Fréttablaðið - 13.10.2004, Page 28
„Ég byrja daginn á því að hlaupa út
á Gróttu, svo fer ég í kaffi til ömmu
og síðan beint í vinnuna,“ segir
Ragnhildur Magnúsdóttir, mark-
aðsstjóri nýsköpunarfyrirtækisins
iPlús og útvarpskona á Mix 91,1
sem er svo önnum kafin að hún
hefur lítinn tíma til þess að halda
upp á 30 ára afmælið sitt í dag.
Fyrri hluta dags liggur hún yfir
markaðssetningarmálum á netinu
og segir aðspurð að það sé af og frá
að einhver drungi sé yfir netinu.
„Það kemur mér alltaf jafn mikið á
óvart þegar fólk er með efasemdir
um virkni netsins og mikilvægi
þess í samskiptum. Það liggur við
að ég sofi með tölvuna uppi í rúmi
og ég fer nánast í fráhvörf ef ég
kemst ekki á netið. Hjá iPlús nálg-
umst við fólk í gegnum netið og
erum með klúbbana fimman.is og
plúsinn.is, markaðssetjum vörur,
þjónustu og viðburði, sendum pósta
til skilgreindra markhópa og vinn-
um markaðs- og skoðanakannanir á
netinu fyrir ýmis fyrirtæki, stofn-
anir og einstaklinga og við birtum
til dæmis niðurstöður einnar slíkr-
ar í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.
Við störfum mikið með stórfyrir-
tækjum, bönkum, símafyrirtækj-
um, fjölmiðlum og tryggingafélög-
um. Þannig að við komum víða við
og svo vinnum við auðvitað líka
fyrir smærri fyrirtæki.“
Ragnhildur hefur verið rödd út-
varpsstöðvarinnar Kiss FM 89,5 og
þegar fer að skyggja snýr hún sér
að hljóðnemanum og dælir tónlist
út á öldur ljósvakans á útvarpsstöð-
inni Mix en þar er hún með þátt frá
klukkan 19-21 öll virk kvöld og af-
mælisdagurinn er engin undan-
tekning.
Ragnhildur tók forskot á sæluna
og hélt smá veislu um helgina. „Það
komu flestir nánustu vinir og ætt-
ingjar og það var alveg yndislegt.
Ég er afskaplega þakklát fyrir að
allt þetta fólk skuli vera til staðar
og hafi látið sjá sig. Þetta var svo-
lítið súrsætt þar sem foreldrar
mínir og bræður búa í Ameríku og
ég hitti þau því ekki oft.“
Sjálf ólst Ragnhildur upp í
Bandaríkjunum en settist að á Ís-
landi fyrir fjórum árum. Ragnhild-
ur segir að barnaafmælin sín í
Bandaríkjunum hafi oftast verið
náttfataparí. „Þá hittumst við stelp-
urnar, fórum í náttföt, átum yfir
okkur af nammi og dönsuðum í nátt-
fötunum við Prince og Pat Benatar.
Þetta var allt voða amerískt.“
Ragnhildur segist vera sátt við
þessi tímamót þó að æskuminning-
arnar séu góðar. „Það er bara
spennandi að verða 30 ára og mér
finnst lífið alltaf verða skemmti-
legra eftir því sem ég þroskast og
eldist. Það er skemmtilegra að vera
til og tilveran er einfaldari. Það
verður alltaf minna drama eftir því
sem maður eldist.“ ■
20 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
MARGARET THATCHER
Þessi skeleggi fyrrverandi forsætisráðherra Bret-
lands sem alla jafna gekk undir nafninu Járn-
frúin er 79 ára í dag.
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR: ER 30 ÁRA Í DAG OG ER ÁNÆGÐ MEÐ AÐ ELDAST
„Það yrði minna jafnvægi í kjarnorku-
vopnalausum heimi og hann yrði hættulegri
okkur öllum.“
- Orðið ógnarjafnvægi var feitletrað í orðabók Thatcher.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Snæbjörg Ólafsdóttir, frá Vindheimi í
Tálknafirði, er 90 ára í dag. Snæbjörg er
enn útivinnandi og er
án efa elsti starfsmaður
Reykjavíkurborgar en
hún vinnur í Árbæjar-
safni. Hún ætlar að
halda upp á stórafmæl-
ið með kaffiboði í Safn-
aðarheimili Árbæjar-
kirkju laugardaginn 16. október frá klukk-
an 16. Snæbjörg vonast til að sjá sem
flesta vini, vandamenn og vinnufélaga en
afþakkar blóm og afmælisgjafir enda tel-
ur hún sig ekki vanhaga um neitt.
ANDLÁT
Sigurður Jónsson, bóndi, Reynisstað,
Skagafirði, lést 8. október.
Bjarni Árnason, klæðskeri, Einarsnesi 50,
lést 2. október. Útförin hefur farið fram.
Bjarni Pálsson, Ólafshúsi, Blönduósi, lést
11. október.
Þórarinn Björn Magnússon lést 10.
október.
Guðný Svandís Guðjónsdóttir, áður Ara-
hólum 4, Reykjavík, lést 9. október.
Signe Ehrngren, áður til heimilis að Há-
teigi og Flókagötu 51, lést 11. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigríður S. Jakobsdóttir, hjúkrunarheim-
ilinu Eir, áður Álftahólum 8, lést 7. októ-
ber.
Björgólfur Stefánsson, Háholti 13, Kefla-
vík, lést 8. október.
Jóhann Ottó Guðbjörnsson, Skessugili
14, Akureyri, lést 10. október.
Árni Sveinsson, fyrrverandi útibússtjóri
Landsbanka Íslands, Starengi 10, lést 9.
október.
JARÐARFARIR
10.30 Örn Friðfinnsson, Dalalandi 1, verð-
ur jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
13.30 Kristín S. Steinsdóttir, Kleppsvegi
120, verður jarðsungin frá Áskirkju.
13.30 Jóna Guðlaug Þorgeirsdóttir, frá
Arnarnúpi í Dýrafirði, Stífluseli 4,
verður jarðsungin frá Seljakirkju.
15.00 Ólöf Kristín Þorgeirsdóttir, Hverfis-
götu 59, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
13.30 Helgi Guðbjörnsson, Kárastöðum,
Þingvallasveit, verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
14. október.
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR Settist óvænt að á Íslandi fyrir fjórum árum: „Ég kom hingað í heimsókn en ég á ótrúlega stóra fjöl-
skyldu hérna og fannst mál til komið að kynnast Íslandi betur. Þótt ég hefði alltaf komið hingað á sumrin fannst mér ég þurfa að tengj-
ast íslenskri menningu betur.“
Fjórir Palestínumenn rændu á þessum degi árið 1977 Lufthansa-flug-
vél í Þýskalandi og kröfðust þess að 11 meðlimir þýska hryðjuverka-
hópsins Baader-Meinhof, sem einnig gekk undir heitinu Rauða her-
deildin, yrðu látnir lausir. Rauða herdeildin var hópur öfga-vinstri
byltingarsinna sem unnu hryðjuverk í Þýskalandi í um þrjá áratugi og
tóku af lífi rúmlega 30 háttsetta aðila úr viðskiptalífinu, hernum og
stjórnkerfinu í tilraun sinni til að velta kapítalisma úr sessi í heima-
landi sínu.
Flugræningjarnir létu vélina fljúga til sex landa, en 17. október, fjór-
um dögum eftir að þeir rændu vélinni, lentu þeir í Mógadisjú í
Sómalíu eftir að hafa skotið einn flugmann vélarinnar. Snemma
næsta morgun réðst þýsk sérdeild að vélinni og náði að bjarga 86
gíslum og fella þrjá af fjórum flugræningjunum. Aðeins einn úr þýsku
sérdeildinni særðist. Seinna um daginn, eftir að fregnir af atburðin-
um bárust, frömdu leiðtogar Rauðu herdeildarinnar sjálfsmorð í klef-
um sínum í Stammheim-fangelsinu í Þýskalandi.
MERKISATBURÐIR
54 f.Kr. Rómverski keisarinn
Kládíus fyrsti deyr eftir að
Agrippína, eiginkona hans,
eitrar fyrir honum.
1775 Löggjafarsamkunda Banda-
ríkjanna fyrirskipar stofnun
flota.
1957 Bing Crosby og Frank
Sinatra kynna bifreiðina
Ford Edsel í klukkustundar-
löngum skemmtiþætti.
1962 Leikritið Who’s Afraid of
Virginia Woolf? er frumsýnt.
1981 Egypskir kjósendur velja
Hosni Mubarak varaforseta
arftaka forsetans Anwars
Sadat, sem var myrtur.
1984 Jesse Jackson kemur fram í
sjónvarpsþættinum Satur-
day Night Live.
1989 George Bush, forseti
Bandaríkjanna, lýsir því yfir
að hann vilji sjá Manuel
Noriega, leiðtoga Panama,
steypt af stóli.
Rúnar
Geirmundsson
Sigur›ur
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað
við undirbúning útfara.
Símar 567 9110, 893 8638 og 897 3020
Þegar andlát ber að
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Friðrik Stefánsson
Hvanneyrarbraut 2, Siglufirði
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði sunnudaginn 10. okt.
sl. verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 16. okt.
kl. 14.
Hrefna Einarsdóttir, Kristrún Sigurbjörnsdóttir, Sigrún Friðriksdóttir,
Jens G. Mikaelsson, Kolbrún Friðriksdóttir, Hjálmar Jóhannesson,
Sigurður Friðriksson, Jónína Kr. Jónsdóttir, Stefán Einar Friðriksson,
Jónbjörg K. Þórhallsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Liggur á dýnu og étur grasköggla
Einn nafntogaðasti íbúi Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, naut-
ið Guttormur, varð 12 ára í gær.
Hann tók tímamótunum með
stóískri ró og lífið gekk sinn vana-
gang enda líður dýrunum í Hús-
dýragarðinum best þegar röð og
regla er á hlutunum. Dagurinn
hófst því eins og allir aðrir dagar
í lífi Guttorms á þessum árstíma á
því að dýrahirðar mættu í fjósið
til hans á slaginu sjö og gáfu hon-
um tæpt kíló af graskögglum en
tarfurinn lætur jafnan vita ef hon-
um finnst fóðurgjöfin ganga of
hægt fyrir sig.
Guttormur deilir fjósi með
kúnum Búkollu og Slaufu og
tveimur nautkálfum sem enn hafa
ekki fengið nafn og á meðan kýrn-
ar eru mjólkaðar gæðir Guttorm-
ur sér á heytuggu. Að mjöltum
loknum fara Guttormur og kýrnar
út rétt á meðan verið er að þrífa,
en yfir sumartímann eru þau úti
nær allan daginn. Þegar þau koma
aftur inn er hey í jötunum hjá
þeim sem þau gæða sér á allan
daginn og taka á móti gestum í
fjósið.
Guttormur fékk dýnu í 10 ára
afmælisgjöf og á henni liggur
hann meira og minna allan dag-
inn. Seinni mjaltir hefjast klukk-
an 16.30 og þá fær Guttormur
seinni skammtinn af graskögglun-
um, tæplega eitt kíló og nægju
sína af heyi fyrir nóttina. Þannig
að það er ekki hægt að segja ann-
að en að lífið sé ljúft hjá þessu
nafntogaða nauti sem er ein helsta
stjarna Húsdýragarðsins. ■
GUTTORMUR Þetta sögufræga naut fagnaði 12 ára afmæli sínu í gær en tók lífinu með
ró. Át grasköggla og hey og flatmagaði á dýnunni sem hann fékk í afmælisgjöf fyrir tveim-
ur árum.
Meiri þroski og minna drama
13. október 1977ÞETTA GERÐIST
HRYÐJUVERKAMENN RÆNDU ÞÝSKRI FARÞEGAFLUGVÉL
Palestínumenn ræna þýskri flugvél