Fréttablaðið - 14.11.2004, Side 38
SVIPMYND
Kópasker: Kauptún við austanverð-
an Axarfjörð.
Íbúafjöldi: 138 um síðustu áramót.
Upphaf byggðar: Fyrsta íbúðarhúsið
var byggt 1912 og einnig sláturhús
en tveimur árum fyrr var vöruhús
Kaupfélags Norður-Þingeyinga reist
þar. Staðurinn var löggiltur verslun-
arstaður 1880.
Merkar minjar: Jörðin undir at-
vinnuhúsnæði Kópaskers geymir
jarðfræðilegar minjar, ein elstu set-
lög á landinu og steingervinga.
Helstu atvinnuvegir: Útgerð og
vinnsla sjávarafurða, ásamt þjónustu
við næstu sveitir.
Náttúruhamfarir: Í janúar árið 1976
urðu miklir landskjálftar á Kópaskeri
(um 6 á Richter) og flest mannvirki
skemmdust.
Frumkvöðlastarf: Á Kópaskeri hefur
símenntunarstöð verið starfrækt um
árabil. FræÞing heitir hún.
14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR12
Vissir þú ...
… að Egyptar til forna litu á sjálfa sig
sem rauðu þjóðina og máluðu lík-
ama sína með rauðum lit máli sínu
til stuðnings?
… að hjá Rómverjum til forna var
rauður litur tákn bardaga?
… að rauður litur er notaður á stöðv-
unarskyldu, bremsuljós og brunabíla
af því að hann sést svo vel úr fjar-
lægð?
… að á rússnesku er orðið „rauður“
samstofna orðinu „fallegur“?
… að Bolsévikar notuðu rauða fána
sem tákn sitt þegar þeir gerðu bylt-
inguna árið 1917, og þess vegna varð
rautt litur kommúnismans?
… að á Indlandi er rautt litur
hermanna?
… að í Suður-Afríku er rautt
sorgarlitur?
… að það er gæfumerki að hnýta
rauðan borða á nýjan bíl?
… að í Kína táknar rauður litur
heppni og er notaður sem hátíðalitur
og einnig við brúðkaup?
… að þeir sem eru hjátrúarfullir
halda að skrattinn óttist rauða litinn?
… að á Grikklandi eru egg lituð rauð
um páskana?
… að rauður er algengasti liturinn í
þjóðfánum?
… að það að sjá rautt þýðir að
sleppa sér af reiði?
… að ef fyrirtæki er á rauðu svæði er
það að tapa peningum?
… að þegar kínversk börn fá nafnið
sitt kallast dagurinn „dagur hinna
rauðu eggja“?
… að það að mála bæinn rauðan
þýðir að skemmta sér vel og lengi?
… að rauðhært fólk var talið tengjast
djöflinum og var stundum brennt á
báli fyrir það eitt að vera rauðhært?
Láttu drauminn rætast í rúmi frá Stearns & Foster
L a n g h o l t s v e g i 1 1 1 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 8 7 9 0 0
A f g r e i ð s l u t í m i v i r k a d a g a k l . 1 1 – 1 8 . o g l a u g a r d a g a k l . 1 1 – 1 4 .
Bandarísku hágæðarúmin frá Stearns & Foster eru heimsþekkt á meðal vandlátra
kaupenda fyrir gæði og glæsileika. Rúmin eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins hið
besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu
gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. Bandarísku neytendasamtökin
hafa í mörg ár útnefnt rúmin frá Stearns & Foster sem „bestu kaupin“.
Hágæðarúm
frá Stearns & Foster
30% afsláttur
Rýmum fyrir nýjum rúmum og bjóðum
því 30% afslátt af öllum rúmum í
sýningarsal. Aðeins 6 rúm í boði.
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Það var margt um manninn á Þingvöllum þegar ljósmyndari átti þar leið hjá á dögunum.
SJÓNARHORN
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM