Tíminn - 08.06.1973, Qupperneq 17
Föstudagur 8. júni 1973. TÍMINN 17
Koma heimsmeistararnir
til íslands í júlí?
Albert Guðmundsson, formaður KSÍ heldur í dag til Ítalíu, þar
sem hann ræðirvið Brasilíumenn, sem keppa þar á sunnudaginn
í dag heldur Albert
Guðmundsson, for-
maður Knattspyrnu-
sambands íslands til
ttaliu, i boði italska
knattspyrnusam-
bandsins, sem heldur
upp á 75 ára afmælk sitt
á sunnudaginn. Albert,
treysti sér ekki til að
fara upphaflega vegna
anna. En er hann frétti,
að heimsmeistararnir i
knattspyrnu frá Brasiliu
léku þar við italska
landsliðið, afréði hann
að halda utan og freista
þess að ná samningum
við Brasiliumenn, um
að þeir kæmu hingað til
HEIMSMEISTARARNIR FRÁ FRASILÍU....hér sjást þeir áður en þeir léku úrslitaleikinn gegn ítaliu i heimsmeistarakeppninni 1970. Brasi-
liumenn unnu leikinn 4:0.
landsins og léku á
Laugardalsvellinum i
byrjun júli.
Brasiliska iandsiiðið er nú á
keppnisferðalagi I Evrópu, þar
sem það mun leika nokkra lands-
leiki. T.d leika heims-
nieistararnir gegn Skotlandi i
Glasgow laugardaginn 30. júni
n.k. i tilefni 100 ára afmælis
skozka knattspyrnusambandsins.
Mun Albert leggja áherzlu á, að
heimsmeistararnir komi til Is-
lands frá Glasgow og leiki hér
einn leik gegn islenzka
landsliðinu. Að sjálfsögðu er ekki
hægt að segja að svo stöddu um
hvort Albert nái samningum við
Brasiliumenn.
Það þarf ekki að kynna heims-
meistarana frá Brasiliu fyrir Is-
lendingum. Hverjir þekkja ekki
nafnið Pele og hvað hann hefur
afrekað um árin. Brasiliumenn.
hafa verið i fremstu röð i knatt-
spyrnunni. Landslið Brasiliu
hefur unnið heimsmeistara-
keppnina þrisvar sinnum. Fyrst
1958 i Sviþjóð, þá i Chile 1962, og
liöið vann hina frægu Jules
Rimet-styttu til eignar i Mexikó
árið 1970.
Með liði Brasiliu.leika margir
af beztu knattspyrnumönnum
heims, sem eru hreinir galdra-
menn með knöttinn. Brasiliu-
menn hafa nú komið sér upp mjög
sterku liði, sem hefur verið
ósigrað frá árinu 1968. Ef af þvi
veröur, að Brasiliumenn komi
hingað, verður koma heims-
meistaranna, mesti iþróttavið-
burður hér á Islandi fyrr og sið-
ar. Nú er ekki annað hægt að
gera, en að biða og vona, að
Albert Guðmundsson, formaður
KSI komi heim með góðar fréttir
frá ttaliu.
HANN ER BYRJAÐUR
AÐ BROSA AFTUR
breytti liðinu og stjórnaði þvi
til sigurs, eins og fyrr segir.
Nú hafa Spánverjar levft, að
lið megi kaupa tvo erlenda
leikmenn til að leika með þeim
en það hefur ekki mátt i mörg
ár — og er Max byrjaður að
horfa aftur til V-Þýzkalands.
Ekki til að gerast þar þjálfri,
heldur hefur hann augastað á
leikmönnum þar, sem hann
vill fá til Atletico Madrid.
Einn kunnasti knattspyrnuþjálfari Evrópu stjórnaði
Atletico Matrid til sigurs í spönsku 1. deildinni. Hann hefur
stjórnað þremur liðum til sigurs í meistarakeppni á sjö árum
MAX MERKEL....hefur stiórnað þremur liöum til sigurs I
meistarakeppni á sjö árum.
nafn sem þjálfari, þegar hann
var með 1860 Munchen. Þá
stjórnaði hann liðinu i
Evrópukeppni bikarhafa 1965
og kom þvi i úrslit. Árið eftir
sigraði liðið „Bundesligunna”
(1. deild) i Vestur-Þýzkalandi.
Áriðeftir (1967) hættir Max að
þjálfa 1860 Múnchen, þegar
liðið lenti i öðru sæti. Hann tók
þá við 1. FC Núrnberg.
1. FC Núrnberg undir stjórn
hans náði frábærum árangri.
Liðið sigraði hvern leikinn á
fætur öðrum og tryggði sér V-
Þýzkalandsmeistaratitilinn
1968. Þá lék Max Merkel á alls
oddi og var kallaður — bros-
andi þjálfarinn. En það var
ekki lengi, sem hann var
kallaður þvi nafni. V-Þýzka-
landsmeisturunum 1. FC
Núrnberg gekk mjög illa árið
eftir i 1. deildinni. Liðið tapaði
hverjum leiknum á fætur
öðrum, endirinn varð sá, að
liðið féll úr 1. deildinni. Max
Merkel var hættur að brosa og
hann varð niðurbrotinn
maður, eins og hann hefði
verið dæmdur til dauða i
Núrnberg-réttarhöldunum
frægu i striðslok.
Max Merkel yfirgaf V-
Þýzkaland og fór til Spánar,
þar sem hann tók við liðinu FC
SeVilla. Þetta var árið 1969,
en árið 1972 hætti hann hjá
Sevilla og tók við Atletico
Madrid. Og árangurinn lét
ekki á sér standa. Hann gjör-
ATLETICO Madrid varð
Spánarmeistari i knattspyrnu
i ár. Maðurinn á bak við vel-
gengni liðsins er tvimælalaust
v-þýzki þjálfari liðsins Max
Merkel, sem er nú einn kunn-
asti knattspyrnuþjálfari i
Evrópu. Hann á sérkennilega
sögu að baki sem þjálfari.
Max Merkel hefur á sl. sjö
árum, stjórnað þremur liðum
til sigurs i meistarakeppnum.
Tveimur v-þýzkum, 1860
Múnchen og Núrnberg. Og nú
siðast Atletico Madrid.
Max Merkel, sem er nú 53ja
ára að aldri, vann sér fyrst
A þessari mynd sést Max Merkel stjórna æfingu Atletico Madrid.