Fréttablaðið - 13.10.2004, Side 10

Fréttablaðið - 13.10.2004, Side 10
KANNANIR Meirihluti landsmanna telur stöðu Þjóðkirkjunnar sterka enda þótt stór hluti segi að greina eigi á milli ríkis og kirkju. Fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni en áður, en þátttaka hennar í þjóðfélagsumræðum er hins vegar umdeild. Niðurstöður úr könnun Gallups um trúarlíf Íslendinga sem gerð var í febrúar og mars voru kynnt- ar í gær. Úrtakið var 1.500 manns og var svarhlutfall 60 prósent. 56 prósent landsmanna telja að staða kirkjunnar sé sterk en þriðj- ungur er á öndverðri skoðun. 71 prósent þjóðkirkjufólks seg- ist eiga mikla eða nokkra samleið með kirkjunni á meðan 29 prósent sögðust eiga litla eða enga sam- leið með henni. Samanburður við fyrri kannanir leiðir í ljós að mun fleiri telja sig nú eiga mikla sam- leið með kirkjunni á meðan fjöldi óánægðra stendur nánast í stað. Helmingur úrtaksins var spurður um afstöðu til aðgrein- ingar ríkis og kirkju og sögðust 57 prósent kjósa aðgreiningu. Fjórð- ungur telur að kirkja og ríki eigi einfaldlega ekki samleið og fimmtungur lagði áherslu á að öll trúfélög ættu að vera jafn rétthá. Tæpur helmingur er því fylgj- andi að kirkjan taki meiri beinan þátt í þjóðfélagsumræðunni. - shg 10 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR GEIMSKOT UNDIRBÚIÐ Rússnesku geimfararnir Salizhan Sharipov og Júrí Shargin og bandaríski geimfarinn Leroy Chiao verða um borð í Sojúz-geim- flauginni sem skotið verður á morgun. Viðhorfskönnun: Kirkjan styrkir stöðu sína DÓMMÁL 37 ára kona er ákærð af Ríkissaksóknara fyrir innflutning á tæplega fjórtán kílóum af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa ásamt konunni stað- ið að innflutningi á tæpum níu kílóum af hassinu. Hassið var flutt til landsins með tveimur fraktsendingum, bæði með skipi og flugi, í febrúar síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Saman eru maðurinn og konan ákærð fyrir innflutning á rúmlega 8,6 kílóum af hassi. Þau eru sökuð um að hafa komið fíkniefnunum fyrir í viðarfjölum sem sendar voru ásamt húsgögnum, með Arn- arfelli, skipi Samskipa, til Íslands. Maðurinn er síðan sagður hafa tekið á móti efnunum á heimili konunnar og á dvalarstað sínum í Grafarvogi. Lögreglan lagði hald á efnin síðar sama dag. Konan neitar að hafa átt nokkurn þátt í innflutningnum. Þó hafði hún ját- að þátttöku í innflutningnum hjá lögreglu en segir nú að það hafi hún gert vegna þess hversu stres- suð hún hafi verið og hversu minnið var lélegt. Maðurinn játar aðeins að hafa komið hassinu fyr- ir í fjölunum. Hassið sagðist hann hafa fengið hjá manni sem hann vill ekki nefna. Þrátt fyrir að hafa tekið við efninu af dulbúnum lög- reglumanni neitaði hann að hafa haft með það að gera. Eins var hann í sama húsi og efnin þegar lögreglan náði honum og hassinu. Konan er ein ákærð fyrir inn- flutning á fimm kílóum af hassi. Hún er sögð hafa falið hassið aft- ur í viðarfjölum og sent það ásamt húsgögnum í frakt, nú með flugi frá Danmörku. Hún tók á móti hassinu á heimili sínu í Grafarvogi. Lögreglan lagði síðar hald á 3,6 kíló af því. Hún er grunuð um að hafa selt það sem vantaði upp á. Sjálf játar hún aðeins innflutning á 3,6 kíló- um af því sem lögreglan náði. Hún sagðist ekki hafa önnur áform en að neyta efnanna sjálf. Hún vildi hins vegar ekki svara dómaranum þegar hún var spurð hversu mikil hassneysla hennar væri. hrs@frettabladid.is FOSFÓRBLYS Fosfórblysið sem kom upp með veiðar- færum Draupnis á Selvogsbanka. Fiskveiðar: Fengu blys í veiðarfæri LANDHELGISGÆSLAN Sprengjusér- fræðingar Landhelgisgæslunnar fjarlægðu og eyddu fosfórblysi sem kom upp með veiðarfærum fiskiskipsins Draupnis á Selvogs- banka suður af landinu. Skipverjar höfðu samband við Landhelgis- gæsluna og sögðust hafa fengið upp „torkennilegan og illa lyktandi hlut“. Skipið kom til hafnar í Þorláks- höfn aðfaranótt þriðjudags og kom þá í ljós að hluturinn var fosfór- blys af gerðinni Mark 58, en það inniheldur bæði sprengiefni og fosfór.ÝLandhelgisgæslan ítrekar þau tilmæli að fólk snerti ekki slík blys finnist þau á ströndum lands- ins, heldur láti vita af þeim. ■ Á VERKFALLSVAKT Verkfallið hefur lítil eða engin áhrif haft á olíuvinnslu og útflutning olíu. Verkalýðsfélög: Hóta lengra verkfalli NÍGERÍA, AP Allsherjarverkfallið í Nígeríu sem hófst á mánudag og á að standa í fjóra daga verður hugs- anlega framlengt ef stjórnvöld neita að íhuga kröfur verkalýðs- félaga eða ofbeldi brýst út, sagði helsti forystumaður verkfalls- manna. Fyrirhugað var að endur- taka verkfallið eftir þrjár vikur ef ekki verður gengið að kröfum verk- fallsmanna um lægra bensínverð. Verkfallið hefur að mestu farið friðsamlega fram en tveir menn hafa þó látist í átökum lögreglu og verkfallsmanna. ■ Skagafjörður: Ráðuneyti úrskurði SVEITARSTJÓRNARMÁL Vinstri grænir í sveitarstjórn Skagafjarðar telja að Bjarni Maronsson, sveitar- stjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, sem lagði fram tillögu um að fara með Villinganesvirkjun í kynningu, sé vanhæfur í málinu. Tillagan var samþykkt og í kjöl- farið hangir meirihlutasamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðis- flokksins á bláþræði. Vinstri grænir telja að sjálfstæðismenn hafi brotið samstarfssamning flokkanna. Fyrirtækið Héraðsvötn ehf. hefur uppi virkjunaráform við Villinganes. Fyrirtækið er að hluta í eigu Kaupfélags Skagfirðinga en þar situr Bjarni í stjórn og er vara- formaður. Vinstri grænir hafa far- ið fram á það við félagsmálaráðu- neytið að það úrskurði um hæfi Bjarna í málinu. - th FR ÉT TA B LA Ð IÐ /L AN D H EL G IS G Æ SL AN /A D R IA N K IN G Skóladrengur í Bandaríkjunum: Fyrir dóm vegna blóts BANDARÍKIN AP Sautján ára banda- rískur skóladrengur sér fram á það að verða hugsanlega útilokaður frá skóla í mánuð fyrir að hafa viðhaft ljótt orðbragð við kennara sinn. Nemandinn segist hafa haft uppi ljót orð þegar hann lenti í vandræð- um hjá kennara sínum eftir að hafa mætt of seint í kennslustund. Að- stoðarstarfsfólk í skólanum skarst undir eins í leikinn og kærði dreng- inn í kjölfarið fyrir að hafa haft uppi ljótt orðbragð og að ætlunin með því hafi verið að vekja upp of- beldi. Drengurinn mætir fyrir rétt í næstu viku. ■ Október 1986 til janúar 1987 Febrúar til mars 2004 Mikla Litla Nokkra Enga Átt þú mikla, nokkra, litla eða enga sam- leið með þjóðkirkjunni? VIÐHORF TIL KIRKJUNNAR 52,9% 23,8% 15,7% 7,6% 44,3% 27,0% 22,1% 6,6% GENGIÐ Í DÓMSAL Dómari spurði konuna hversu mikil hassneysla hennar væri þegar hún sagðist ekki hafa önnur áform um tæp fjögur kíló af hassi en einkaneyslu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Sögð hafa flutt inn 14 kíló af hassi 37 ára kona er ákærð fyrir að flytja inn tæp fjórtán kíló af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa staðið með konunni að innflutningi á meirihluta efnanna. PRESTASTEFNA Í könnun Gallups kemur fram að tæplega 60 prósent landsmanna vilja að skilið verði á milli ríkis og kirkju.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.