Fréttablaðið - 13.10.2004, Page 26
Bólueinkenni
Í byrjun ágúst velti höfundur Staksteina Morgun-
blaðsins fyrir sér hvernig stæði á miklum hækkun-
um hlutabréfa á íslenskum markaði og því haldið
fram að hér væru mikil bólueinkenni. Rifjaði höf-
undur upp þá lækkun sem varð á mörkuðum árið
2001 og sagði að margir hefðu talið að eftir
það myndi markaðurinn hegða sér með
svipuðum hætti og slíkir markaðir gera í
öðrum löndum. Í lokin var þeirri spurn-
ingu beint til Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Kauphallarinnar, af hverju það
hefði ekki gerst.
Ekki Þórði að kenna
Þeir sem til þekkja á mörkuðum vita
að bólueinkenni eru langt frá því að
vera séríslenskt fyrirbrigði heldur
hafa þau komið upp með
reglulegum hætti á nánast
öllum hlutabréfamörkuðum
heims. Það sem vakti hins vegar athygli var að höf-
undur Staksteina teldi að Þórður Friðjónsson ætti
að hafa einhver sérstök svör við því af hverju verð-
bréf á Íslandi hefðu hækkað svo mjög á síðustu
misserum líkt og höfundur teldi að það væri Þórð-
ur Friðjónsson sem tæki ákvörðun um það hvað
hlutabréfin í Kauphöllinni ættu að kosta.
Þetta er misskilningur. Verð á íslenskum
hlutabréfum eru ekki háð geðþótta
Þórðar Friðjónssonar.
Olían hækkar enn
Hagfræðingar í Bandaríkjunum velta
því nú fyrir sér hvort hátt olíuverð
kunni að valda efnahagskreppu. Bent
er á að þótt verð á tunnu sé nú að
nálgast 55 Bandaríkjadali sé enn nokk-
uð í að verðið nái hámarki sé tekið tillit
til verðbólgu. Olíuverð fór hæst í 38 dali
árið 1980. Það jafngildir 79 dölum á föstu
verðlagi.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.871
KAUPHÖLL ÍSLANDS [HLUTABRÉF]
Fjöldi viðskipta: 636
Velta: 2.345 milljónir
-1,70%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
18 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
KB banki hyggst sækja sér
allt að 50 milljarða í nýtt
hlutafé. Hagnaður bankans
síðustu þrjá mánuði nam 5,5
milljörðum króna.
KB banki hagnaðist um tæpa tólf
milljarða á fyrstu níu mánuðum
ársins. Hagnaður þriðja ársfjórð-
ungs samkvæmt óendurskoðuðu
uppgjöri var 5,5 milljarðar króna.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
KB banka, segist sáttur við þessa
niðurstöðu. „Það hefur gengið vel á
flestum vígstöðvum.“ Eignir bank-
ans samkvæmt uppgjörinu nema
1.500 milljörðum króna og hafa nær
þrefaldast frá áramótum. Arðsemi
eiginfjár bankans nam 32,5 pró-
sentum, sem er meira en helmingi
hærra en langtímamarkmið bank-
ans um arðsemi eiginfjár.
Danski bankinn FIH er með í
reikningum bankans frá 1. júlí og
lagði til tæpa 1,5 milljarða í hagnað
þriðja ársfjórðungs, auk þess að
skýra bróðurpartinn af eignaaukn-
ingu bankans. KB banki hyggst
sækja sér nýtt hlutafé fyrir allt að
50 milljarða á markað til að efla
eiginfjárstöðu bankans og til frek-
ari útrásar. Núverandi hluthafar
munu ekki eiga forkaupsrétt líkt og
í útboði bankans fyrr á árinu, en þá
aflaði bankinn 40 milljarða í nýju
hlutafé. Sú hlutafjáraukning var
nýtt til kaupa á FIH bankanum sem
keyptur var á 84 milljarða króna.
Hreiðar Már segir menn renna
nokkuð blint í sjóinn með hver
skiptingin verði á milli innlendra og
erlendra fjárfesta í bankanum. „Við
höfum verið að kynna bankann er-
lendum fjárfestum og Deutsche
Bank hefur verið að vinna að söl-
unni með okkur. Það mun koma í
ljós.“
Tilkynnning KB banka um út-
boðið er meðal annars talin hafa
leitt til lækkunar á markaði í gær.
Sérfræðingar á markaði telja að
fjárfestar hafi selt bréf til að kaupa
í útboði bankans.
Augu markaðarins beinast nú að
breska bankanum Singer and
Friedlander sem KB banki á fimmt-
ungs hlut í. Gengi bankans hækkaði
í gær í kjölfar frétta á alþjóðamörk-
uðum um hlutafjáraukningu KB
banka. Spákaupmenn gera ráð fyrir
að það styttist í yfirtöku KB banka
á breska bankanum. Lágmarksupp-
hæð sem KB banki hyggst sækja í
útboðinu er 37 milljarðar króna.
Ekki er talið að svo mikið þurfi til
þess að yfirtaka Singer and Fried-
lander. Þeirri staðreynd fylgja á
markaði vangaveltur um að önnur
útrásarverkefni kunni að vera í
sjónmáli hjá bankanum.
haflidi@frettabladid.is
Verðbólgan fer vaxandi á Íslandi og
nálgast nú þolmörk Seðlabankans.
Ný vísitala neysluverðs sýnir að
verðbólga á ársgrundvelli er nú 3,7
prósent en á sama tíma í fyrra var
hún 2,2 prósent á ársgrundvelli.
Að sögn Tryggva Eiríkssonar
hjá Hagstofu Íslands vegur þyngst
í hækkuninni að verð á fötum og
skóbúnaði hækkaði um 6,2 prósent
milli mánaða. „Það má segja að út-
sölulokin hafi ekki verið komin
alla leið til baka í síðasta mánuði,“
segir Tryggvi.
Verð á matvælum er nánast
óbreytt á milli mánaða en rekja má
um níutíu prósent hækkunarinnar
nú til hækkunar á fötum, húsnæði
og kostnaði við rekstur bíls.
Greiningardeild Íslandsbanka
segir í Morgunkorni í gær að vísi-
töluhækkunin sé nokkuð meiri en
spáð var. Það skýrist að stærstum
hluta með hækkunum á húsnæðis-
verði að mati Íslandsbanka.
Íslandsbanki telur að Seðla-
bankinn muni hækka stýrivexti
um 0,5 til 0,7 prósentustig á næst-
unni og að um miðbik næsta árs
verði stýrivextir komnir í átta pró-
sent. Þeir eru nú 6,75 prósent.
- þk
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 52,50 -2,05% ... Bakkavör
28,90 -2,03% ... Burðarás 15,40 -3,14% ... Atorka 5,85 -3,31% ... HB
Grandi 7,60 - ... Íslandsbanki 11,60 -2,52% ... KB banki 497,00 -0,80% ...
Landsbankinn 15,20 -1,94% ... Marel 55,50 -0,89% ... Medcare 6,35 -
2,31% ... Og fjarskipti 3,80 +4,28% ... Opin kerfi 25,00 -2,34% ... Sam-
herji 13,10 -0,38% ... Straumur 10,10 -0,49% ... Össur 95,00 -2,56%
Flugleiðir 1,06%
SÍF 0,83%
Nýherji 0,58%
Og fjarskipti -4,28%
Atorka -3,31%
Burðarás -3,14%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Úrvalsvísitalan lækkaði í gær
um 67,1 stig. Það er næstmesta
lækkun vísitölunnar á einum degi
í stigum talið. Hún hefur heldur
ekki lækkað meira hlutfallslega
síðan 9. mars þegar hún lækkaði
um 2,4 prósent.
Atvinnuleysi í september var
2,6 prósent samkvæmt skýrslu
Vinnumálastofnunar. Í ágúst var
atvinnuleysið 2,9 prósent en í
september í fyrra var það 2,7.
Markaðsvirði hlutabréfa í
Kauphöll Íslands hækkaði um
124,9 milljarða í september. KB
banki segir frá þessu í Hálf fimm
fréttum í gær.
KB banki sendi í gær tilkynn-
ingu um að eignarhlutur bankans
í hugbúnaðarfyrirtækinu Kögun
væri kominn í 7,8 prósent en var
4,28 prósent fyrir.
SEÐLABANKI ÍSLANDS Í Seðlabankum er fylgst grannt með þróun verðbólgu. Því er
spáð að stýrivextir muni hækka á næstunni enda er verðbólgan hærri en Seðlabankinn
stefnir að.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Verðbólgan hækkar
Frá árinu 1998 hafa útgjöld ríkis-
sjóðs að meðaltali verið 23 milljörð-
um króna hærri en gert var ráð fyrir í
fjárlögum, mælt á föstu verði 2004. Í
nýjum Ríkisreikningi má sjá að út-
gjöld ríkissjóðs á árinu 2003 voru 20
milljörðum hærri en upphæðin sem
stóð í fjárlögum ársins 2003. Í ár er
gert ráð fyrir að munurinn verði 7,1
milljarður króna, en svo lítill munur á
fjárlögum og niðurstöðu ársins hefur
ekki sést síðan framsetningu fjárlaga
var breytt með fjárlögum 1998.
Eins og ég ræddi í síðustu viku tel
ég litlar líkur á að útgjaldaspá fjár-
málaráðuneytis fyrir þetta ár stand-
ist. Miðað við þróun síðustu ára er
líklegra að útgjöld þessa árs verði
298 milljarðar, eða 15 milljörðum
hærri en áætlun gerir ráð fyrir. Ef
áætlun um tekjur ríkissjóðs fyrir
þetta ár standast, þá þýðir þetta að
halli verður á árinu 2004 að upp-
hæð 8 milljarðar króna, en ekki af-
gangur að upphæð 7,8 milljarðar
króna eins og áætlun fjármálaráðu-
neytis gerir ráð fyrir.
Í frumvarpi til fjárlaga er gert ráð fyr-
ir að útgjöld ríkissjóðs verði 295
milljarðar á næsta ári. Þetta er um
5% hækkun frá árinu 2003. Á sama
tíma er gert ráð fyrir að verðlag
hækki um 6,5%. Þetta þýðir að búist
er við að útgjöld ríkissjóðs lækki um
nálægt 1,5% að raungildi á þessum
tveimur árum, sem jafngildir lækkun
um ríflega hálft prósent hvort ár. Síð-
ustu ár hafa útgjöldin á hinn bóginn
aukist um 7,5% að meðaltali á ári að
raungildi. Ég fæ ekki séð hvers vegna
næsta ár ætti að vera frábrugðið.
Það er að vísu ekki einsdæmi að út-
gjöldin lækki að raungildi á milli ára,
þau lækkuðu um 1,5% á milli ár-
anna 2000 og 2001.
En hver eru líkleg útgjöld á næsta
ári? Samkvæmt reynslu eru útgjöld
ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum að
jafnaði 4 milljörðum króna hærri en
frumvarp til fjárlaga. Því má búast
við því að útgjaldatalan í fjárlögun-
um verði um 299 milljarðar króna
og ef við miðum við sama mun á
fjárlögum og niðurstöðu ársins og
reynslan sýnir, þá getum við gert ráð
fyrir að útgjöld komandi árs verði
322 milljarðar króna, en ekki 295
eins og frumvarp til fjárlaga gerir ráð
fyrir.
Hvað verður þá um 11,2 milljarða
afganginn sem frumvarp til fjárlaga
gerir ráð fyrir? Gerum aftur ráð fyrir
að tekjuáætlun haldi. Miðað við
áætlunina að ofan verður halli á rík-
issjóði á komandi ári en ekki af-
gangur og gæti hallinn orðið einir
15 milljarðar króna.
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
FRÁ KYNNINGU FJÁRLAGAFRUM-
VARPSINS „Hvað verður þá um 11,2
milljarða afganginn sem frumvarp til fjár-
laga gerir ráð fyrir? Gerum aftur ráð fyrir
að tekjuáætlun haldi. Miðað við áætlun-
ina að ofan verður halli á ríkissjóði á
komandi ári en ekki afgangur og gæti
hallinn orðið einir 15 milljarðar króna,“
segir í grein Katrínar Ólafsdóttur.
VILJA MEIRA AFL KB banki vill sækja sér meira eldsneyti til frekari útrásar og fyrirtækja-
kaupa. Hlutafjárútboð bankans sem ætlað er fagfjárfestum hófst í gær og lýkur í dag. For-
stjóri bankans er ánægður með reksturinn það sem af er ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Hagnaður tæpir
tólf milljarðar
Aðhald eða vanáætlun