Fréttablaðið - 13.10.2004, Side 12
12 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
BANNAÐ AÐ KJÓSA
Þessar sádi-arabísku konur fá ekki að
kjósa í sveitarstjórnarkosningum á næsta
ári frekar en kynsystur þeirra. Stjórnvöld
segja þetta vegna þess að ekki sé hægt að
undirbúa kosningarnar nógu vel ef konur
eiga að fá að kjósa samtímis körlum og
því sé best að þær kjósi ekki.
Ein helsta herfræðistofnun Ísraels segir innrásina í
Írak hafa verið mistök:
Írak gróf undan baráttu
gegn hryðjuverkum
ÍSRAEL, AP Innrásin í Írak gróf
undan stríðinu gegn hryðjuverk-
um og ýtti undir uppgang margra
hryðjuverkahópa. Þetta er niður-
staða Jaffee-herfræðistofnunar-
innar við Tel Aviv-háskóla í Ísrael.
Stofnunin er ein helsta hug-
myndaveita Ísraela í varnarmál-
um.
Shai Feldman, forstöðumaður
Jaffee-herfræðistofnunarinnar,
sagði áhersluna á stríðið í Írak
hafa orðið til þess að minna fé og
herafli en ella færi í að berjast
gegn hryðjuverkum annars stað-
ar, svo sem í Afganistan. Þá sagði
hann að bandarískar leyniþjón-
ustustofnanir legðu svo mikla
áherslu á að afla upplýsinga í Írak
að það hlyti að verða á kostnað
eftirlits með hættu í öðrum
heimshlutum.
Shlomo Brom, fyrrum hers-
höfðingi í Ísraelsher, sagði innrás-
ina í Írak hafa verið herfræðileg
mistök ef markmið Bandaríkja-
manna í baráttunni gegn hryðju-
verkum hafi „ekki bara verið að
drepa moskítófluguna heldur
þurrka upp mýrina“. Írak er ekki
mýrin, gróðrarstía hryðjuverka-
manna, sagði Brom. ■
Sammælast um
fjöldasjálfsmorð
Níu ungir Japanar frömdu sjálfsmorð eftir að hafa kynnst á sjálfsmorðssíðu á netinu.
Þrýst er á yfirvöld að loka slíkum síðum. Ríflega 34 þúsund Japanar frömdu sjálfsmorð í fyrra.
JAPAN, AP Lögreglan fann í gær lík
níu ungra Japana sem talið er að
hafi framið sjálfsmorð saman.
Unga fólkið hafði komið litlum
kolaofni fyrir í bíl og lést af
koltvísýringsmengun.
Lík fjögurra ungra manna og
þriggja kvenna fundust í bíl í
vesturhluta Tókýó og lík tveggja
ungra kvenna fundust á sama
tíma í bíl í suðurhluta borgarinn-
ar. Ekki er enn vitað hvort málin
tvö tengist en hins vegar er talið
víst að fólkið hafi kynnst á net-
síðu um sjálfsmorð. Nokkur
aukning hefur verið í sjálfsmorð-
um sem rekja mátt hefur til
slíkra síðna á netinu. Samkvæmt
lögreglunni leitar fólk á þessar
síður til að þess að finna ein-
hvern sem er tilbúin að deyja
með því. Á síðunum eru einnig
leiðbeiningar um það hvernig
eigi að fremja sjálfsmorð og
hvar sé hentugast að gera það.
Málið hefur vakið gríðarmikla
athygli í Japan. Þarlend yfirvöld
eru nú að velta því fyrir sér
hvort ekki sé rétt að loka þessum
netsíðum en þrýst er á það víða
úr samfélaginu. Forsvarsmenn
síðnanna telja þær hins vegar
eiga fullan rétt á sér. Segja þeir
að á síðunum sé ekki verið að
hvetja til sjálfsmorða heldur sé
síðunum haldið úti af samúð við
fólk sem sé búið að gefast upp á
lífinu.
Í fyrra frömdu ríflega 34 þús-
und Japanar sjálfsvíg, sem er um
sjö prósent aukning frá árinu
2002. Sérfræðingar segja að efna-
hagserfiðleikar og aukin einungr-
unarkennd ungra Japana séu
helstu skýringar á þessari aukn-
ingu milli ára. Í Japan er til hug-
tak sem nær yfir einangrað ungt
fólk. Er það kallað „hikikomori“
en það orð á við um einstaklinga
sem aldrei yfirgefa herbergi sín
og leita sér einungis að félagsskap
og skemmtun á netinu. ■
Brennuvargurinn sem kveikti í Votmúla á Blönduósi
enn ófundinn:
Rannsókn hefur
enn engu skilað
LÖGREGLA Ríflega tvær vikur eru
nú liðnar síðan Votmúli, atvinnu-
húsnæði á Blönduósi, brann nán-
ast til kaldra kola. Enn er talið að
kveikt hafi verið í húsinu en
Kristján Þorbjörnsson, yfirlög-
regluþjónn á Blönduósi, segir að
rannsókn hafi engu skilað.
„Það er búið að rekja allt sem
hægt er að rekja og það hefur
ekkert verið upp úr því að hafa,“
segir Kristján. „Það er búið að
tala við fjölda manna og við bíðum
eftir að þær eftirgrennslanir beri
einhvern árangur.“
Kristján segist ekki úrkula
vonar um að rannsóknin skili ein-
hverju.
„Við höfum upplifað það hér að
mál upplýsist jafnvel eftir tvö til
þrjú ár þannig að það er alls ekki
útilokað að þetta skýrist með tíð
og tíma.“
Þrjú fyrirtæki voru með starf-
semi í þeim hluta hússins sem
brann: matvælaverksmiðja Vilkó,
pakkhús kaupfélagsins og Bíla-
þjónustan. Eldurinn átti upptök sín
í skilrúmi milli matvælaverksmiðj-
unnar Vilkó og pakkhússins. ■
ÞRÍR TEKNIR FYRIR ÖLVUN-
ARAKSTUR Þrír ökumenn voru
teknir í Reykjavík fyrir hádegi í
gær grunaðir um ölvun við akst-
ur. Að sögn varðstjóra hjá lög-
reglunni í Reykjavík gerist allt of
oft að fólk sem drukkið hefur
fram á nótt fari af stað morgun-
inn eftir án þess að átta sig á því
að það er ekki í ástandi til að
keyra.
BÍLVELTA Í VESTMANNAEYJUM
Bílvelta varð á gatnamótum
Heiðarvegar og Kirkjuvegar í
Vestmannaeyjum rétt fyrir há-
degi í gær. Engin slys urðu á
fólki og skemmdist bíllinn lítið.
■ ASÍA
■ EVRÓPA
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
ÁNÆGÐUR HÓPUR
Börnin í Ísaksskóla sögðust helst skoða
teiknimyndasögurnar í Fréttablaðinu.
Börn í Ísaksskóla:
Heimsóttu
Fréttablaðið
VERKFALL Hópur sjö ára barna úr
Ísaksskóla heimsótti Fréttablaðið
í gær.
Líkt og börn í öðrum einkaskól-
um verða börnin í Ísaksskóla ekki
fyrir barðinu á verkfalli kennara
að öðru leyti en því að þau fá ekki
leikfimikennslu. Þegar leikfimi-
tímar eiga að vera skiptast for-
eldrar barnanna á að gæta þeirra.
Börnin sem heimsóttu Fréttablað-
ið í gær voru hæstánægð með að
vera í skólanum en sum þeirra
voru þó frekar svekkt yfir því að
fá ekki að fara í leikfimi. ■
fiau ykkar sem greinst hafa me› krabbamein, taki› frá laugardaginn 16. október.
GÓ‹IR ÍSLENDINGAR!
Nefndin
BANDARÍSKIR HERMENN Í ÍRAK
Ísraelsk herfræðistofnun segir baráttuna
gegn hryðjuverkum hafa misst máttinn við
innrásina í Írak.
BREITT YFIR BÍL
Búið að breiða yfir bíl þar sem sjö ungmenni frömdu sjálfsmorð í vesturhluta Tókýó.
SLÖKKVISTARF Á BLÖNDUÓSI
Kveikt var í Votmúla aðfaranótt þriðjudagsins 28. september.
HELFARARINNAR MINNST Rúm-
enar minntust í gær helfarar
gyðinga og sígauna á tímum síð-
ari heimsstyrjaldar með form-
legum hætti. Þetta er í fyrsta
sinn sem slíkt er gert en 63 ár
eru liðin síðan rúmenska ríkis-
stjórnin fyrirskipaði að allir
gyðingar og sígaunar í landinu
skyldu fluttir í útrýmingarbúðir
nasista.
HVATTIR TIL AÐ KJÓSA Innlend
samtök og erlendar stofnanir
hófu í gær herferð í Kosovo til
að fá serbneska kjósendur til að
taka þátt í þingkosningum sem
fram fara 23. október. Skipu-
leggjendur herferðarinnar ótt-
ast að serbneski minnihlutinn
hunsi kosningarnar.
Á ANNAÐ HUNDRAÐ LÉTUST Ind-
verskir hermenn sem vinna að
björgunarstörfum á flóðasvæðum
í norðausturhluta Indlands fundu
sautján lík í gær. Þar með er ljóst
að 171 einstaklingur hið minnsta
lést í flóðunum í Indlandi. Tugir
til viðbótar létust í Nepal og
Bangladess.