Tíminn - 03.07.1973, Page 16

Tíminn - 03.07.1973, Page 16
16 TÍMINN Þriöjudagur 3. júli 1973. ASGEIR SKORAÐI UR AUKASPYRNU AF 35 METRA FÆRI Þrumuskot hans hafnaði í þverslá og þaðan í bakið á Árna Stefánssyni markverði Akureyrar og inn. Eyjamenn unnu 4:0 Vestmannaeyingar áttu ekki í vandræðum með IBA/ er þeir mættu þeim á Njarðvíkurvellinum á laugardaginn. IBV sigraði stórt í þessum leik eða fjögur mörk gegn engu, og var það verðskuldaður sigur. Það var allmikill vindur á annað markið og kusu Vest- mannayeingar að leika með vindinum i fyrri hálfleik. IBV byrjaði strax á sókn og áttu fyrsta skotið að marki, sem sleikti stöngina. A 7. min. kom fyrsta markið,og var þar að verki örn Óskarsson. Hann fékk knöttinn út á kantinn og brunaði upp hann og að markteig og skaut framhjá markverði IBV og i markið, 1-0 fyrir IBV. IBV var svo að segja i sókn allan fyrri hálfleikinn,en það skapaðist litið af tækifærum. Á 24 min. kom svo annað mark IBV og eitt þeirra fellegustu, sem sézt hafa i islenzkri knattspyrnu,og það mark skoraði enginn annar en Asgeir Sigurvinsson, hinn snjalli leikmaður IBV. IBV fékk aukaspyrnu á um 35 metra frá marki IBA og stilltu leikmenn IBA sér upp 9 metra frá boltan- um, en Asgeir spyrnti þrumuskoti yfir varnarvegg IBA og i þverslá og boltinn fór i bakið á Arna Stefáns- syni markveröi IBA og i markið. 2 min. seinna skora svo Vest- mannaeyingar sitt þriðja mark og var þar á ferðinni örn Óskarsson , og var þetta hans annað mark i leiknum. örn fékk boltann eftir góða sendingu frá Asgeiri og eins og svo oft fyrr þá brunaði örn með boltann upp að kanti og inn i vitateig IBA og renndi boltanum framhjá mark- verðinum. Fleiri voru mörkin i fyrri hálfleik ekki, en IBV var búinn að eiga meira i leiknum. Oft komu góðir kaflar i leik IBV og náðu leikmennirnir oft góðu samspili, þar sem boltinn gekk á milli manna. t seinni hálfleik skiptust liðin á að vera i sókn.en Vestmannaeyingar þó oftar og það stóð ekki á markinu. A þriðju minútu skoraði Haraldur fjórða mark IBV. Haraldur Júliusson fékk sendingu frá Ásgeiri Sigur- vinssyni og spyrnti viðstöðulaust i mark og boltinn hafnaði i horninu á marki IBA og staðan orðin fjögur mörk gegn engu IBV i vil. Á 18 min. fengu Akureyringar gott tækifæri til að skora.en það mistókst. Sigurbjörn Gunnarsson fékk boltann,þar sem hann var staddur inni i vitateig IBV og spyrnti hann að marki.en Arsæll Sveinsson gerði sér litið fyrir og varði skot hans frábærlega vel. Það er óhætt að segja það, að Ársæll sé einn okkar bezti mark- vörður og á hann örugglega orðið sæti I landsliðinu okkar sem markvörður. Enn fengu Akur- eyringar tækifæri til að skora mark,en sem fyrr mistókst þeim. A 23 min. skaut Þormóður Einarsson að marki IBV, en boltinn fór i stöng og til Eyjólfs Agústssonar, sem skaut I hornið en enn einu sinni varði Arsæll frá- bærlega. A siðustu min. mis- notaði Tómas Pálsson gott tæki- Björgvin stóð sig bezt............... vallarmetið á Peninavellinum í Evrópu keppninni í golfi. ísland í 17. sæti BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON landsliðsmaður I golfi stóð sig mjög vel I Evrópukeppninni I golfi, sem fór fram I Portúgal um helgina. Hann jafnaði vallarmetið, þegar hann lék völlinn á 74 höggum, sem er mjög góður árangur. Það var ekki fyrr en beztu golfleikarar Englands og Skotlands léku, að nýtt vallarmet var sett — þeir léku á 71 höggi. íslenzka liðið lenti i 17. sæti i Evrópukeppninni að þessu sinni. 18 þjóðir tóku þátt i keppninni. Island vann Austurriki með 4.5 vinning- gegn 2.5. Islenzka liðið byrjaði ekki vel i undankeppninni.áttu islenzku kylfingarnir mjög erfitt með að pútta og hefðu púttin komið i veg fyrir að liðið kæmist i B-riðilinn. Björgvin Þorsteinsson. færi, hann fékk sendingu frá Erni og var fyrir opnu marki.en skaut framhjá. Illa gert hjá fyrrverandi markakóngi. —GKK Stúlkurnar settu tvö PUMA íþróttatöskur MARGAR TEGUNDIR: Hliðartöskur kr. 920, 1265, 1790 Handtöskur kr. 1870, 2490, 2690 Póstsendum Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar Klapparstig 44 — Simi 11783 — Reykjavik met og jöfnuðu eitt — en árangur þeirra olli samt vonbrigðum Árangur islenzka kvennaliðsins á Evrópu- bikarkeppninni i frjáls- um iþróttum var heldur lakari en búizt var við fyrirfram. Það var að visu aldrei reiknað með, að hið kornunga landslið yrði framar i röðinni, en ýmsir höfðu gert sér vonir um betri afrek i einstaka greinum. Tvö Islandsmet voru sett, bæði i boðhlaupunum, i 4 x 100 m boð- hlaupi, hljóp sveit tslands á 49,8 sekog bætti gamla metið um 3/10 úr sek. 1 sveitinni eru systurnar Sigrún og Lára Sveinsdætur, Ingunn Einarsdóttir og Kristin Björnsdóttir. Sveitin i 4 x 400 m hlaupinu bætti metið um 2/10 úr sek. og hljóp á 4:01,4 min. Sömu stúlkur voru i sveitinni, nema að Lilja Guðmundsdóttir hljóp i stað Kristinar. Loks jafnaði Sigrún Sveinsdóttir, mets systur innar i 100 m hlaupi, hljop á 12,4 sek. Ekki skal gleymt að taka það fram, að árangur Ingunnar Einarsdóttur I 200 m hlaupinu 26.1 sek. er hennar bezti. Guðrún Ingólfsdóttir var mjög nálægt Is- landsmeti sinu i kúluvarpi, varpaði 11,44 m, en metið er 11.48. Guðrún var óheppin I kringlu- kastinu, hún átti köst, sem voru vel yfir 35 metra og sem nægt hefðu til sigurs yfir þeirri irsku,en þau voru þvi miður ógild. Kristin Björnsdóttir hljóp 100 m grindahlaupið i stað Láru og náði sinum bezta tima 15,8 sek. og varð fimmta i röðinni. Loks skal þess getið að Sigrún Sveinsdóttir hljóp fyrsta sprettinn i 4 x 400 m boðhlaupinu á 57 sek., sem er frábær timi og langt undir meti. Við ætlum okkur ekkert að vera að afsaka stúlkurnar, en þær eru óreyndar i keppni sem þessari, þar sem fram koma beztu iþróttakonur, flestar um og yfir 20 ára, en okkar lið er á aldrinum 15 til 18 ára. Með auknum æfingum og dugnaði geta þær bætt árangur sinn að mun. Úrslit í Höfn: Úrslit i Evrópukeppni kvenna á Lyngby Stadion á laugardag: 800 m. hlaup: Tracey, Irl. 2:02,9 (irskt met), Jennes, D. 2:05,9, Svinsholt, N. 2:07,3 Nerudova, T, 2:07,9 Tyylela, F, 2:16,7 Ragnhildur Pálsdóttir, Isl. 2:23,1. 100 m hlaup: Purisianen, F, 11,1 (norrænt met) Knapova T, 11,7, Spence, Irl. 12.0, Seim, N, 12.0, Hansen, D. 12,0, Sigrún Sveins- dóttir, Isl. 12,4 (metjöfnun) 400 m hlaup: Morrison, írl. 54,1 Eklund, F, 54,3, Cerchanlanova, T, 55,0, Drange, N, 56,5 Riisberg D, 56,9 Lilja Guðmundsdóttir, ísl. 60,5. Spjótkast: Kumpulainen, F, 54,53, Linkova, T, 51,67, Carstensen, D, 49,16, Ramton, N, 49,03, Arndis Björnsdóttir Isl. 37,75, Murpey, Irl. 24,90. 4 x 100 m boðhlaup: Finnland 46,7, Tékkóslóvakia, 46,8,, Danmörk 46,8, Noregur 47,2, ísland 49,8 (Isl. met), Irland sveitin dæmd úr leik. Hástökk: Hubnerova, T, 1,80, Ejstrup, D, 1,73, Tveit, N. 1,70, Kullas, F, 1,67, Kular, Irl. 1,64, Lára Sveinsdóttir, Isl. 1,61. 200 m hlaup: Purisinen Finnl. 23,1 (jöfnun á norrænu meti) Walshe, Irl. 24,3 Jarosova, T, 24,9, Ingunn Einarsdóttir. Sejrö, D, 24,9, Seim, N, 25,2. Ingunn Einarsdóttir, Isl. 26,1. Kúluvarp: Fibingerova, T, 19,41, Brack, F, 15,67. Fodor, N. 13,75, Jensen D, 12,35, Cooney, Irl. 11,96, Guðrún Ingólfsdóttir, Isl. 11,44 Langstökk Berthelsen, N, 6,19, Suranova, T, 6,10, Helinius, F, 5,93, Murphy, Irl. 5,74, Christiensen, D, 5,58, Sigrún Sveinsdóttir, Isl. 5,31. Kringlukast: Novotna, T, 49,19, Brack F, 44,45, Jeppesen, D, 42,80, Granerud, N, 41,64, Murphy, Irl. 34,69, Guðrún Ingólfsdóttir, ísl., 29,77. 100 m grindahlaup: Lempiainen,: F, 14,2, Krchova, T, 14,2, Hansen, D, 14,2, Wold, N, 14,7, Kristin Björnsdóttir, Isl. 15.8, Murphy, Irl' 16-5- Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.