Fréttablaðið - 13.10.2004, Síða 38
30 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Hópur af krökkum úr Seljaskóla
myndaði hina sívinsælu Rokklinga
fyrir um fimmtán árum. Þeir hafa
nú fyrir löngu hætt öllum tónlist-
arflutningi og sinna ýmsum hugð-
arefnum hver í sínu lagi. Gamli
Rokklingurinn Júlíus Daníelsson
reynir nú fyrir sér í hinu íslenska
Idoli og því er upplagt að heyra
hljóðið í fleirum fyrrverandi
Rokklingum og hvort þeir hyggi
einnig á frægð og frama í tónlist-
arheiminum.
Sara Hrund Gunnlaugsdóttir
var ein af hinum ungu Rokklingum
sem öll börn dáðu fyrir um fimmt-
án árum. Hún hefur ekki kvatt tón-
listarheiminn enn þann dag í dag
og lærir nú músíkþerapíu við Há-
skólann í Álaborg í Danmörku. Að-
spurð um árin í Rokklingunum
segir hún: „Þetta var skemmtileg-
ur tími og góð reynsla sem við
hlutum af. Manni var nú stundum
strítt á þessu og stundum beðin um
að syngja en það var mjög sakleys-
islegt. Þetta var lærdómsríkur
tími og við lærðum að vera
sjálfsörugg og taka hlutina ekki of
alvarlega.“ Rokklingarnir tóku
bæði íslensk klassísk lög ásamt því
að þýða útlensk lög og má þar helst
nefna hin vinsælu Grease-lög. Þeg-
ar hún er spurð hvort hún myndi
taka þátt í endurkomutónleikum
Rokklinganna segir hún: „Ég veit
ekki hvort ég væri til í að koma
fram aftur með Rokklingunum en
það væri rosalega gaman ef við
gætum öll hist aftur,“ segir Sara,
sem á að baki smelli eins og Segðu
ekki nei og Fjör í Eyjum.
Bragi Þór Valsson er eftir-
minnilegur sem hinn ungi Danny
Zuco þegar Rokklingarnir þýddu
lagið Summer Lovin’ yfir á ís-
lensku og sungu þá um Sumarást-
ir. Hann hefur aldeilis ekki slitið
sig frá tónlistarheiminum og
syngur nú í óperunni Sweeney
Todd. Hann lærði kórstjórn í Flór-
ída og hefur hvort tveggja verið
að stjórna kórum og kenna tón-
mennt. Þegar hann minnist
Rokklingaáranna segir hann: „Við
vorum öll lögð í einelti, held ég.
Fyrst vorum við saman í Selja-
skóla og þá var þetta allt í lagi. En
þegar hópurinn klofnaði varð
þetta erfiðara. Þetta var samt
mjög gaman og ég væri alveg til í
að koma fram á tónleikum með
krökkunum aftur ef einhver
myndi fjármagna þá,“ segir Bragi.
Dröfn Ösp Snorradóttir, sem
var einn af fyrstu meðlimum
grúppunnar, sagði hins vegar skil-
ið við tónlistarheiminn um leið og
hún kvaddi Rokklingana. Hún
vinnur nú að BA-ritgerð sinni í
stjórnmálafræði. „Mér fannst
mjög gaman í Rokklingunum en
gamanið varði stutt því ég var rek-
in vegna listræns ágreinings. Við
vorum samt furðulega vinsæl á
þessum tíma. Krakkar hringdu oft
heim til manns og vildu fá að koma
í heimsókn og láta taka mynd af
sér með manni,“ segir Dröfn og
hlær. Aðspurð hvort hún myndi
taka aftur þátt í tónleikum með
Rokklingunum ef til þess kæmi
svarar hún: „Nei, ég held ekki. Ein-
faldlega vegna þess að ég tel mig
ekki hafa mikla burði til þess leng-
ur og hef öðru að sinna.“ ■
ROKKLINGARNIR Seldu grimmt af plötum sínum á árum áður og sjást hér taka við gullplötu árið 1991.
Deiluaðilar verða að
slá af kröfum
„Ríkið þarf að koma þarna
að, meðal annars vegna
fyrri aðgerða. Má þar
nefna breytinga ríkisins á
skattalöggjöfinni og samn-
inga ríkisins við framhalds-
skólakennara.
Síðan þurfa báðir samn-
ingsaðilar, kennarar og
sveitarfélög, augljóslega
að slá af kröfum sínum.
Þetta hefur verið hatrömm
deila sem kemur niður á
mjög mörgum, því ábyrgð deiluaðila mjög mikil og
nauðsynlegt að leysa málið sem allra fyrst. Það virð-
ist vera mjög langt á milli deiluaðila en báðir verða
að nálgast hinn. Svona gengur þetta ekki til lengdar.
Það er of mikið í húfi.“
Samningsvilji þarf að ríkja
„Báðir aðilar verða að horfa raunsætt á málið. Það
sem skiptir mestu máli er að deiluaðilar sýni vilja til
að semja og setji sig í spor hins. Það er ekki hægt að
ná samkomulagi nema aðilar komi að þeim með því
hugarfari að slá af kröfum, með einum eða öðrum
hætti. Traust þarf að ríkja milli aðila en ég veit ekki
hvort það traust er til staðar.
Það þarf einnig að ríkja
samningsvilji. Svo skiptir
máli að deiluaðilar hafi
stuðning úti í samfélaginu.
Það skortir kannski helst á
að kennarar hafi unnið
heimavinnuna áður en þeir
fóru út í kjarabaráttuna. Ég
hef fullan skilning á stöðu
þeirra en þeim hefur ekki
tekist að kynna málstað sinn
nægilega vel.“
Ríkið verður að taka
ábyrgð
„Þessi deila verður ekki
leyst nema ríkið komi að
henni. Við stöndum fram-
mi fyrir því að sveitafélögin
geta alls ekki staðið undir
þessum fyrirsjáanlegu
launahækkunum. Þegar
neyðin er stærst verður
hjálpin að vera næst og þá
verður ríkið að koma til
sögunnar. Það er ríkisvald-
ið sem hefur í mörgum til-
fellum svipt sveitafélögin
helstu tekjustofnum sínum með öðrum aðgerðum,
þannig að við hljótum að mega kalla þau til ábyrgðar.
Þá er ég til dæmis að vísa til þess að sum sveitafélög
sem eru verst stödd eru það vegna þess að atvinnu-
rétturinn hefur verið fluttur burtu.“
HVERNIG Á AÐ LEYSA KENNARADEILUNA?
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
...fær nautið Guttormur sem átti
tólf ára afmæli í gær. Guttormur
hefur skemmt ungum sem öldnum í
Húsdýragarðinum um langt skeið
og megi hann gera það áfram um
ókomna tíð. Hann lengi lifi!
HRÓSIÐ
– hefur þú séð DV í dag?
Hjónin í vopnabúrinu
á Hellissandi
Segja lögguna
vernda stóru
dópsalana
ROKKLINGARNIR: EINN ÞEIRRA ER NÚ AÐ KEPPA Í IDOL, EN AÐRIR VIRÐAST HÆTTIR AÐ ELTAST VIÐ FRÆGÐINA
Rokklingarnir í nýjum hlutverkum
SARA HRUND GUNNLAUGSDÓTTIR
Dvelur nú í Danmörku þar sem hún lærir
músíkþerapíu.
BRAGI ÞÓR VALSSON Hefur dvalið mikið
í Suður-Afríku og er nú giftur konu þaðan.
DRÖFN ÖSP SNORRADÓTTIR Vinnur
nú að BA-ritgerð sinni í stjórnmálafræði.
■ IMBAKASSINN Eftir Frode Överli
Lárétt: 1 fuglar, 6 svikara, 7 eldivið, 8
hljóm, 9 ven, 10 stúlka, 12 auðug, 14
skar, 15 íþróttafélag, 16 keyr, 17 lín,
18 svalt.
Lóðrétt: 1 innyfli úr fiski, 2 auð, 3
gremja - i, 4 heimsálfa, 5 raust, 9
gegnsær, 11 skunda, 13 sár, 14 agnúi,
17 tveir eins.
Lausn:
Lárétt: 1starar, 6lóm,7mó,8óm,9
tem,10mær, 12rík,14hró,15ka,
16ak,17tau,18kalt.
Lóðrétt: 1slóg,2tóm,3am,4amer-
íka,5róm,9tær, 11arka,13kaun,
14hak,17tt.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Íslendingar sigruðu 3-1.
Jón Þ. Þór.
Ísraels.
Heldurðu að það sé
eitthvað til í því sem
sagt er að hún haldi
framhjá honum?
Tjaa,
þú segir
það...
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON Þingmaður
Samfylkingarinnar
ÁSTA MÖLLER Varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins
MARGRÉT SVERRIS-
DÓTTIR framkvæmda-
stjóri Frjálslynda flokksins
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »