Tíminn - 08.06.1973, Blaðsíða 20
Föstudagur 8. júni 1973.
J
Plast-þak-
gluggar
úr Akryl-
gleri
^fGeislaplastsf.
YJKn ARMÚLA 23 SÍMI 82140
I I I ] •
MERKIÐ SEM GLEÐUR
Hittumst i kmtpfélaginu
SGOÐI
Áf 'yr*r f/óötui mai
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
A sunnudaginn siðast-liöinn var hin nýja kirkja i Miklabæ i Blönduhllð i
Skagafirði vigð að viöstöddu fjölmcnni. Biskupinn, Sigurbjörn Einars-
son framkvæmdi vigsluna. Stefán Petersen á Sauðárkróki tók myndina
af athöfninni.
Hópur Norðmanna og íslendinga:
Skíðaganga yfir
endilangan
Vatnajökul
Bandaríkjamenn á fiskveiðiróðstefnunni:
MINNKA ÞARF VEIDAR í
NV ATLANTSHAFI ÖLLU
NTB-Kaupmannahöfn —
Danmörk lagði i gær
fram á ráðstefnu NA-At-
lanzhafsnefndarinnar,
tillögu um kvótareglur
fyrir makrilveiðar og
minnkun á kvóta fyrir
sild. Þá vilja Danir einn-
ig að þorskveiðar við
Grænland verði tak-
markaðar við 80 þús.
tonn á ári og við 10 þús.
tonn innan landhelginn-
ar. í fyrra veiddust 110
þús. tonn af þorski á
þessu svæði.
Bandarisku fulltrúarnir hafa
endurtekið þá hótun sina að segja
sig úr nefndinni, ef veiöarnar við
austurströnd Bandarikjanna
verði ekki takmarkaðar.
i fiskveiðinefndinni eru 16 iönd.
Fundirnir á ráðstefnunni f Kaup-
mannahöfn fara fram fyrir iokuð-
um dyrum. Bandarikin hafa lagt
fram tiilögu um minnkun veiða i
NV-Atlanzhafinu öllu og m.a.
einnig um stækkun möskva i
botnvörpum.
Nýr samningur um
frið íVíetnam
S-Víetnam neitar að undirrita
NTB-Paris og Saigon — Kissinger
og l.e Iluc Tho komust i gær að
samkomulagi i grundvallaratriö-
um uin áætlun, sem tryggja á frið
i Vietnam, að þvi talsmaður
S-Victnam stjórnarinnar sagði I
Saigon. Leiötogarnir áttu I gær
annan fund sinn i Paris.
S-Vietnamski talsmaðurinn
sagði jafnframt, að landið hefði
ekki rofið friðarsamninginn, sem
var undirritaður i Paris i janúar
og þess vegna sé engin ástæða til
að undirrita nýjan samning til
tryggingar friði. — Viö viljum
ekki undirrita sáttmála, sem
kommúnistarnir rjúfa siðan,
sagði talsmaðurinn.
Eitt atriði, sem þeir Kissinger
og Tho hafa rætt i þetta sinn, eru
möguleikar á að skipta S-Viet-
nam niður i eftirlitssvæði, stöðva
skothriðina, fullkomna fanga-
skiptin, draga úr hlutverki al-
þjóða-eftirlitsnefndarinnar og
ákveða dagsetningu stofnunar
þjóðarráðs til sameiningar og
samvinnu i S-Vietnam.
Bandariski ambassadorinn i
Saigon átti i gær fund með utan-
rikisráðherra S-Vietnam, Tran
van Lam og skýrði honum frá
gangi samningaviðræðnanna i
Paris.
VATNAJÖKULL er mestur jökla
i Norðurálfu, enda hefur hann
margra freistaö. Um þessar
mundir eru nær þvi hundrað ár
siðan þeir Watts og Páll jökull
fóru um þveran Vatnajökui, og nú
hefur lengi verið títt, að menn
þeystu um hann fram og aftur á
vélknúnum farartækjum. En
þrátt fyrir aila mannaferð um
Vatnajökul hefur hann ekki enn
verið genginn endilangur á skið-
um. Það kemur kannski ekki á
óvart, að nú virðast vera uppi
hugmyndir um slíkt meöai fjalla-
garpa i fleiri löndum en einu.
Flugbjörgunarsveitin er sem
kunnugt er skipuð ungum og ötul-
um mönnum, og hafa þeir verið
við æfingar viða um land, og má
til dæmis nefna, aö hún hefur
miklar æfingar i Þórsmörk nú um
helgina næstu. Menn úr flug-
björgunarsveitinni hafa einnig
verið á Vatnajökli sumar hvert.
Nú er það til umræðu, að fjórir
til sex menn úr flugbjörgunar-
sveitinni freisti þess að ganga
jökulinn endilangan á skiðum,
allt þrautvanir skiðamenn, er
verið hafa á jöklinum áöur. Þetta
mun þó ekki fastráðið.
Samtimis eru uppi i Noregi
áforni um sams konar göngu. Eru
þaö tiu Norðmenn, sem hyggjast
koma hingað þessara erinda, og
ætla þeir að fara i tveim hópum,
fimm i hvorum, austur yfir jökul-
inn, og leggja upp frá Jökulheim-
um við vesturjaðarinn.
Norðmennirnir munu hafa snú-
ið sér til Arna Edvinssonar, eins
af forystumönnum flug-
björgunarsveitarinnar, til þess að
fá sem gleggsta vitneskju um
jökulinn og skynsamlega tilhögun
ferðarinnar, en sjálfir eru þeir
væntanlegir til landsins kring um
Jónsmessuna eða upp úr henni.
Er því liklegt að þeir hefji för sina
um næstu mánaðamót, ef heppi-
lega viðrar.
Borgarstjórn lýsir stuðn-
ingi við landhelgisgæzluna
— Fylgt verði eftir kærunni til A-bandalagsins
A FUNDI bogarstjórnar
Reykjavikur I gær var rætt um
landhelgismálið og atferli Breta i
islenzkri fiskveiðilögsögu. Var
þar samþykkt einróma svofelld
ályktun:
„Borgarstjórn Reykjavikur
fordæmir harölega það ofbeldi
Breta að senda herflota og flug-
vélar inn i fiskveiðilandhelgi Is-
lands til þess aö hindra löggæzlu-
störf islenzkravaröskipa.
Borgarstjórn lýsir yfir stuðn-
ingi við landhelgisgæzluna og
leggur áherzlu á, að aðstaða
hennar verði bætt meö fjölgun
varðskipa og betri búnaði.
Borgarstjórn telur, að frekari
samningaviöræður við Breta
komi ekki til mála, nema þeir
dragi herskip sin út fyrir fisk-
veiðitakmörkin.
Þá hvetur borgarstjórn til þess,
að ofbeldi Breta verði kært fyrir
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
og fylgt verði kærunni til
A-bandalagsins. Borgarstjórn
hvetur til órofa samstöðu i þessu
lifshagsmunamáli islenzku
þjóðarinnar.”
Spor í rétta átt
KÓPAL í NSCJUM CDG
MARGFALX BETRI TDNALTTUM
mélaíagi]
MÁUMINO HF
Dollarinn stígur á ný
NTB-Washington — Dollarinn er
nú tekinn að hækka i verði á ný og
gullið að lækka. Sérfræðingar i
London vilja meina, að styrkari
staða dollarans nú stafi af þvi, að
Nixon hafi á prjónunum að gera
nýjar ráðstafanir til að stöðva
verðbólguna i Bandarikjunum.
Hann kallaöi bankastjórn banda-
riska seðlabankans og Shultz
fjármálaráðherra heim frá Paris
i gær til að halda með þeim fund
um málið.
Watergate-málið:
AAistök í kosn-
ingabaráttunni
NTB-Washington — Eitt vitnanna
i Watergate-málinu sagði i gær,
að Haideman, fyrrum fyrirmaður
starfsliðs Hvita hússins, hefði i
janúar sl. viðurkennt, að i
kosningabaráttunni I fyrra, hafi
ýmis mistök átt sér stað. Það var
Hugs Sloan, fyrrum gjaldkeri
endurkjörsnefndar Nixons sem
tjáði öldungadeildarnefndinni
þetta.
Hann kvaðst hafa sagt Halde-
man, að hann neyddist til að gefa
falska skýringu á greiðslum til
Liddys, sem dæmdur hefur verið
fyrir innbrotið i Watergate. New
York Times sagði i gær, að Nixon
hafi i fyrra samþykkt áætlun um
aukiö eftirlit, þrátt fyrir aðvaran-
ir umtað likt væri ólöglegt.
öldungadeildarnefndin segir, að
blaðið hafi þessar fréttir ekki frá
sér.
ARMULA 1A Símar:
Matvörudeild 86-111
Húsgagnadeild og gjafavörur 86-112
Heimilistækjadeild 86-112
Vefnaöarvörudeild 86-113
Skrifstofan 86-114