Fréttablaðið - 23.11.2004, Side 8
23. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Fundað um friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs:
ESB sendir eftirlitsnefnd
BELGÍA, AP Evrópusambandið mun
senda eftirlitsnefnd til Palestínu
til að fylgjast með forsetakosning-
unum þegar kosið verður um eftir-
mann Jassers Arafat sem lést á
sjúkrahúsi í París 11. nóvember.
Nefndin sem Michel Rocard,
fyrrverandi forsætisráðherra
Frakka, mun stjórna verður
skipuð þingmönnum Evrópuþings-
ins. Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsríkjanna funduðu í gær
um hvernig best væri að koma
friðarviðræðum milli Ísraela og
Palestínumanna í gang á nýjan
leik. Jack Straw, utanríkisráð-
herra Bretlands, fer til Jerúsalem
og Ramallah seinna í vikunni þar
sem hann mun ræða við þarlenda
ráðamenn um friðarferlið.
Javier Solana, utanríkisráð-
herra Evrópusambandsins, og Ben
Bot, utanríkisráðherra Hollands,
verða fulltrúar Evrópusambands-
ins á fundi um málefni Ísraels og
Palestínu í Egyptalandi í dag. Á
fundinum verða einnig Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og
Sergey Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands. ■
ALÞJÓÐAMÁL Í dag lýkur tveggja
daga stefnumótunarfundi banda-
rísk-evrópsku stofnunarinnar
East-West Institute í Höfða í
Reykjavík, en fundurinn hófst í
gærmorgun.
East-West Institute er sjálfstæð
stofnun og var sett á laggirnar árið
1981. Hún hefur síðan beitt sér í
helstu deilumálum heimsins á
hverjum tíma og er ein stærsta
stofnun sinnar tegundar í dag.
Fundurinn er haldinn hér á landi
fyrir milligöngu Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands.
John E. Mroz er stofnandi og
forseti stofnunarinnar. Hann segir
að á fundinum munu fulltrúar
Bandaríkjanna, Bretlands og Rúss-
lands stilla saman strengi eftir ný-
afstaðin leiðtogakjör í Rússlandi,
Bandaríkjunum og Evrópusam-
bandinu og meta stöðu alþjóðamála
í ljósi hryðjuverkaógnar. Þá verði
einnig tekin fyrir umhverfismál,
sambúð Rússlands við Evrópusam-
bandið og aðstæður sem skapast
hafa í Mið-Austurlöndum við frá-
fall Arafats, en Mroz hefur dvalið í
Ramallah og Tel Aviv síðastliðna
viku og rætt við ráðamenn þar.
Mroz segir viðeigandi að fund-
urinn sé haldinn í Höfða. „Árið
1986 leituðu bandarísk stjórnvöld
til okkar og báðu okkur um að
kanna hvaða breytingar kynnu að
fylgja Gorbatsjov sem var þá ný-
kominn til valda. Í fyrsta skipti
skipuðum við sérstaka nefnd sem
vann skýrslu um málið og var nið-
urstaðan sú að Gorbatsjov vildi
koma á breytingum. Seinna um
árið funduðu hann og Reagan hér í
Höfða.“
Mroz segir að Vladimir Pútin
Rússlandsforseti hafi einnig leitað
til EWI þegar George Bush komst
fyrst til valda. „ Stefna Bush gagn-
vart Rússlandi var óljós til að byrja
með og rússnesk stjórnvöld leituðu
til okkar og báðu okkur um að
kanna hvernig Bandaríkin hygðust
haga samskiptum sínum við þau.“
Í hádeginu í dag heldur Mroz,
ásamt þremur öðrum forystu-
mönnum EWI, erindi við Háskóla
Íslands þar sem málefni Mið-Aust-
urlanda verða rædd, en Mroz telur
að betri aðstæður en oft áður hafi
skapast til að koma á varanlegum
friði milli Ísraels- og Palestínu-
manna.
bergsteinn@frettabladid.is
Hver er þessi
dularfulli Danny
Nova og hvaðan
kemur hann?
Eitthvað gengur ekki
upp og Will og hinar
stelpurnar ákveða að
taka til sinna ráða.
Spennandi saga eftir
danska verðlauna-
höfundinn Lene
Kaaberbøl.
Spennusaga um
Galdrastelpurnar!
KOMIN Í
VERSLANIR!
flýgur daglega til Bíldudals
Bíldudalur alla daga kl. 10:00 nema laugardaga og sunnudaga
kl. 14:15. Bókað á flugfelag.is og 456-2152 Finnbjörn.
• Sauðárkrókur þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8:15, föstudaga
og sunnudaga 16:45.
Bókað á flugfelag.is
• Hornafjörður alla daga kl. 8:30 nema þriðjudaga og laugardaga.
Föstudaga og sunnudaga kl. 16:15.
Bókað á flugfelag.is og 478-1750 / 478-1250 Vignir Þorbjörnsson.
• Vestmannaeyjar alla daga kl. 7:30, 12:00 og 18:45 nema laugar-
daga og sunnudaga kl. 12:00 og 16:45.
Bókað á flugfelag.is 481-3300 Bragi Ólafsson.
• Gjögur mánudaga og fimmtudaga kl. 13:45.
Þetta eru brottfarir frá Reykjavík.
LANDSFLUG
Þriðjudagstilboð
Fiskibollur
550.- kr/kg
Rútubílstjórar í Finnlandi:
Verkfalli
er lokið
FINNLAND, AP Verkfalli rútubíl-
stjóra í Finnlandi er lokið. Það
stóð í tvær vikur.
Samgöngur voru að komast í
samt horf í gær en einhverjir
hnökrar voru þó á þeim. Talið er
að þær verði komnar algjörlega í
lag í dag. Rútubílstjórarnir fóru í
verkfall til að gagnrýna breytta
stefnu fyrirtækjanna sem þeir
starfa hjá, sérstaklega fjölgun
hlutastarfa.
Fyrirtækin hafa nú orðið við
kröfum bílstjóranna. Verkfallið
hófst í borgunum Espoo og
Vantaa, en hafði einnig áhrif í
Helsinki og fleiri borgum. ■
ÍRAK, AP Æðsti sjíaklerkur Íraks,
Ali Husseini al Sistani, fordæmir
árás bandarískra hermanna á
moskuna Abu Hanifa í Bagdad.
Bandarískir hermenn réðust
inn í moskuna, sem er ein helgasta
moska súnnímúslíma, á föstudag-
inn. Þrír voru drepnir í árásinni,
fimm særðust og um 40 manns
voru handteknir.
Sistani fordæmdi árásina á
sjónvarpsstöðinni Al-Manar, sem
rekin er af Hezbollah. Sistani var
á dögunum gagnrýndur af
súnnímúslímum fyrir að fordæma
ekki árás bandarískra hermanna á
Falluja, þar sem meirihluti íbúa
er súnnímúslímar. ■
Árás á mosku:
Sistani fordæmir
ABU HANIFA
Um 40 menn voru handteknir í áhlaupi
hersins á moskuna í Bagdad.
JOHN E. MROZ
Þórólfur Árnason borgarstjóri tók á móti fundargestum og fræddi þá um Höfða. Lengst til vinstri er John Mroz, stofnandi og forseti East-
West Institute. Hann heldur erindi í dag í Háskóla Íslands um málefni Mið-Austurlanda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Viðeigandi að
funda í Höfða
Fjölþjóðastofnunin East-West Institute heldur stefnumótunarfund sinn
í Höfða í Reykjavík. Á dagskrá fundarins er meðal annars sambúð
Rússlands við ESB og friðarlíkur í Mið-Austurlöndum.
JACK STRAW
Utanríkisráðherra Bretlands fer til
Jerúsalem og Ramallah í dag.