Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 – Veffang: visir.is
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KÓLNANDI VEÐUR með skúrum víða
en slydduéljum á Vestfjörðum. Rofar smám
saman til norðaustan til síðdegis. Hiti 2-11
stig, svalast á Vestfjörðum. Sjá síðu 6
13. október 2004 – 280. tölublað – 4. árgangur
DEILDAMÚRAR ROFNIR Fyrrum eig-
andi Véla og þjónustu segir fjárfestingasvið
KB banka hafa nýtt sér upplýsingar við-
skiptasviðs til að reyna yfirtöku á fyrirtæk-
inu. Yfirlögfræðingur bankans segir málið
snúast um innheimtu skulda. Sjá síðu 2
BARNABÆTUR ÓBREYTTAR Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ekki
sé gert ráð fyrir að barnabætur verði hækk-
aðar á næsta ári. Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingar, segir slíka hækkun
síðast hafa verið boðaða í fyrradag. ASÍ
undrast afstöðu Halldórs. Sjá síðu 4
HÆSTARÉTTARDÓMI SNÚIÐ Kjartan
Ásmundsson, fyrrverandi sjómaður, vann í
gær mál á hendur íslenska ríkinu fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið
mátti ekki svipta hann lífeyrisréttindum
bótalaust. Við erum himinlifandi, segir lög-
maður Kjartans. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 16
Myndlist 16
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Sigmundur Hansen:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tréskurður á
miðvikudögum
● nám
UMHVERFISMÁL Forráðamenn
sveitarstjórnar Ölfuss tilkynntu
fulltrúum sveitarfélaga sem eiga
aðild að Sorpstöð Suðurlands að
stöðinni yrði lokað 25. október og
hafin innheimta útistandandi
dagsekta ef ekki yrði kominn vís-
ir að samkomulagi um urðun
sorps. Þetta var tilkynnt síðdegis
í gær á fundi sem sveitarfélag
Ölfuss boðaði til. Mikill hiti er
vegna málsins.
Hjörleifur Brynjólfsson, odd-
viti sveitarstjórnar Ölfuss, stað-
festi þetta við Fréttablaðið. Hann
sagði dagsektir á hendur sorp-
stöðinni vera frá maí 2002 til
september 204 og þær væru
orðnar 42,6 milljónir króna.
„Við erum að framfylgja
þeirri skyldu okkar að bregðast
við brotum á deiliskipulagi sem
ekki hefur verið farið eftir við
urðun hjá Sorpstöðinni,“ sagði
hann. „Við erum með skipulags-
yfirvaldið á þessu svæði og
þolinmæði okkar er þrotin.“
Ágreiningur hefur verið um
starfsemi stöðvarinnar í gegnum
tíðina, einkum vegna hæðar
haugsins, sem Hjörleifur sagði
vera kominn þrjá til sjö metra
yfir leyfilegri hæð.
Einar Njálsson, stjórnarfor-
maður Sorpstöðvarinnar, sagði
að stöðin væri með fullgilt
starfsleyfi og alls ekki verið að
brjóta deiliskipulag. Varðandi
dagsektirnar sagði hann mjög
vafasamt að möguleiki væri á að
innheimta þær eftir svo langan
tíma. - jss
PÁSKAEYJUFYRIRLESTUR Elena
Ararki, einn af síðustu afkomendum
„Eyrnalanganna“ á Páskaeyju, segir frá eyj-
unni og sýnir myndir þaðan í Alþjóðahús-
inu klukkan átta í kvöld. Alþjóðahúsið er á
Hverfisgötu 18 í Reykjavík.
VIÐSKIPTI Lífeyrissjóður verslunar-
manna seldi í gær fjögurra pró-
senta hlut í Íslandsbanka fyrir
tæpa fimm milljarða króna. Kaup-
endur voru annars vegar hópur ein-
staklinga sem eru stórir hluthafar í
bankanum og hins vegar Straumur
fjárfestingarbanki. Hvor hópur um
sig kaupir tveggja prósenta hlut.
Þessir aðilar munu tilbúnir til þessa
að vinna saman að stjórn bankans.
Þar með er hópur bankaráðs-
mannanna Einars Sveinssonar,
Karls Wernerssonar og Jóns
Snorrasonar með undirtökin í
stjórn Íslandsbanka. Þessir banka-
ráðsmenn hafa stutt forstjóra bank-
ans, Bjarna Ármannsson. Auk
þeirra kaupir Steinunn Jónsdóttir
hlut í bankanum. Hún er af Byko-
fjölskyldunni og má búast við að sú
fjölskylda komi í framhaldinu í
auknum mæli að stjórn bankans og
vinni með þessum hópi. Hópurinn
ræður nú um þriðjungi atkvæða
hluthafa.
Andstæð fylking innan bankans
hefur verið undir forystu Víglund-
ar Þorsteinssonar sem situr fyrir
hönd Lífeyrissjóðs verslunar-
manna í bankaráðinu. Þessi hópur
fjögurra bankaráðsmanna mun
fara út úr stjórn bankans á hlut-
hafafundi sem verður boðaður
fljótlega.
Stjórn Lífeyrissjóðs versluna-
manna barst tilboð um kaup á
tveggja prósenta hlut í Íslands-
banka. Innan stjórnarinnar hefur
verið andstaða við að fulltrúar
sjóðsins skipi sér í fylkingar innan
bankaráðs Íslandsbanka. Tekist var
á í stjórn sjóðsins um söluna, en
einróma niðurstaða varð að selja
allt að fjögurra prósenta hlut til
hæstbjóðanda. Efir söluna á líf-
eyrissjóðurinn 2,77 prósenta hlut í
bankanum.
Einar Sveinsson, stjórnarfor-
maður Íslandsbanka, segir að með
kaupunum sé kominn góður kjöl-
festuhópur að bankanum sem geti
unnið saman að hagsmunum bank-
ans. „Mér finnst ekki slæmt að
Straumur eigi þarna sinn hlut. Það
er þá komið andlit á bak við þann
hlut og eðlilegt að í framhaldinu
ræði menn hvernig stjórn verði sett
saman.“
haflidi@frettabladid.is
Ágreiningur um sorp á Suðurlandi:
Hóta að loka sorpstöðinni
Fylking forstjórans
ræður Íslandsbanka
Öfl innan Íslandsbanka sem hafa stutt forstjóra bankans náðu á ný yfirhönd í stjórn bankans
þegar Lífeyrissjóður verslunarmanna seldi fjögurra prósenta hlut. Í kjölfarið munu fjórir
bankaráðsmenn fara úr stjórn bankans.
GLÆSILEGUR SIGUR Á SVÍUM Íslenska ungmennalandsliðið vann glæsilegan 3-1 sigur á Svíum á Grindavíkurvelli í gær. Hannes Þ.
Sigurðsson, sem hér sést fagna öðru marki sínu, fór á kostum og skoraði þrennu. Hann skoraði einnig þrjú mörk gegn Búlgörum í fyrsta leik
Íslands í undankeppni Evrópumóts landsliða 21 árs leikmanna og yngri og hefur því skorað öll mörk Íslendinga í mótinu það sem af er.
Sjá síðu 22
Undanþágunefnd fundar:
Tuttugu mál
tekin fyrir
KENNARAVERKFALL Tuttugu beiðnir
um undanþágur vegna verkfalls
kennara verða teknar fyrir á
fundi undanþágunefndar síðdeg-
is í dag.
Að sögn Sigurðar Óla Kol-
beinssonar, fulltrúa sveitarfélag-
anna í undanþágunefnd, er um að
ræða ellefu nýjar beiðnir, átta
beiðnir sem hefur áður verið
synjað en endurnýjaðar í kjölfar-
ið og ein beiðni sem nefndin
frestaði ákvarðanatöku um á síð-
asta fundi sínum.
Fimm undanþágubeiðnir voru
samþykktar á fundi nefndarinn-
ar 1. október, en öllum öðrum
beiðnum hefur verið synjað. ■
● luralegir í tauinu
Sævar Karl:
▲
SÍÐA 31
Bush og Kerry
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.O
L
Kjarnorkubúnaður hvarf:
ElBaradei
vill svör
ÍRAK, AP Mohamed ElBaradei, yfir-
maður Alþjóða kjarnorkumála-
stofnunarinnar, lýsti áhyggjum af
því við öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að búnaður sem nota má
til gerðar kjarnorkuvopna er
horfinn af þeim stöðum sem hann
var geymdur á í Írak. ElBaradei
sagði að ekki væri nóg með að
búnaðurinn væri horfinn heldur
líka þær byggingar sem hann var
geymdur í.
Rashad Omar tæknimálaráð-
herra sagði þjófa hafa stolið bún-
aði eftir fall stjórnar Saddams
Hussein, síðar hafi Bandaríkja-
menn tekið úraníum Íraka í sína
vörslu. Bandaríkjamenn hafa
litlar upplýsingar viljað veita El-
Baradei. Omar sagði Alþjóða
kjarnorkumálastofnunina vel-
komna til Írak til eftirlits. ■
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Allt landið
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.