Fréttablaðið - 13.10.2004, Síða 8
8 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
BANDARÍKIN Vinir George W. Bush
Bandaríkjaforseta í olíuiðnaðinum
hafa hagnast á hækkandi olíuverði
meðan hækkunin bitnar harkalega
á neytendum, sagði John Kerry,
forsetaefni demókrata á fram-
boðsfundum í gær, degi fyrir síð-
ustu kappræður hans og George
W. Bush Bandaríkjaforseta sem
fram fara í kvöld.
Bush sparaði heldur ekki stóru
orðin og sagði Kerry hafa misskil-
ið í grundvallaratriðum baráttuna
gegn hryðjuverkum. Þar vísaði
forsetinn til orða Kerrys í blaða-
viðtali þar sem hann sagðist ætla
að berja á hryðjuverkamönnum
þar til hryðjuverkaógnin yrði að-
eins að óþægindum en ekki sú
mikla hætta sem heimurinn stæði
nú frammi fyrir. Þetta þótti Bush
uppgjöf og sagðist ætla að upp-
ræta hryðjuverkamenn hvar sem
þá væri að finna.
Baráttan um Hvíta húsið er
afar jöfn og sýna kannanir til
skiptis forystu annars frambjóð-
andans eða að þeir njóti jafn mik-
ils fylgis meðal kjósenda. Kapp-
ræðurnar í kvöld geta því haft
talsverð áhrif á niðurstöðu kosn-
inganna standi annar frambjóð-
andinn sig betur. - bþg
Tvö önnur rússnesk
skip eru á leiðinni
Fjögur rússnesk herskip bíða nú við Langanes eftir tveimur skipum til
viðbótar. Skipin munu halda á brott frá landinu í dag. Hvorki Land-
helgisgæslan né Flugmálastjórn hafa orðið vör við kafbátaleitarvélar.
HERSKIP Tvö rússnesk herskip
sem tóku þátt í rússnesk-banda-
rísku heræfingunni á Norður-
Atlantshafi munu slást í hóp
þeirra fjögurra herskipa sem
enn halda til úti af Langanesi.
Síðan 29. september hafa sjö
rússnesk herskip verið við
æfingar við strendur landsins en
í fyrradag hélt flugmóðurskipið
Kuznetzov aðmíráll á brott frá
landinu sem og tvo önnur skip úr
flotanum. Þessi þrjú skip eru nú
á leið til Rússlands.
Skipherra kjarnorkuknúna
beitiskipsins Péturs mikla, sem
enn er við strendur landsins,
hefur greint Landhelgisgæsl-
unni frá því að skipið, ásamt
tveimur dráttarbátum og fylgd-
arskipi, muni halda frá strönd-
um landsins nú í morgunsárið.
Samkvæmt upplýsingum frá
varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins munu þessi fjögur
skip sameinast hinum tveimur
sem eru á leiðinni. Skipin eru að
taka þátt í sérrússneskri æfingu
á Norður-Atlantshafi sem nefn-
ist Atlantika 04. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur
rússneski sjóherinn fjárveitingu
til að halda æfingunni áfram til
25. október. Líklegt er hins veg-
ar talið að skipin muni á næstu
dögum halda norður í Barents-
haf og þaðan í sína heimahöfn.
Fréttstofa Bylgjunnar greindi
frá því að norsk Orion-kafbáta-
leitarvél hefði flogið yfir rúss-
neska flotann sem og bresk Nim-
rod-þota og flugvélar frá Atl-
antshafsbandalaginu. Hvorki
Landhelgisgæslan né Flugmála-
stjórn gátu staðfest þetta. Helgi
Björnsson yfirflugumferðar-
stjóri segir að íslenska flugum-
ferðarstjórnin verði ekki endi-
lega vör við það þó herflugvélar
komi nálægt landinu. Ef þær
hafi verið að skoða rússneska
flotann hafi þær verið fyrir neð-
an stjórn loftrýmis íslensku
flugumferðarstjórnarinnar.
Loftrými flugumferðarstjórnar-
innar taki ekki við fyrr en í 5.500
fetum.
Bjarni Vestmann, sendiráðu-
nautur hjá varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, segir að
herflugvélar haldi uppi reglu-
bundnu eftirliti á svæðinu milli
Noregs og Íslands. Því telji hann
ekki að það þurfi að hafa ein-
hverja sérstaka þýðingu þó að
einhverjir hafi orðið varir við
kafbátaleitarvélar þar þegar
rússneski herinn var þar.
trausti@frettabladid.is
Botnvarpa:
Viðkvæm
svæði ber að
vernda
UMHVERFISMÁL Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, segir löngu vitað að
b o t n v a r p a
breyti sjáv-
arbotninum
og hann telur
hafa skort á
s k i p u l e g a r
rannsóknir á
þessu. „Menn
eru að stunda
r a n n s ó k n i r
löngu eftir að
búið er að
slétta út kór-
a l r i f i n . “
Hann segir
kóralinn svo
hægvaxta að
það muni
taka hann mörg hundruð ár að
vaxa þar sem hann hefur verið
brotinn niður á tíu til tuttugu
árum.
Guðjón segist samt ekki styðja
hugmyndir um allsherjarbann
eins og er til umfjöllunar hjá Sam-
einuðu þjóðunum. „Það er hins
vegar mikilvægt að rannsaka
þetta svo við vitum hvaða svæði
ber að friða.“ -ghg
SVONA ERUM VIÐ
– hefur þú séð DV í dag?
Eiga flesta
titrara –
gera það oft –
en fá það
sjaldan
Íslendingar byrja
yngstir í heimi að
stunda kynlíf
UMHVERFISMÁL Vernda þarf við-
kvæm svæði á hafsbotni til að
koma í veg fyrir tjón á lífríki
nytjafiska í kringum landið. Þetta
kemur fram í þingsályktunartil-
lögu Vinstri grænna, sem lögð er
fram í þriðja sinn á þingi nú í
haust. Í tillögunni segir að stöðugt
fjölgi vísbendingum um tjón á líf-
ríki hafsbotnsins við hömlulitla
notkun botnveiðarfæra.
Tillaga um allsherjarbann við
veiðum með botnvörpu er nú til
umfjöllunar hjá Sameinuðu þjóð-
unum og hópur erlendra sjávarlíf-
fræðinga og umhverfisverndar-
samtaka hefur krafist þess að
samtökin samþykki hana.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstri grænna, segir að
það kunni vel að vera að sum líf-
ríki þoli botnvörpuveiðar en hún
segist sannfærð um að þær verði
að banna mjög víða. Hún segir
handfæraveiðar mun umhverfis-
vænni og því eigi að auka vægi
þeirra um öll heimshöfin. Hún vill
þó ekki taka undir tillögur um
allsherjarbotnvörpubann.
-ghg
Hálfur milljarður hvarf:
Starfsmenn
rændu banka
GRIKKLAND, AP Tveir starfsmenn
grísks banka hafa verið handtekn-
ir sakaðir um að hafa stolið and-
virði um hálfs milljarðs króna úr
bankanum.
Annar starfsmaðurinn komst
yfir lykla og lykilorð að fjárhirsl-
um bankans og hinn, sem var ör-
yggisvörður í bankanum, slökkti á
þjófavarnakerfinu eina nóttina
svo þeir gætu rænt öllu því fé sem
þeir gátu borið í fjárhirslunum.
Yfirvöldum hefur tekist að
endurheimta rúmlega hundrað
milljón krónur en ekkert er vitað
hvað varð af stærstum hluta pen-
inganna sem mennirnir eru sakað-
ir um að hafa rænt. ■
Fyrrum námamaður:
Þjálfaði
tilræðismenn
SPÁNN, AP Spænska lögreglan telur
að Spánverji að nafni Emilio Suarez
Trashorras, sem er fyrrum náma-
verkamaður, hafi þjálfað hryðju-
verkamenn í notkun sprengiefna
áður en þeir gerðu árásir í Madríd
sem kostuðu 191 mann lífið. Tras-
horras er þegar í fangelsi. Hann
var handtekinn vegna gruns um að
hafa séð hryðjuverkamönnunum
fyrir sprengiefni. Hann hefur áður
komist í kast við lögregluna vegna
fíkniefna og ólöglegrar vopnaeign-
ar. ■
VÍGAMENN FELLDIR Sádi-arabísk-
ar öryggissveitir skutu þrjá víga-
menn til bana í skotbardaga í
húsi í Riyad. Sjö lögreglumenn
særðust í skotbardaganum þar
sem byssum og handsprengjum
var beitt. Vígamennirnir eru tald-
ir tengjast al Kaída.
HRÆKT Á KRISTNA Ungur ísra-
elskur maður, nemi í skóla
strangtrúaðra gyðinga, var hand-
tekinn fyrir að hrækja á arm-
enskan biskup sem gekk með
kross í göngu manna á Musteris-
hæð í Jerúsalem. Slagsmál brut-
ust út í kjölfarið og skemmdist
kross biskupsins. Talsvert er um
að strangtrúaðir gyðingar hræki
á kristna klerka á þessum helga
stað.
Bann við botnvörpuveiði:
Vinstri grænir vilja takmarkað bann
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
Vill auka vægi handfæraveiða, sem hún
telur umhverfisvænni en togveiðar.
Bush og Kerry á fullu fyrir síðustu kappræðurnar:
Skiptast á þungum höggum
■ MIÐ-AUSTURLÖND
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
Tekur ekki undir kröfu
um allsherjarbann á
botnvörpuveiðar.
BUSH VEL TEKIÐ Í NÝJU-MEXÍKÓ
Bush sagði markmið keppinautarins í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum vera lítilfjörleg.
Bush
Kerry
0
10
20
30
40
50
60
*Fyrsta könnunin er könnun Newsweek
sem birtist þremur dögum eftir fyrstu
kappræðurnar. Sú síðasta er könnun CBS
sem birtist í gær. Kannanir frá: ABC, CBS,
CNN, George Washington háskóla, Ipsos,
Newsweek, New York Times, Pew og
Washington Post.
BARÁTTAN UM
FORSETAEMBÆTTIÐ
Fylgi Bush og Kerry í könnunum í október
ÞORSKAFLI FRÁ ÁRINU 1980:
Ár Tonn
1980 428.344
1985 322.810
1990 333.652
1995 202.900
2000 238.324
2002 213.417
2003 206.405
Heimild: Sjávarútvegsráðuneytið.
BEITISKIPIÐ PÉTUR MIKLI
Pétur mikli var á meðal þeirra skipa sem voru einna fyrst á vettvang þegar kjarnorkukaf-
báturinn Kursk fórst með allri áhöfn í Barentshafi í ágúst árið 2000.
M
YN
D
/L
AN
D
H
EL
G
IS
G
Æ
SL
AN
%