Fréttablaðið - 24.08.2004, Page 42
26 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Ég veit ekki alveg hvað gerðist en
það er augljóst að Liam Howlett
hefur lent í heljarinnar tilvistar-
kreppu. Þegar tónlistarmenn láta
sig hverfa í sjö ár vill maður trúa
því að þeir séu að nýta tímann í að
þróa list sína áfram. Þannig að
þegar þeir gefa út nýjar plötur
setur maður þær á fóninn í von
um að maður finni þann neista
sem skaut þeim upp á stjörnuhim-
ininn. Þetta er ekki tilfellið með
Prodigy, þessi plata lyktar eins og
hún sé komin langt fram yfir síð-
asta söludag.
Fyrir mig skiptir engu máli þó
að Keith Flint og Maxim séu fjar-
verandi. Prodigy fyrir mér er
Liam Howlett, því ver og miður í
þetta skiptið, því hann er á góðri
leið með að sigla í strand.
Að vissu leyti er tónlist
Prodigy einkennandi fyrir síðasta
áratug. Samansuða af rokki og
einfaldri elektróník sem var ný-
stárlegt fyrir um 15 árum síðan.
Ég er ekki með þessu að segja að
ekki sé ennþá hægt að gera góða
plötu með gömlu tækninni, en ef
þú finnur ekki hvöt hjá þér til
þess að þróa hljóm þinn þá er líka
eins gott að lagasmíðarnar standi
undir því. Þær gera það alls ekki á
nýju Prodigy plötunni. Maður
hlýtur að spyrja sig hvað Liam
var eiginlega að gera allan þennan
tíma? Maður fær það á tilfinning-
una að hann hafi ekki snert við
tækjunum sínum eftir að hann
varð fjölskyldufaðir, og hafi ein-
faldlega dustað rykið af gamla
draslinu og ákveðið að gera plötu.
Ekki nógu gott kallinn minn!
Á þessari plötu er bara eitt gott
lag, Hot Ride þar sem Juliette
Lewis vitnar skemmtilega í Burt
Bacharach, restin hljómar bara
eins og Howlett hafi sótt afgangs-
lög í gamla Prodigy lagerinn og
skellt þeim á plötu. Ein stærstu
vonbrigði ársins, algjört rúnk.
Birgir Örn Steinarsson
Sjö ára ógæfa?
PRODIGY:
ALWAYS OUTNUMBERED,
NEVER OUTGUNNED
[ MYNDBÖND ]
VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
0 First Dates
GAMAN
Paycheck
SPENNA
School of Rock
GAMAN
Gothika
SPENNA
Along Came Polly
GAMAN
Runaway Jury
SPENNA
Out of Time
SPENNA
The Whole Ten Yards
GAMAN
Looney Tunes: Back in Action
GAMAN
Touching the Void
DRAMA
50 FIRST DATES
Adam Sandler kann ekki að koma orðum að því
að mótleikkona er með eitthvað á milli tannanna.
FRÁBÆR SKEMMTUN
SÝND kl. 5.40, 8, 9.10 og 10.20 B.I. 14
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA
HHH1/2 Fréttablaðið
"Þetta er mynd sem
fékk mig til að hugsa"
Sigurjón Kjartansson
HHH G.E. - ísland í bítið/Stöð 2
HHH kvikmyndir.com
HHH -
Ó.H.T. Rás 2
GOODBYE LENIN kl. 5.40, 8 og 10.20
SÝND kl. 8 og 10.30 B.I. 14
SÝND kl. 6 M/ÍSL.TALI
SÝND kl. 6 M/ENSKU.TALI
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
JERRY BRUCKHEIMER
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.15
47.000 GESTIR
Þetta var ekki
hennar heimur..
en dansinn
sameinaði þau!
Sjóðheit og
seiðandi
skemmtun!
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýraspennumynd!
SÝND kl. 4 og 6 M/ÍSLENSKU TALI
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
Tvær vikur á toppnum
SÝND kl. 8 og 10.30 B.I. 12
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14
SÝND Í LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.40
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10.10
HARRY POTTER 3 SÝND kl. 5.30 M/ÍSL. TALI SÝND kl. 10.10 M/ENSKU TALI
KING ARTHUR SÝND kl. 8 og 10.30 B.I. 14
SHREK 2 SÝND kl. 4 og 6 M/ÍSL. TALI SÝND kl. 3.40 og 8 M/ENSKU TALI
SÝND kl. 4 og 6 M/ÍSLENSKU TALI
HHH1/2
Fréttablaðið
HHH
G.E. Stöð 2
HHH
kvikmyndir.com
1/2
Fr tt l ié a a
. . t
i ir.
Ofurskutlan
Halle Berry
er mætt
klórandi og
hvæsandi!
SÝND kl. 8 og 10.30 B.I. 14
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 8 og 10.30SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
Ofurskutlan Halle Berry er mætt klórandi
og hvæsandi sem Catwoman sem berst
við skúrkinn Laurel sem leikin er af
Sharon Stone..
HHHH HJ, MBL.
„Fjörugt bíó“ ÞÞ, FBL.
Laugavegi 32 sími 561 0075
6. sýning: fim. 26. ágúst kl. 20.00
7. sýning: lau. 28. ágúst kl. 20.00
Allra síðasta sýning
Örfá sæti laus
Björk Guðmundsdóttir sagði í
viðtali við Neon magazine að
mikilvægt væri fyrir ungar
mæður að átta sig á því að þær
geti átt sitt líf og verið í burtu
frá börnum sínum.
„Þegar ég eignaðist dóttur
mína sagði allt í höfðinu á mér
að hún væri núna það mikilvæg-
asta í alheiminum,“ segir Björk í
viðtalinu. „En eftir sex mánuði
eða ár, þá verður maður að geta
farið frá barni sínu.“
Björk segir svo í viðtalinu að
hún sé byrjuð að fara út og
skemmta sér aftur. „Við partí-
mömmurnar kunnum að
skemmta okkur,“ segir hún og
viðurkennir að hún þurfi oft að
koma félögum sínum í stuð. Þá
dugi setningar eins og; „Hey, ég
er með barnapíu heima og á
tvær klukkustundir eftir. Fáum
okkur nokkur tequila skot! Við
mömmurnar viljum dansa!“ ■
Björk er partímamma
■ FÓLK
BJÖRK
Björk segir í viðtali við tímaritið Neon að þó
svo að dóttir hennar Ísidóra, sé það mikil-
vægasta í tilverunni, sé nauðsynlegt að skilja
hana eftir hjá barnapíunni annars lagið.
TOPP 10 - VINSÆLUSTU LEIGUMYNDBÖNDIN -
VIKA 34
Skítalykt af skinkunni
ELLEFTI Í ÓLYMPÍULEIKUM
HENRY BIRGIR GUNNARSSON BLOGGAR FRÁ AÞENU
Skellti mér á úrslit í fjölþraut
karla í fimleikum. Mér hefur
ávallt þótt gaman að horfa á fim-
leika á ólympíuleikum enda ekki
boðið upp á nein smá tilþrif. Því
var mikil tilhlökkun að fara á
þetta kvöld. Bandaríkjamaðurinn
Paul Hamm þótti nokkuð sigur-
stranglegur en hann kastaðist svo
gott sem úr leik í stökkinu þegar
hann var heppinn að lenda ekki á
dómurunum í lendingunni. Ein-
kunnin sem hann fékk fyrir stökk-
ið var samt ótrúlega há. Hamm
var í mikilli keppni við tvo Kóreu-
búa og einn Kínverja. Sá kínverski
gerði álíka mistök á einu áhaldinu
og fékk mjög slaka einkunn og var
úr leik. Furðulegt fannst manni
því ekki voru mistökin meiri en
hjá Hamm. Annar Kóreubúinn var
síðan með pálmann í höndunum
fyrir lokagreinina en þar varð
honum aðeins á og fékk mun lægri
einkunn en búist var við. Hinn fé-
lagi hans fékk líka lúmskt lága
einkunn. Hamm var síðan síðastur
allra og fór á kostum. Það var löng
bið eftir einkunninni sem var
mjög há og setti hann í efsta sætið
0,12 stigum á undan næsta manni.
Það var þvílík skítalykt af öllu
málinu og fékk maður á tilfinning-
una að þeir væru að reikna út
hvað hann þyrfti að fá hátt til að
sigra. Dómararnir voru búnir að
opna fyrir þennan möguleika með
því að gefa hinum of lága einkunn
og þeir gengu síðan alla leið. Því-
líkur skandall að mér fannst en
skandallinn gerði þó frábært,
dramatískt kvöld enn betra.
Nokkrum dögum eftir keppnina
játuðu dómararnir síðan mistökin
og voru í kjölfarið sendir heim.
Verður spennandi að sjá hvort
skinkan hefur samvisku í að halda
gullinu. ■