Fréttablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Hringdu í síma 550 5000 Skráning fer einnig fram á skrifstofu DV í Skaftahlið 24, Reykjavík.
Tryggðu þér áskrift - og veglega gjöf - í dag!
Allir vinna - engin núll!
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Landsbanki Íslands hlýtur
Starfsmenntaverðlaunin árið 2004
Starfsmenntaráð og Mennt hafa veitt
Landsbanka Íslands Starfsmenntaverðlaunin
árið 2004 í flokki fyrirtækja. Verðlaunin eru
veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði
starfsmenntunar innan fyrirtækja á Íslandi.
Frumskilyrði árangursríkrar fræðslustarfsemi
innan fyrirtækja er vilji, áhugi og metnaður
starfsmanna. Landsbankinn er stoltur af
starfsfólki sínu og óskar því innilega til
hamingju með Starfsmenntaverðlaunin 2004.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L‡
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
58
59
09
/2
00
4
Stólaleikur
– skák og mát
Stólaleikur var vinsæll leikur íbarnaafmælum þegar ég var
barn. Leikurinn fór þannig fram,
eins og margir muna, að stólum
var raðað þannig að hægt var að
ganga í kringum þá. Stólarnir
voru hafðir einum færri en leik-
mennirnir. Lag var leikið, yfir-
leitt af kassettutæki eins og þau
voru þá kölluð, og leikmenn
gengu í kringum stólana þangað
til lagið stöðvaðist. Þá áttu allir
að reyna að setjast í stól og sá
sem var svifaseinastur og því
stólalaus var úr. Þá var stólum
fækkað um einn og leikurinn hélt
áfram þangað til einn stóð eftir
sem sigurvegari.
Í DAG er ríkisstjórnin einmitt í
slíkum stólaleik. Stólaleikur rík-
isstjórnarinnar er reyndar aðeins
flóknari en afmælisleikurinn
góði og býður svo sannarlega
upp á fleiri afbrigði og leikflétt-
ur. Kassettutækið er líka illa
fjarri góðu gamni. Eitt atriði er
til dæmis mjög ólíkt og það er að
leikmenn skiptast í tvö lið (og
jafnvel fleiri stundum) sem
hvort eða hvert um sig hefur
einn foringja. Foringjarnir geta
samið um allt mögulegt sín á
milli, til dæmis fjölda leikmanna
í liðum.
ANNAR foringinn er aðalfor-
inginn og hinn er varaforingi.
Þeirra stöðu má eiginlega líkja
við stöðu kóngs og drottningar í
tafli. Kóngurinn er að sjálfsögðu
aðalmaðurinn um hann snýst
leikurinn að mestu þrátt fyrir að
hann haldi mikið til kyrru fyrir.
Hlutverk drottningarinnar er
hins vegar meðal annars að æða
aftur og fram um leikborðið og
verja sinn kóng.
STÓLALEIKUR dagsins í dag
fór þannig að einum leikmanni
var skipt inn á og annar stóð eft-
ir stólalaus þrátt fyrir að stólum
hefði alls ekki fækkað í leiknum.
Svo er kóngurinn orðinn drottn-
ing og drottningin kóngur, sem
er ekki síður skemmtileg flétta.
Það verður forvitnilegt að fylgj-
ast með þessum leik til loka og
ekki verður síður athyglisvert að
sjá hvernig nýju drottningunni
gengur að verja sinn kóng. ■
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR