Fréttablaðið - 24.08.2004, Side 12
24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Tvöföldun Reykjanesbrautar:
Tafir á frágangi við Hafnarfjörð
FRAMKVÆMDIR Töluverðar tafir
hafa orðið á frágangi á umhverf-
inu kringum Reykjanesbraut við
Kirkjugarð Hafnarfjarðar í
sumar. Til stóð að öllum frágangi
væri lokið 1. júlí en enn þá á eftir
að ganga frá umhverfinu eftir
framkvæmdirnar, sem tengjast
tvöföldun Reykjanesbrautar.
Íbúar í grennd eru orðnir
þreyttir á töfunum en að sögn
Gísla Guðmundssonar hjá Ístaki,
umsjónarmanni verksins, hafa
orðið tafir á verklokum í sumar af
ýmsum orsökum. Hann segir nú
vera unnið að því að þekja svæðið
og gróðursetja og ganga frá svæð-
inu. „Það hefur aðeins teygst á
þessu,“ segir Gísli.
Gísli segir að ákveðið hafi ver-
ið að fresta lokafrágangi á svæð-
inu að ráðum garðyrkjufræðinga
en helstu framkvæmdum lauk
fyrir nokkru síðan. Umferðar-
mannvirkið sjálft, auk göngustíga
í kring, sé þegar komið í gagnið.
Að sögn Gísla verður öllum
frágangi lokið innann nokkurra
vikna. „Þetta verður allt klárt í
september,“ segir hann. ■
Vill ekki loka lista-
verk í glerbúrum
Ránið í Munch-safninu í Ósló vekur spurningar um öryggismál í íslenskum söfn-
um. Forstöðumaður Listasafns Íslands segir öryggismálin í ágætum farvegi.
ÓLAFUR KVARAN
Ólafur segir að það sé alltaf ákveðin áhætta fólgin í því að sýna listaverk almenningi. Hann segist samt ekki vera talsmaður þess að loka
verkin inni í glerkössum á listasöfnunum.
flugfelag.is
kr.
EGILSSTAÐA
6.400
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.400kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.500 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
25. - 31. ágúst
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
55
47
08
/2
00
4
kr.
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
3.000
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
kr.
GRÍMSEYJAR
3.000
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
LISTASÖFN Listaverkaránið í Munch-
safninu í Ósló um helgina þar sem
listaverkum, sem metin eru á
nokkra milljarða króna var stolið,
er ákveðin áminning um að for-
svarsmenn listasafna þurfa að vera
á varðbergi að sögn Ólafs Kvarans,
forstöðumann Listasafns Íslands.
„Að sjálfsögðu eru ákveðnar ör-
yggisreglur í gildi hér en ég held
að það sé nú stefnan hjá flestum
sem geyma svona verðmæti að af-
hjúpa ekki nákvæmlega hvernig
öryggisvörnum er háttað,“ segir
Ólafur. „Ég get samt sagt að ég tel
að öryggiskerfið hjá okkur sé
ágætt.“
Ólafur segir að það sé alltaf
ákveðin áhætta fólgin í því að sýna
listaverk fyrir almenning. Hann
segir að í sumum löndum séu mál-
verk til dæmis lokuð inni í gler-
kössum en slíkt hafi ekki viðgeng-
ist hérlendis eða á Norðurlöndun-
um.
„Ég er ekki talsmaður þess að
loka verkin inn í glerbúrum því það
truflar aðgengi og upplifun al-
mennings á verkunum. Ég er hins
vegar talsmaður þess að fyllsta ör-
yggis sé gætt en það er samt
ekkert kerfi það öruggt að það geti
fullkomlega tryggt öryggi verka
svo framarlega sem það er verið að
sýna þau. Eina leiðin væri þá bara
að loka þau inni í bankahólfum en
það viljum við ekki gera.“
Ólafur segir að öryggisgæslan
hér snúist meðal annars um það að
eftirlit sé haft með gestum þegar
þeir komi inn í safnið.
„Það er alltaf matsatriði hvað á
að ganga langt. Í sumum söfnum
þarf fólk að fara í gegnum málm-
leitartæki en ég held að slík tæki
verði ekki sett upp hér - allavega
ekki í náinni framtíð. Allir svona at-
burðir minna okkur á að það þarf að
gæta öryggis. Samtímis verðum við
að vera meðvituð um að við getum
haft áhrif á upplifun almennings á
listinni með þeim öryggiskerfum
sem við setjum upp. Galdurinn er
að vera með gott kerfi sem almenn-
ingur verður ekki var við.“
Ólafur segist telja að erfitt verði
fyrir ræningjana í Noregi að koma
verkunum í verð.
„Þegar svona þekktum verkum
er stolið er nánast enginn markaður
fyrir þau. Ég held að þetta sé bara
spurning um hugsanlegt lausnar-
gjald fyrir verkin. Ég á mjög erfitt
með að setja mig í spor starfsbróð-
ur míns í Ósló en þetta er náttúrlega
gríðarlegt áfall. Þegar svona gerist
eru menn kannski fyrst og fremst
hræddir um að verkin skemmist.“
trausti@frettabladid.is
FRAMKVÆMDIR TEFJAST
Til stóð að ljúka öllum framkvæmdum við
Hafnarfjarðarkirkjugarð fyrir 1. júlí. Enn á
eftir að vinna talsvert við frágang fram-
kvæmdarinnar og verður svæðið ekki full-
frágengið fyrr en í september.
Merkasta safnið
Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og
leggur megináherslu á 19. og 20.
aldar list, íslenska og erlenda.
Listasafn Íslands á merkasta safn ís-
lenskra verka hér á landi eftir alla
helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.
Það hefur einnig að geyma vaxandi
safn erlendra verka eftir heimskunna
listamenn, s.s. Pablo Picasso, Edvard
Munch, Karel Appel, Hans Hartung,
Victor Vasarely, Richard Serra og Ric-
hard Tuttle.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.