Fréttablaðið - 11.10.2004, Page 25
MÁNUDAGUR 11. október 2004 25
Engin mistök hjá
Schumacher í Japan
Enginn veitti heimsmeistaranum Michael Schumcher alvarlega keppni í japanska
kappakstrinum á sunnudaginn. Eina keppnin sem eftir er í Brasilíu er nánast formsatriði.
FORMÚLA 1 Hafi Michael Schu-
macher lent í ógöngum í leið sinni
að sjöunda heimsmeistaratitli sín-
um í Formúlu 1 kappakstri að und-
anförnu komst hann á rétta braut
aftur með góðum sigri á Suzuka
brautinni í Japan um helgina. Var
sigur kappans aldrei alvarlega í
hættu en næstur í mark kom hinn
bróðirinn, Ralf Schumacher.
Keppnin í Japan var að mörgu
leyti frábrugðin öðrum slíkum
þar sem tímatökur og keppnin
sjálf fóru fram sama daginn.
Ástæðan er mikill fellibylur sem
gekk yfir Japan á laugardaginn
með þeim afleiðingum að vatns-
elgur myndaðist víða á brautinni
sem keppa átti á.
Var því brugðið til þess ráðs að
fresta tímatökum aðfaranótt laug-
ardagsins og klára þær áður en
keppnin hæfist síðustu nótt. Biðu
þess vegna margir áhugamenn
spenntir enda gafst ökumönnum
mun minni tími til að fullprófa
vélar sínar og læra á brautina en
venja er. Gaf það góð fyrirheit um
að óvænt úrslit gætu litið dagsins
ljós en svo varð ekki.
Michael Schumacher náði
ráspól í tímatökunum og náði
strax forystu í keppninni. Eftir
það þurfti hann aldrei að líta til
baka. Bróðir hans, Ralf, barðist
allan tímann um annað sæti við
Jenson Button hjá BAR-Honda en
Button virtist aldei eiga nóg eftir
til að gera alvarlega atlögu að
Williams bíl Ralfs.
Að keppninni lokinni mátti sjá
bros læðast yfir varir Michael
Schumacher en honum hefur
gengið miður í síðustu tveimur
keppnum.
„Það sem gerði þetta forvitni-
legra var óvissan um brautina
vegna þess að tímatökurnar og
keppnin fóru fram sama daginn.
Við höfðum enga hugmynd um
hvernig andstæðingar okkar
hygðust bregðast við aðstæðum
og við urðum að vinna okkar eigið
skipulag öðruvísi en við höfum
alltaf gert. Það setti strik í reikn-
inginn en við vissum að með góðri
byrjun þá ætti allt að ganga eftir,“
sagði Schumacher. ■
JAPANSKI KAPPAKSTURINN:
Úrslit
1. Michael Schumacher Ferrari 1:24:26
2. Ralf Schumacher Williams +14.0
3. Jenson Button BAR Honda +19.6
4. Takuma Sato BAR Honda +31.7
5. Fernando Alonso Renault +37.7
Staða ökumanna
Michael Schumacher, Ferrari 146 stig
Rubens Barrichello, Ferrari 108 stig
Jenson Button, BAR 85 stig
Fernando Alonso, Renault 54 stig
Juan Pablo Montoya, Williams 48 stig
Staða bílasmiða
Ferrari 254 stig
BAR 116 stig
Renault 100 stig
EINOKUN Michael Schumacher sigraði kappaksturinn í Japan tiltölulega auðveldlega og
heldur áfram einokun sinni í greininni. Fleiri og fleiri óttast að áhugi almennings á For-
múlu 1 minnki komi ekki fram einhver sem getur veitt kappanum alvarlega keppni á
brautinni.