Fréttablaðið - 24.08.2004, Side 36
20 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Við vorkennum...
... Jóni Arnari Magnússyni sem ætlar ekki að takast að klára fer-
ill sinn á skemmtilegu nótunum. Eftir að hafa mistekist að klára
fimm af síðustu sex stórmótum er óvíst hvort Jón Arnar geti
klárað feril sinn með vel heppnaðri þraut á alvörumóti.
Við skiljum ekki ...
... hvernig Jóhannes Valgeirsson geti verið FIFA-
dómari eftir hverja skelfingarframmistöðu sína að
undanförnu. Ef marka má dómgæslu hans í sumar
þá ætti hann í raun aðeins að dæma í neðri
deildum og alls ekki stórleiki sumarsins.
„Hann segir eftir hálfa mínútu yfir
allan völlinn að hann ætli að reka
mig útaf.“
Stefán Þór Þórðarson um dómarann Jóhannes
Valeirsson sem gaf honum tvö gul á sömu mínútu.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Þriðjudagur
ÁGÚST
ÓLYMPÍULEIKAR „Ég hef fyrst og
fremst ekki náð að klára þrautir
vegna þessara blessuðu meiðslna
og það er í rauninni ekkert mál að
klára þraut þegar maður er heill
eins og ég er núna. Því stefni ég
ótrauður á að klára þetta mót,“
sagði tugþrautarkappinn Jón Arn-
ar Magnússon við blaðamann
Fréttablaðsins tveim dögum áður
en hann hóf keppni í tugþraut á
ÓL.
„Ætli ég sé ekki bara að verða
of gamall í þetta,“ sagði Jón Arn-
ar, 35 ára, í samtali við Fréttablað-
ið í gær. „Þetta var eitthvað sem
ég bjóst alls ekki við. Ég átti í
mesta lagi von á að fá eitthvað í
bakið en þetta var það allra síð-
asta sem ég átti von á.“
Meiðsli aftan í læri
Jón Arnar varð að draga sig úr
keppni vegna meiðsla en hann
tognaði aftan á læri í langstökkinu
sem var aðeins önnur grein tug-
þrautarinnar. Þetta voru síðustu
ólympíuleikar Jóns en hann ætlar
í framhaldinu að draga saman
seglin í rólegheitum. Ástæðan
fyrir bjartsýni Jóns var að hann
var loks að mæta heill heilsu á
stórmót en það hafði hann ekki
gert síðan 1998. Allur undirbún-
ingur hafði þar að auki gengið frá-
bærlega og ekki útlit fyrir annað
en að Jón myndi gera fína hluti.
Sjálfur stefndi hann inn á topp
tíu. Með bjartsýni í farteskinu
mætti Jón galvaskur til leiks í
gær. Hann byrjaði á því að hlaupa
100 metrana á 11,05 sekúndum
sem var vel viðunandi enda hans
besti tími á árinu. Sá tími setti
hann í 25. sæti í heildarkeppninni.
Þá var komið að langstökkinu.
Fyrsta stökkið var ekki nógu gott
– 7,12 metrar en Jón á best 7,78 á
árinu – og í öðru stökkinu gerðist
eitthvað.
„Þá fann ég einhvern fiðring í
lærinu en svo ætlaði ég að taka
það með látum í síðasta stökkinu.
Ég gerði það en lærið einfaldlega
þoldi það ekki. Það gerðist eitt-
hvað í uppstökkinu hjá mér. Þetta
var ferlega skrýtið,“ sagði Jón
Arnar. Skagfirðingurinn sterki
beit á jaxlinn í kúluvarpinu og
kastaði þrisvar sárþjáður.
Lengsta kastið hans var 14,98
metrar, sem er tæpum metra frá
hans besta á árinu.
Þegar þessum þrem greinum
var lokið var Jón Arnar í 19. sæti
með 2480 stig. Nokkrir klukku-
tímar voru í fjórðu greinina og því
var tækifærið notað og farið með
Jón til Brynjólfs Jónssonar lækn-
is. Hann staðfesti óttann. Jón var
tognaður aftan á læri og varð því
að hætta keppni.
„Ég hefði svo sem getað farið í
gegnum þrautina og eyðilagt eitt-
hvað. Það er bara ekkert fyrir
mig. Ef ég get ekki verið með á
100% snúningi þá er þetta ekkert
gaman. Ég er ekki í þessu til þess
bara að vera með. Maður er að
keppa til þess að vera á meðal tíu
bestu eins og ég hef verið síðustu
tíu ár,“ sagði Jón Arnar sem hefur
verið í landsliðinu í 20 ár.
Klukkutíma þunglyndissvefn
Hann neitaði því ekki að það
hefði verið áfall að fá slæmu
fréttirnar beint í æð. „Þetta var að
sjálfsögðu mikið áfall og ég tók
hérna klukkutíma þunglyndis-
svefn. Svo þegar ég vaknaði
ákvað ég að vera ekkert að svekk-
ja mig á þessu. Svona er lífið.
Hlutirnir gerast bara og maður
ræður ekkert við það. Maður get-
ur bara gert sitt besta Það er samt
erfitt að kyngja þessu því það
liggur blóð, sviti og tár í undir-
búningnum og ég var verulega
bjartsýnn á sjálfan mig að þessu
sinni,“ sagði Jón Arnar Magnús-
son. henry@frettabladid.is
VONBRIGÐIN UPPMÁLUÐ Það var erfitt fyrir Jón Arnar Magnússon að sætta sig við meiðslin sem orsökuðu það að hann varð að
hætta keppni. Fyrir neðan sést hann í 100 metra hlaupinu sem gekk vel. Fréttablaðið/Teitur
Er Jón orðinn of gamall?
Jón Arnar Magnússon dró sig úr keppni í tugþrautinni vegna meiðsla eftir þrjár greinar. hann
hefur ekki klárað tvær síðustu tugþrautarkeppnir sínar á Ólympíuleikum
05.55 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá keppni í
tugþraut.
08.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af viðburðum
gærdagsins. e.
08.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá leik Ís-
lands og Brasilíu um níunda
sætið.
09.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá hátíðar-
sýningu fimleikafólks.
11.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Handbolti karla, átta liða
úrslit.
13.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Sýnt frá keppni í tugþraut.
13.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Handbolti karla, átta liða
úrslit.
15.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt frá keppni morg-
unsins.
16.40 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá keppni í
frjálsum íþróttum.
17.35 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
18.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Framhaldið útsendingu frá
keppni í frjálsum íþróttum.
18.50 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Bein útsending frá forkeppni
Meistaradeildar Evrópu.
21.00 Mótorsport á Sýn. Umfjöllun
um íslenskar akstursíþróttir.
21.30 Ryder Cup 2004 á Sýn. Fylgst
er með kylfingunum sem verða í
eldlínunni á Ryder-Cup.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
22.20 Ólympíukvöld á RÚV. Í þætt-
inum er fjallað um helstu við-
burði á Ólympíuleikunum í
Aþenu. Umsjón hefur Logi Berg-
mann Eiðsson.
22.50 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Ísland og Brasilía í leik um
níunda sætið. e.
23.15 Sterkasti maður heims á Sýn.
Kraftajötnar reyna með sér í
ýmsum þrautum.
00.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af keppni dags-
ins.
FÓTBOLTI Michael Owen er ánægður
með að hafa skilið við Liverpool, lið
sitt til 13 ára, og farið yfir til Real
Madrid. Hann segir það hafa verið
nauðsynlegt fyrir sig sem mann-
eskju og leikmann. „Þetta var orðið
fullþægilegt hjá Liverpool. Partur
af mér sagði að ég ætti bara að
klára ferilinn þar. Þar líkaði öllum
vel við mig og ég þurfti ekki að
hafa neinar áhyggjur,“ sagði Owen.
„Nú er ég kominn í þá stöðu að
þurfa að hafa fyrir hlutunum og að-
laga mig nýju liði. Það er mjög
spennandi en að sama skapi reynir
það töluvert á taugarnar“. Owen
segist dást að framherjum Real
Madrid og að þeir muni veita hon-
um verðuga keppni. ■
MICHAEL OWEN
Michael Owen segist vera ánægður hjá
Real Madrid en þar hittir hann fyrir enska
landsliðsfyrirliðann David Beckham.
Nauðsynleg ákvörðun hjá Michael Owen:
Var orðið fullþægilegt