Fréttablaðið - 13.10.2004, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 13. október 2004
■ AFRÍKA
Mikhaíl Gorbatsjov:
Sérstaða
Tsjetsjeníu
BANDARÍKIN Rússar verða að veita
Tsjetsjenum sérstaka stöðu innan
ríkjasambandsins ef þeir vilja
binda enda á áratugs langa upp-
reisnina í Tsjetsjeníu, sagði Mik-
haíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi
Sovétríkjanna.
„Við ættum að leita lausna á
stjórnmálasviðinu,“ sagði Gorbat-
sjov í ræðu í New York. „Mín upp-
skrift að lausn er þessi: Tsjetsjen-
ía er hluti Rússlands. Allt Rúss-
land ætti að hjálpa til við upp-
byggingu Tsjetsjeníu og
Tsjetsjenía ætti að hafa sérstaka
stöðu innan Rússlands.“ ■
KREFJAST BÓTA Í LÍBÍU Moamm-
ar Gaddafi Líbíuleiðtogi tók í
gær á móti sendinefnd líbískra
gyðinga sem voru reknir úr
landi eftir Sex daga stríðið í
Mið-Austurlöndum árið 1967.
Eigur fólksins voru gerðar upp-
tækar en nú hefur Gaddafi opn-
að fyrir að greiða bætur fyrir
þær.
Bæjarstjórn Seltjarnarness:
Vill ljósleiðara-
væða bæinn
SKIPULAGSMÁL Níu hafa þegar sótt
gögn til Seltjarnarnesbæjar eftir
að bærinn auglýsti eftir sam-
starfsaðilum til að ljósleiðara-
væða bæinn. Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, segir að 22. október verði
innsendar hugmyndir opnaðar og
skoðaðar. Miðað er við að ljósleið-
arakerfið verði komið upp í bæn-
um fyrir lok næsta árs, en koma á
leiðara upp að hverju húsi í bæn-
um.
„Það er ljóst að talsverður
áhugi er á málinu enda myndi Sel-
tjarnarnesbær þá verða braut-
ryðjandi í leiðaravæðingu bæjar-
félaga,“ segir Jónmundur og bæt-
ir við að sveitarfélög vítt og breitt
um Norðurlönd hafi fetað svipaða
slóð. „Menn eru ekki að fara að
bjóða þjónustuna heldur er verið
að leggja vegakerfið þannig að
mismunandi fyrirtæki séu ekki öll
að því. Þannig verður til einn leið-
ari sem bæjarbúar geta keypt í
gegnum þjónustu af hverjum sem
er.“ Jónmundur segir endanlega
útfærslu verkefnisins ekki liggja
fyrir og alls ekki víst að bærinn
komi til með að eiga ljósleiðarann
sem lagður verður. „Við erum í
rauninni að bjóða bæinn undir
svona verkefni.“ óká
SELTJARNARNES
Fyrir lok næsta árs stefnir Seltjarnarnesbær að því að búið verði að koma upp ljósleiðara-
neti sem nær til allra húsa bæjarins. Nýverið auglýsti bærinn eftir samstarfsaðilum til
verksins.
TÓK DEBETKORT Í HEIMILDAR-
LEYSI Í Héraðsdómi Reykjaness
var refsingu yfir tvítugum manni
frestað og fellur hún niður ef
hann heldur skilorð í tvö ár. Mað-
urinn sló eign sinni á síma og
debetkort sem hann fann á kló-
setti á skemmtistað. Hann reyndi
að greiða eldsneyti með debet-
kortinu en án árangurs. Nærri
tvö og hálft ár eru liðin frá brot-
inu.
SKILORÐ FYRIR LÍKAMSÁRÁS
Refsingu yfir sautján ára pilti
var frestað í Héraðsdómi Reykja-
ness og verður hún felld niður
haldi hann skilorð í tvö ár. Hann
játaði að hafa lamið sextán ára
pilt nokkur högg í andlitið. Sá
hlaut mar eftir árásina.
NEMENDUR Í KÓPAVOGI
Segja að þau hafi ákveðið fyrir nokkru síð-
an að mótmæla verkfallinu og ætla ekki
að láta vont veður stoppa sig né ferðalag
úr Fífulind niður í Fannborg.
Áhyggufull systkin:
Krefjast loka
verkfallsins
VERKFALL Systkin í grunnskólum í
Kópavogi kröfðust þess í gær að
bæjarfulltrúar í Kópavogi leystu
verkfall kennara.
Ævar Daníel, nemandi í 4.
bekk í Salaskóla, og systir hans
Andrea, í 6. bekk Snælandsskóla,
undirbjuggu kröfuspjöld og
gengu á fund bæjarstjórnarinn-
ar.
Ævar segir gaman í skólanum,
hann vilji stunda nám sitt og búa
sig undir samræmd próf 4.
bekkjar. Hann bindi vonir við
bæjarstjórann, Sigurð Geirdal:
„Ef bæjarstjórinn í Kópavogi
fær hjálp frá starfsfólkinu á
skrifstofunni getur hann leyst
verkfallið.“ ■
FJÁRSÖFNUNIN
BUGL og Geðhjálp njóta góðs af lands-
söfnun Kiwanisfélaga. Myndin er frá BUGL.
Landssöfnun
Kiwanismanna:
Þjóðin brást
vel við
FJÁRSÖFNUN Þjóðin brást afar vel
við landssöfnun Kiwanismanna
sem lauk síðastliðin sunnudag,
að sögn Kristins Richardssonar,
formanns K-dagsnefndar. Ekki
liggja fyrir tölur um hversu mik-
ið safnaðist, en öll kurl verða
væntanlega komin til grafar eft-
ir um það bil viku, að sögn
Kristins.
Kristinn sagði, að allir rólfær-
ir Kiwanisfélagar hefðu tekið
þátt í söfnuninni, svo og aðstoð-
arfólk, til að mynda íþróttafélög
og aðilar úr björgunarsveitum.
Söfnunarfénu verður skipt á
milli Barna- og unglingageð-
deildarinnar og Geðhjálpar. ■
■ DÓMSMÁL ■ MIÐ-AUSTURLÖND
SKOTIN Á SKÓLALÓÐ Tíu ára
palestínsk stúlka er í lífshættu eft-
ir að hún var skotin í brjóstkassann
á skólalóð í palestínskum flótta-
mannabúðum á Gaza-svæðinu. Hún
er fórnarlamb skothríðar Ísraela. Í
síðasta mánuði lést tíu ára stúlka
þegar skot úr byssu ísraelsks her-
manns fór inn um glugga í skóla-
stofu og í höfuð stúlkunnar.