Fréttablaðið - 24.08.2004, Síða 6

Fréttablaðið - 24.08.2004, Síða 6
6 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR Fimm prósenta hlutur í Íslandsbanka: Snúinn heim til Burðaráss VIÐSKIPTI Orri Vigfússon hefur selt eignarhaldsfélag sitt Urriða til Burðaráss. Urriði á yfir fimm prósenta hlut í Íslandsbanka. Hlutur Urriða var keyptur af Burðarási í febrúar. Orri Vigfússon vill ekki gefa upp fjárhæðir í viðskiptunum. „Það gekk ekki í bili að fá erlenda fjárfesta með mér í þetta eins og til stóð. Íslenska krónan var eitt- hvað að þvælast fyrir þeim. Þeir skildu ekki krónuna,“ segir Orri. Hann segist því hafa ákveðið að innleysa hagnað af eigninni. Gera má ráð fyrir að verðmæti viðskiptanna nemi rúmum fimm milljörðum króna. Gengishagnað- ur gæti numið rúmum hálfum milljarði af viðskiptunum. Ekki liggur heldur fyrir hver fjár- magnskostnaður Orra var af við- skiptunum, en nokkuð ljóst að hann hefur hagnast á þeim. „Ég er hvergi nærri hættur,“ segir Orri og segist enn hafa mikinn áhuga á bankanum. Burðarás ræður nú aftur yfir sama hlut og í febrúar. Ekki hefur verið gefið upp hvort Burðarás hyggist eiga hlutinn eða finna nýj- an kaupanda. Líklegra er að nýr eigandi muni taka hlut Burðaráss innan skamms. ■ Grunnskólanemend- um fækkar lítillega Um 15% landsmanna hófu nám í grunnskólum landsins í gær. Börnin velta lítið fyrir sér yfirvofandi verkfalli kennara, segir skólastjóri Ölduselsskóla. Fræðslustjóri Reykjavíkur segir aldrei auðveldara að ráða kennara. GRUNNSKÓLAR Sumarfríi grunnskóla- nema er lokið. Um 44.450 nemendur stunda grunnskólanám í vetur sem er um 400 færri nemendur en í fyrra. Í Reykjavík eru nemendur um 15.500 og fækkar lítillega. Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslu- stjóri Reykjavíkur, segir ánægju- legt að nú sé í fyrsta sinn á hennar átta ára starfsferli ekki kapphlaup um að klára grunnskólabyggingar áður en skólahald hefjist. „Meðan að einsetningin stóð yfir vorum við með tvær til fjórar byggingar sem þurfti að klára fyrir hvert skólaár. Oft var það tæpt þar sem stuttur byggingartími er á sumrinn,“ segir Gerður. Daníel Gunnarsson, skólastjóri í Ölduselsskóla í Seljahverfi, segir fyrsta skóladaginn hafa verið börn- unum ánægjulegur. „Börnin eru full eftirvæntingar og gleði. Þau eru fegin að koma í skólann aftur og fegin að hitta félagana. Þau hafa gaman að því að takast á við ný verkefni,“ segir Daníel. Um sex- hundruð nemendur stunda nám í fyrsta til tíunda bekk Ölduselsskóla. Gerður segir mjög vel hafa gengið að ráða kennara til starfa í höfuðborginni: „Það hefur gengið betur að manna skólana eftir síð- ustu kjarasamninga því þá urðu talsverðar hækkanir á launum.“ Kennarar standa í kjaraviðræð- um og vofir verkfall yfir skólastarf- inu næsta mánuðinn. Náist ekki kjarasamningar fyrir 20. september skellur verkfall á. Gerður vonar að skólarnir byrji þrátt fyrir það eins og ekkert hafi í skorist: „Ég vona að sjálfsögðu að það verði ekki verk- fall. Ég trúi því að aðilar semji.“ Daníel segir ekki einn einasta krakka í Ölduselsskóla hafa minnst á yfirvofandi verkfall kennara á fyrsta skóladeginum: „Þau eru upp- tekin af núinu og takast á við upp- haf skólaársins. Þau eru með nýjar skólabækur. Nýja stundatöflu og jafnvel nýja bekkjarfélaga.“ Daníel segir 32 nemendur koma úr örðum grunnskóla til náms í Ölduselsskóla. Vel sé tekið á móti börnunum sem hafi ásamt aðstand- endum verið boðið á kynningarfund þar sem skólinn og hverfið hafi ver- ið kynnt. Um 90 manns mættu á kynninguna. gag@frettabladid.is GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,22 0,15% Sterlingspund 129,35 -0,43% Dönsk króna 11,74 -0,47% Evra 87,31 -0,47% Gengisvísitala krónu 121,57 -0,25% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 247 Velta 822 milljónir ICEX-15 3.241 0,49% Mestu viðskiptin Kaupþing Búnaðarbanki hf. 447.258 Actavis Group hf. 74.255 Burðarás hf. 66.436 Mesta hækkun Jarðboranir hf. 3,85% Og fjarskipti hf. 1,43% Austurbakki hf. 1,11% Atorka hf. 1,11% Mesta lækkun Kögun hf. -0,95% Össur hf. -0,65% Kaldbakur hf. -0,63% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ * 10.105,3 -0,05% Nasdaq * 1.844,5 0,35% FTSE 4.405,3 0,83% DAX 3.772,1 1,60% NIKKEI 10.961,0 0,66% S&P * 1.098,7 0,03% * Bandarískar vísitölur kl. 16.20 VEISTU SVARIÐ? 1Hve háa einkunn hlaut Rúnar Alex-andersson í úrslitum á ÓL? 2Hvar býr Árni Magnússon? 3Hvaða trúarbrögð stundar söngkonanMadonna? Svörin eru á bls. 30 – hefur þú séð DV í dag? Ótrúleg breyting! Ruth Reginalds nær óþekkjanleg eftir allar lýtaaðgerðirnar FYRIR EFTIR KRÓNAN ÞVÆLDIST FYRIR Orri Vigfússon segir að í bili hafi ekki gengið að fá erlenda fjárfesta með í hluta- fjárkaup í Íslandsbanka. Erlendir fjárfestar hafi átt erfitt með að skilja íslensku krón- una og því hikað við kaup. DANÍEL GUNNARSSON Skólastjóri Ölduselsskóla segir nemendurna ánægða með að hefja skólastarfið á ný. Þau finni í fríum hvað skólinn skipi stóran sess í lífi þeirra. F21230804 Skóli Einn lést og einn særðist: Sprenging í ferðamannabæ TYRKLAND, AP Tyrkneskur unglingur lést og einn særðist í sprengingu í hafnarbænum Antalya í Tyrklandi, einum vinsælasta ferðamannastað landsins. Staðinn sækja margir Bretar og Þjóðverjar. Sprengingin varð við höfnina þar sem margir fiskibátar og lystisnekkjur eru, nokkur hundruð metrum frá ferða- mannasvæði hafnarinnar. Lögreglan í bænum segist enn vera að rannsaka hvort um hryðjuverk sé að ræða, en ekki er enn vitað hvað olli sprengingunni. Lögreglan hefur einn mann grun- aðan um að vera valdur að spreng- ingunni. ■ Leika eftir skóla: Hlakkar til skólastarfsins SKÓLALÍF Heimir og Bjarki léku sér á skólalóð Ísaksskóla eftir fyrsta skóladaginn. Þeir eru báðir sjö ára og stunda nám í Háteigsskóla. Heimir mundi ekki hvað honum hafi þótt skemmtilegast í skólan- um síðasta vetur. „En ég er búinn að fá nýja derhúfu, peninga í Kb banka, blýant og strokleður. Hjá ömmu minni fékk ég möppu til að geyma hluti í og frá mömmu fékk ég skrúfblýant.“ Bjarki er ánægðastur með nýju skólabækurnar. Honum finnst gaman að byrja aftur í skólanum: „Þá hitti ég félagana aftur.“ Bjarki var fámáll um sumarið en sagði útilegu með pabba standa uppúr. Heimir heimsótti sveit og fylgdist með hestum. ■ FÉLAGAR Í FÓTBOLTA Ungu mennirnir Bjarki og Heimir hlakka mikið til að byrja aftur í skólanum. Þeir sögðu að þeir myndu enn eftir því sem var kennt á síðasta ári og Heimir sagði að hann kynni næstum því að lesa. Rangt var farið með í Frétta- blaðinu í gær að fólkið sem slas- aðist í bílveltu við bæinn Steina undir Eyjafjöllum hefði verið flutt með þyrlu til Reykjavíkur. Hið rétta er að fólkið var flutt með sjúkrabíl. ■ ■ LEIÐRÉTTING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.