Fréttablaðið - 23.11.2004, Síða 16
Nú er búið að tilkynna að skattar
verði lækkaðir. Þá eigum við öll
að verða voðakát. Mér finnst rétt
að lækka skatta hjá fólki sem
hefur lægstu launin og reyndar
ósvinna að það fólk borgi skatta
núna. Ég sé hins vegar enga
ástæðu til að lækka skatta hjá
öðrum. Réttara er að útvega
framhaldsskólunum og háskól-
unum næga fjármuni til að þeir
geti tekið við öllum þeim sem
vilja stunda þar nám. Í sumar
bárust þær fréttir að vegna fjár-
skorts gætu framhaldsskólarnir
ekki tekið við öllum nemendum
sem sóttu þar um. Því var snar-
lega bjargað og fjármunir útveg-
aðir. Það fór hins vegar ekki eins
hátt að einungis var hægt að taka
við þeim sem voru að útskrifast
úr grunnskóla, ekki hinum sem
af einhverjum ástæðum höfðu
einhvern tímann hætt námi.
Samt þykjast stjórnmálamenn á
tyllidögum hafa áhyggjur af
brottfalli úr skóla.
Ný hagfræðikenning hefur
verið sett fram í tilefni skatta-
lækkananna. Hún er sú að á
þenslutímum verði að draga
saman seglin og þess vegna þurfi
að lækka skatta, vegna þess að
annars eyði ríkissjóður alltof
miklum peningum. Ríkssjóður
eyðir nefnilega alltaf öllum þeim
peningum sem koma inn, varla
annað að heyra. Svei mér þá ef
það er ekki varaformaður fjár-
laganefndar Alþingis sem heldur
fram þessari nýju hagfræði. Það
er naumast að hann treystir
þeim vel sem fara með fjármál
ríkisins, en mann á kannski ekki
að undra skoðun þingmannsins.
Okkur hefur verið sagt nokkur
ár í röð að reksturinn á ríkissjóði
sé mjög aðhaldssamur og sam-
þykkt eru fjárlög sem eiga að
skila afgangi. Það er ekki talað
jafnhátt um ríkisreikninginn
sem kemur árum seinna og þá
kemur alltaf í ljós að ríkissjóður
var rekinn með halla. Ríksendur-
skoðun skrifar skýrslu um slæ-
legan rekstur á ríkissjóði og
ráðamenn segja að hún sé mis-
skilningur frá upphafi til enda.
Það eru alltaf allir að misskilja
allt í þessu þjóðfélagi, nema
ráðamennirnir.
Grunnskólakennarar fengu að
því er virðist bærilega launa-
hækkun. Ekki veitti af. Fyrir all-
mörgum árum var kennaranám
fært af framhaldsskólastigi yfir
á háskólastig. Því hlaut að fylgja
að grunnskólakennarar gerðu
kröfur um að fá laun sem hægt
er að bera saman við laun ann-
arra með sambærilega menntun.
Það virðist þó síður en svo hafa
legið í augum uppi. Allavega
þurftu grunnskólakennararnir
að leggja meira á sig en margar
aðrar stéttir til að ná sínu fram,
líklegast er það vegna þess að
stéttin er kvennastétt og konur
eru seinþreyttari til vandræða í
þessum efnum en karlar. En það
er samhengi í hlutunum, þó
menn vilji ekki horfast í augu við
það, og því hlaut að koma að því
að kennarar heimtuðu sitt.
Atvinnustefnan í landinu
byggist fyrst og fremst á stór-
iðju. Kárahnjúkana þarf ekki að
tala um. Varla líður sú vika að
ekki berist tíðindi úr einhverju
sveitarfélagi þar sem forsvars-
menn telja auðsætt að næsta
stóriðjuframkvæmd verði heima
hjá þeim. Stóriðju fylgja lág-
launastörf. Kannski er þrátt
fyrir allt eitthvert samhengi í
þessu öllu hjá ráðamönnum. Við
þurfum ekki vel menntaða kenn-
ara og við þurfum ekki peninga í
framhaldsskólana eða háskólana
vegna þess að við erum að
byggja upp þjóðfélag þar sem
vinnuaflið þarf frekar litla
menntun en mikla.
Við lækkum skattana og kom-
um upp einkareknum skólum og
einkareknum sjúkrahúsum ó
þeir sem vilja læra geta bara
borgað fyrir sig sjálfir og þeir
sem verða veikir geta líka borg-
að. Við þurfum enga stóra sam-
eiginlega sjóði til að standa und-
ir því, vegna þess að stjórnmála-
mönnunum er ekki treystandi.
Þeir eyða alltaf öllu sem þeir
komast yfir. Svona skil ég nýju
hagfræðina og samhengið í gerð-
um ráðamanna þjóðarinnar. Það
verður aldeilis gaman að eiga
heima hérna eftir tuttugu ár,
þegar mennta- og atvinnustefnan
hefur skilað sér til fulls. ■
Norðurskautsráðið kemur saman hér í Reykjavík nú í vik-unni. Íslendingar hafa gegnt formennsku í því umtveggja ára skeið og taka Rússar nú við forystu í ráðinu.
Formennska okkar er dæmi um meiri þátttöku Íslendinga í al-
þjóðlegu samstarfi nú á dögum, og hvernig við getum haft áhrif
á alþjóðavettvangi þótt smá séum. Í formennskutíð okkar hefur
verið gerð yfirgripsmikil skýrsla um mannlíf á norðurslóðum
og verður hún lögð fram á fundinum. Í skýrslunni er í fyrsta
skipti gerð samanburðarkönnun á lífsskilyrðum íbúa á norður-
slóðum. Við fyrstu sýn á landakorti virðist þessi heimshluti að
miklum hluta þakinn ís, en svo er ekki. Þau lönd sem eiga full-
trúa í Norðurskautsráðinu auk okkar eru Kanada, Danmörk
(fyrir Grænland og Færeyjar), Finnland, Noregur, Rússland,
Svíþjóð og Bandaríkin. Á þessu svæði búa um fjórar milljónir
manna sem tala mörg tungumál og eiga margskonar uppruna.
Landsvæðið sem um ræðir er um einn sjötti hluti jarðarinnar
eða um 30 milljónir ferkílómetra.
Heimskautalöndin búa yfir miklum náttúruauðlindum og
þar er umhverfið mun hreinna en víða annars staðar í heimin-
um. Það er því eftir miklu að sækjast að viðhalda byggð á þess-
um svæðum og nýta það sem þau búa yfir. Í skýrslunni er fjall-
að um þá möguleika sem þetta svæði heimsins býr yfir, og hvað
megi gera til að bæta lífskjör manna sem búa þar. Rætt er um
að nýta nútímatækni til að bæta lífskjörin, jafnframt því sem
sérstaða mannlífsins á þessum slóðum verði varðveitt. Í skýrsl-
unni er ekki horft fram hjá því að víða í þessum heimshluta er
við erfið félagsleg vandamál að glíma. Vandamálin mega hins-
vegar ekki verða til þess að menn gleymi góðum árangri sem
náðst hefur á öðrum sviðum. Við gerð skýrslunnar komust höf-
undarnir að því að víða er þekkingarskortur varðandi þetta
heimssvæði og það verður þá framtíðarverkefni Norðurskauts-
ráðsins að bæta úr því.
Í formála skýrslunnar segir Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra að í henni sé leitast við að víkka sjóndeildarhring okkar
með því að varpa ljósi á félagslega, efnahagslega og menning-
arlega hlið lífsins á norðurslóðum. Þá segir ráðherrann að
skýrslan ætti að ryðja brautina fyrir nýjar rannsóknir og auka
almennan áhuga á málefnum sem varða norðurheimskautið.
Það kemur í hlut Rússa að halda áfram því verki sem unnið
hefur verið í formennskutíð Íslendinga og vegna þessara tíma-
móta hjá Norðurskautsráðinu er von á utanríkisráðherra þeirra
hingað til lands í vikunni. Rússar ætla að leggja fram vinnu-
áætlun fyrir næstu tvö ár þar sem þeir segjast ætla að leggja
áherslu á þá stefnu sem Rússlandsforseti hefur markað varð-
andi norðurhéruð Rússlands. Þar er fjallað um félagslega og
efnahagslega þróun svæðisins, varðveislu þess og átak í um-
hverfisvernd, auk stuðnings við frumbyggja þess.
Rússar hafa oft og tíðum ekki verið taldir í fararbroddi í um-
hverfisvernd og í umgengni við náttúruna en þeir hafa í seinni
tíð tekið sig á, ekki síst vegna hvatningar og með aðstoð
norrænna nágranna sinna. ■
23. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
FRÁ DEGI TIL DAGS
Samhengi hlutanna
Málsvörn og minningar
Matthías Johannessen fyrrverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins hefur sent frá
sér ritið Málsvörn og minningar sem
útgefandinn Vaka-Helgafell kallar
„uppgjör við samtímann“. Ekki er víst
að það sé góð lýsing á innihaldinu því
hér er frekar um að ræða athuga-
semdir og vangaveltur
Matthíasar um sam-
tíma og skáldskap,
lífið og listina. Björn
Bjarnason dóms-
málaráðherra, sem var
samstarfsmaður hans
á Morgunblaðinu
um árabil, ritar
um bókina á
heimasíðu sína
og staldrar við
eftirfarandi ummæli í dagbókarfærslu
frá 16. október árið 2000 sem Matthí-
as birtir í bókinni. Matthías hefur þá
hitt Davíð Oddsson á förnum vegi:
„Davíð nefndi ekki að ég væri að
hætta á Morgunblaðinu, hvað þá að
hann hefði hug á taka við af mér. Með
því að segja mér frá því að þeir Hall-
dór Ásgrímsson hefðu átt gott samtal,
held ég hann hafi verið að gefa mér í
skyn að hann hefði ekki áhuga á mínu
starfi við blaðið. Ég sagði við hann að
augljóst hefði verið að Halldór hefði
verið orðinn argur í stjórnarsamstarf-
inu, en þá svaraði Davíð, Ég var líka
orðinn mjög argur!“
Davíð ritstjóri?
Ólíklegt er að venjulegur lesandi skilji
hvað Matthías er að fara þarna því
aldrei hefur verið skýrt frá því opinber-
lega að einhverjir í hópi eigenda
Morgunblaðsins munu hafa haft
áhuga á því að Davíð yrði ritstjóri þeg-
ar Matthías hætti. En gefum Birni orð-
ið: „Hér er margt sagt í fáum orðum,
en eins og við vitum hætti Matthías á
blaðinu, án þess að ritstjóri yrði ráðinn
í hans stað, heldur tveir aðstoðarrit-
stjórar í tilraunaskyni auk annarra
breytinga á yfirstjórn ritstjórnar. Ég
ætla ekki að leggja út af þessum orð-
um Matthíasar hér og nú, en endurtek
að í bók hans er að finna mikinn fróð-
leik ... Matthías var ritstjóri Morgun-
blaðsins í meira en 40 ár og hann hef-
ur greinilega kviðið því að hætta á
blaðinu.“
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI
RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is
SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
ORÐRÉTT
Stóð það til?
Ekki benda á mig!
Fyrirsögn greinar eftir Birgi Her-
mannsson stjórnmálafræðing.
DV 22. nóvember.
O tempora! O mores!
Fyrir tæplega hálfri öld sátu
kaupsýslumenn í hádeginu á
Grilli, Holti eða Nausti og létu
færa sér séreldaðan mat. Sumir
voru þar í hverju hádegi. Nú
standa þeir í biðröð á Vox til að
sækja sér forunninn mat. Í
mesta lagi einu sinni í viku.
Jónas Kristjánsson ritstjóri saknar
gömlu góðu daganna.
DV 22. nóvember.
Vegir Drottins
Kirkjukúrinn góður fyrir þá sem
elska að borða.
Fyrirsögn fréttar um nýjan megrun-
arkúr í Keflavík.
Morgunblaðið 22. nóvember.
Enginn öryrkjataxti
Forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur fer um áramótin í sex
mánuði til að kynna sér gang
mála í Brussel fyrir Samband
íslenskra sveitarfélaga. Árni
Þór Sigurðsson fær 600 þúsund
krónur á mánuði í laun og má
leigja sér íbúð á 250 þúsund á
mánuði og verja 300 þúsundum
mánaðarlega í annan dvalar-
kostnað.
Frétt undir fyrirsögninni „Tíu millj-
ón króna Brussel-ferð Árna“.
DV 22. nóvember.
Réttlætið verra
Vont er þeirra ranglæti en verra
er þeirra réttlæti var einhverju
sinni sagt. Það á svo sannarlega
við um núverandi ríkisstjórn Ís-
lands.
Ögmundur Jónasson þingflokksfor-
maður Vinstri grænna.
Morgunblaðið 22. nóvember.
Svoldið flókið?
Ísland hefur þá sérstöðu að fáar
ríkar þjóðir hafa glatað jafnstór-
um hluta af þeim auðlindum
sem felast í gróðri og jarðvegi.
Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri
Hrunamannahrepps.
Morgunblaðið 22. nóvember.
Viðskiptafræði fyrir lengra
komna
Nú er það ekki þannig að það
borgi sig aldrei að fara út í sam-
keppni í verði.
Friðrik Eysteinsson rekstrarhag-
fræðingur.
Viðskiptablaðið 19. nóvember.
Segðu!
Það er ljúf atvinna að vera vín-
bóndi, í fegurð og sól, á indælum
vínekrum...
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur
skrifar frá Frakklandi.
Morgunblaðið 22. nóvember.
Í DAG
SKATTALÆKKANIR
VALGERÐUR
BJARNADÓTTIR
Mér finnst rétt að
lækka skatta hjá
fólkinu sem hefur lægstu
launin og reyndar ósvinna
að það fólk borgi skatta
núna. Ég sé hins vegar enga
ástæðu til að lækka skatta
hjá öðrum.
,,
Formennska okkar er dæmi um meiri þátttöku
Íslendinga í alþjóðlegu samstarfi nú á dögum.
Líf á norður-
slóðum