti varð-
skipiö út aö fsröndinni og sigldi á
þaö þar.
Atburöurinn varð kl. 9.30. Var
Ægir á siglingu 36sjómilur undan
Baröa, skammt frá isröndinni.
Scylla F-71 sigdli fram úr Ægi á 18
sjómilna ferð og skar stefnu varö-
skipsins þannig aö skipin rákust
saman. Bógur Ægis um metra
fyrir aftan stefni straukst viö
stjórnborössiöu Scylla á móts viö
þyrluskýli og tók allar þyrlu-
þilfarsst yttur burtu.
Þegar varöskipsmenn sáu að
hverju dró gáfu þeir freigátunni
aðvörunarflaut og settu báðar
vélar á fulla ferö aftur á bak, en
árekstri varð ekki forðað, þar
sem Scylla beygöi meira aö
varðskipinu. Skemmdirnar á Ægi
eru smávægilegar.
Freigátan var i algjörum órétti
þar sem hún var að sigla Ægi uppi
og auk þess kom skipiö inn á bak-
borðssiðu varðskipsins.
Ægir hélt áfram aö kanna isinn
eftir ásiglinguna og fylgdi
herskipið honum eins og skuggi.
Virðist brezki flotinn hafa þungar
áhyggjur af varöskipinu. Ljós-
myndari frá Tímanum fór meö
gæzluflugvélinni Sú yfir svæðiö
siðari hluta dags. Þá haföi
Nimrod könnunarflugvél veriö
yfir svæöinu og herskipin, sem
fylgdu Ægi eftir meöfram isrönd-
Framhald á bls. 19
anna
FREGNIR frá Brussel
herma, að á fundi varnar-
málaráðherra Atlantshafs-
bandalagsrikjanna, sem þar
var haldinn, hafi norski og
danski fulltrúinn verið
hvassyrtir i garð Breta
vegna aðgerða þeirra i is-
lenzkri landhelgi og krafizt
þess, að brezka flotanum
yrði þegar skipaö út fyrir 50
milna mörkin.
Brezki fulltrúinn svaraði
fullum hálsi og sagði, að ekki
kæmi til mála aö herskipin
hættu að vernda togarana
fyrr en islenzku varðskipin
hættu áreitni sinni við þá.
Endurtók hann þá marg-
þvældu staðhæfingu Breta,
að þeir væru að verja rétt
sinn á úthafinu og aö her-
skipin yrðu áfram við Is-
land til verndar togurunum.
Tómas Tómasson fasta-
fulltrúi tslands hjá NATO sat
ekki fundinn i mótmælaskyni
við hernaðarihlutun Breta i
islenzkri lögsögu.
Fundur varnarmálaráð-
herranna er nokkurs konar
undirbúningsfundur fyrir
fund utanrikisráöherra
NATO rikja, sem haldinn
verður i Kaupmannahöfn 14.
og 15. júni n.k. Mun Einar
Agústsson sitja þann fund.
Aðalritari Atlantshafs-
bandalagsins, Joseph Luns,
reynir að miðla málum i
deilu tslendinga og Breta.
Hannes Jónsson, sagði á
blaðamannafundi i gær, að
hann gæti engar upplýsingar
gefið um hvort islenzka
rikisstjórnin heföi fengið
nokkur drög að samkomu-
lagi frá NATO-ráðinu og
itrekaði, að tslendingar væru
reiðubúnir að hefja viðræður
við Breta án milligöngu
nokkurs aðila, ef þeir færu
með herskip sin út fyrir 50
milna mörkin. OÓ.
Ný framhaldssaga í Tímanum
Verk tveggja öndvegismanna
Magnús Ásgeirsson.
Á MORGUN hefst i Timanum
ný framhaldssaga, sem blaö-
inu þykir vert aö vekja athygli
á. Þetta er sagan Hvaö nú,
ungi maöur? eftir Hans
Fallada i þýöingu Magnúsar
Ásgeirssonar — hins stór-
snjalla. þýöanda.
Þessi saga birtist sem fram-
haldssaga i Alþýðublaðinu
fyrir fjörutiu árum, og var sið-
an gefin út bók, er nú bregður
tæpast lengur fyrir, og mun
aðeins til i eigu fárra einstak-
linga. Þeir eru þvi nú orðnir
fáir, sem hafa lesið þessa
sögu, og enn færri, sem muna
hana glöggt. Þótti Timanum
happ, er hann fékk leyfi fjöl-
skyldu Magnúsar Ásgeirsson-
ar til að birta söguna á ný.
Sjálfur komst Magnús Ás-
geirsson svo að orði, að þetta
væri „einhver mannlegasta,
látlausasta og sannasta skáld-
saga”, er skrifuð hefði verið á
sinum tima. Um þýðingu sina
sagði Magnús i eftirmála, er
hann skrifaði:
„Mér þykir rétt að geta þess
..., að þýðing min á bók þess-
ari er, og á að teljast, „lausleg
þýðing”. Ég hef ekki hirt um
að fylgja frumtextanum ná-
kvæmlega, fellt litils háttar
úr, breytt nokkuð um kafla-
fyrirsagnir og svo framveg-
is... Hins vegar hef ég reynt að
gera mér far um að halda
þeim málblæ á samtölunum,
sem eðlilegur og algengastur
er i þvi umhverfi hér á landi,
er helzt likist þvi umhverfi,
sem persónurnar lifa og hrær-
ast i. Af þvi stafar sá reyk-
viskublær i orðavali og orða-
lagi, sem oft er á þýðingunni.”
Framhald á bls. 19