Fréttablaðið - 13.10.2004, Page 27
Út er komin bókin Á leið til upp-lýsingar. Saga Bókavarðafélags
Ísands, aðildarfélaga þess og Félags
bókasafnsfræðinga. Höfundur er Frið-
rik G. Olgeirsson sagnfræðingur og
segir hann í bókinni sögu þessara fé-
laga. Einnig er sagt frá ýmsum hópum
19
Sloggi tilboð
Hagkaup: Smáralind - Skeifunni
Kringlunni - Spönginni - Garðabæ
- Eiðistorgi
Nóatún: Selfossi og
Kirkjub.klaustri
Nettó: Akureyri og Mjódd
Fjarðarkaup: Hafnarfirði
Samkaup: Keflavík - Hafnarfirði -
Egilsstöðum
Úrval: Hrísalundi Akureyri -
Húsavík
Perla: Akranesi
KB: Borganesi
KVH: Hvammstanga
KH: Blönduósi
Skagfirðingabúð: Sauðárkróki
Lækurinn: Neskaupsstað
Kaupfélag Steingrímsfjarðar:
Hólmavík
Efnalaug Dóru: Höfn
Heimahornið: Stykkishólmi
Verslunin 66: Vestmannaeyjum
Apótek Siglufjarðar: Siglufirði
Paloma: Grindavík
Fatabúðin: Ísafirði
Sloggi maxi 3 stk. í pakka á aðeins 1.699 kr.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
menning@frettabladid.is
Tjargað og fiðrað úrkast
Innan úr portgalleríi Banananas við
Barónsstíg við ljósaskiptin á laugar-
daginn var barst létt reykjarlykt - alls
ekki slæm, frekar ilmur sem reyndist
vera frá glóð í tómri olíutunnu sem
húskarlar kynntu. Þegar inn var kom-
ið ýtti lyktin undir déjà-vu stemm-
ingu eitthvað miðaldalegt eða botn-
inn í Blade Runner. Á hvítmáluðum
vegg portsins blasti við stór grafísk
mynd sem gat bæði verið (ættar)tré
og æðakerfi. Við vegginn hallast tveir
saltstólpar, fyrir framan lá líkneski,
einskonar minnisvarði, „jargað“ og
fiðrað dádýr. Í göngum forhliðsins
hanga teikningar titlaðar; sjálfsmynd
sem loðdýr, jarðsunginn (með tví-
ræðri enskri þýðingu „the grave
chick“), flækja, tré og svört óveðurs-
ský. Hér er greinilega einhver
Sódóma, Gómorra/eldur og brenni-
steinn-tilfinning í gangi.
Sigrún, eins og er kunnugt, er einn
þriðji Gjörningaklúbbsins. Á þessari
einkasýningu skýtur hún á loft tákn-
myndum sem hafa þyngri undirtón
en finnst hjá klúbbnum þótt hann
vaði í skyldu myndmáli. Myndlist síð-
ari tíma snýst lítið um náttúrurann-
sóknir eða rannsóknir á ljósi ytra
heimsins, það er svo mikið búið og
gert. Frekar um könnunarleiðangra á
svæði hins innra heims og þá í formi
táknmálslykla. Um það snerist ekki
bara miðaldalistin heldur rómantíkin
líka, dada, súrrealisminn o.fl. Með
POP-listinni og konseptinu var verið
að taka upp tilbúin tákn, byggja upp
grunninn að táknmálskerfi samtím-
ans þar sem stoðkerfi módernism-
ans og klassísk hlutfallafræði er not-
uð sem undirstaða en táknbrunnur
alls heimsins sem smjör og álegg til
merkjagjafar og viðsnúnings þeirra
sem vilja og þurfa að tjá sig með
myndmáli. Þeirra sem liggur eitthvað
á hjarta og hafa eitthvað að segja
eins og Sigrún.
Á miðöldum yfirfærðu menn
þekkingu sína á dýrum á mannlega
eiginleika. Yfir dádýrinu hvílir kon-
ungleg tign, það er gætt miklu inn-
sæi, er með
ofurnæm skynfæri, bregst hratt
við, virðist skynja og taka eftir á und-
an öllum öðrum - er á stöðugu varð-
bergi, er aldrei lengi á sama stað.
Þetta er auðvitað rómantísk sýn á al-
vöru skapandi listamann. Tjörgun og
fiðrunvar hins vegar refsing við hin-
um mestu svikum - höfnun samfé-
lagsins. Samsetning á þessu með
ættargreinum og saltstólpum vekur
óneitanlega upp ýmsar spurningar.
Teikningarnar virðast heldur ekki
fjarskyldar. Það er hins vegar ljóður á
verkinu að ekki skuli vera notuð
raunveruleg tjara - gerir það gervi-
legt - allt í plati tilfinning. Sama um
saltstólpana - þeir eru ekki heilir í
gegn. Efnisnotkun skiptir máli! Sag-
an úr fyrstu Mósebók um konu Lots
er um hættuna við að horfa í hið
liðna, að festast í þráhyggju/nostalg-
íu sjálfsásökunar, eða lenda í „ef og
þá“ þankagangi sjálfsvorkunn-
arpyttsins. Ef skíma dögunar á innri
himni hreinsar ekki steinrennum við,
verðum að minnisvörðum, hreyfing-
arlausum tröllum. Lömun þunglynd-
isins! Kannski er þetta rót melankól-
íunnar. Við erum afurð fortíðar okkar
jú, en það er fáránlegt að verða fangi
hennar - tjargað og fiðrað úrkast.
Hef á tilfinningunni að Sigrún vilji
losna.
MYNDLIST
GODDUR
Sigrún Hrólfsdóttir
Banananas
Laugavegi 80 - Barónstígsmegin
DÉJÀ-VU STEMMING Þetta er auðvitað
rómantísk sýn á alvöru skapandi lista-
mann. Tjörgun og fiðrun var hins vegar
refsing við hinum mestu svikum – höfnun
samfélagsins.
NÝJAR BÆKUR
bókavarða og bóka-
safnsfræðinga sem
starfað hafa um lengri
eða skemmri tíma án
þess að hafa átt aðild
að áðurnefndum
samtökum. Meðal
annars er greint frá
upphafi kennslu og
bókasafnsfræði við HÍ og þróun fræði-
greinarinnar síðustu áratugina.
Hjá Sölku er komin út bókin 101hollráð - Andleg uppbygging til
að grennast í eitt skipti fyrir öll eft-
ir Victoriu Moran. Bent
er á skynsamlegar
leiðir til að komast í
gott og varanlegt form
með innri styrk. Lykill-
inn er að rækta með
sér sjálfsvirðingu og
hlúa að líkama og sál.
Sýning á grafískri hönnun á
Íslandi í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsi
Félag íslenskra teiknara fagnaði
50 ára afmæli sínu á síðasta ári en
af því tilefni er efnt til fyrstu yf-
irlitssýningar félagsins í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningin er opnuð á föstudag.
Samtíminn horfir gjarnan sljóum
augum á umhverfi sitt og nytjalist
hversdagsins er oft ekki veitt
mikil athygli. Þó er nytjalistin
verðmætt verksummerki liðins
tíma sem endurspeglar tíðaranda,
þankagang og þjóðfélag af næmni
og innsæi sem hvorki rúmast inn-
an sagnfræðinnar né félagsfræð-
innar. Á sýningu Listasafns
Reykjavíkur verður grafísk hönn-
unarsaga á Íslandi rakin í gegnum
hina ýmsu miðla og birtingar-
myndir fram til dagsins í dag.
Efnisflokkar á sýningunni spanna
vítt svið allt frá spegilmynd liðins
tíma í formi auglýsinga, áróðurs,
peningaseðla, umbúða og mynd-
skreytinga, frá fyrstu sjónvarps-
grafíkinni, sjónvarpsauglýsingun-
um, bókunum og prentefninu til
þess ferskasta sem á sér stað í
grafískri hönnun í dag.
Kl. 17.03
Alla virka daga fer
Víðsjá í loftið á Rás 1
kl. 17.03. Þetta er sjóð-
heitur þáttur þar sem pistla-
höfundar taka á málefnum líð-
andi stundar og fjallað er á
ábyrgan og óábyrgan hátt um
menningarástandið og pólitísk-
an kúltúr í samtímanum; um
allt það sem er yfirborðskennt
og brilljant. Umsjónarmaður í
dag er Eiríkur Guðmundsson.
Nytjalist hversdagsins
!
MIÐVIKUDAGUR 13. október 2004