Fréttablaðið - 23.11.2004, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2004
Ljúffeng máltíð með lágmarks fyrirhöfn
Balti • Korma • Sweet & Sour • Tikka Masala
GRÆNA BÚÐIN ehf.
Eddufelli 2, 111 Rvk.
S-fax 557-8100
netfang: ccw@ccw.is
veffang: www.ccw.is
Sigurlaug s. 821-6174
Umboðsaðili fyrir Oshadi nudd- og ilmkjarnaolíur og
Custom Craftworks nudd- bekki og stól, snyrtistól og aukahluti.
Verslun þri. 14 - 18:30 laug. 11 - 15
Jóga mán - mið - föst. kl. 16:30 - 18:30
Hugleiðsluhópar fyrir byrjendur
og len gra komna, mán - mið kl. 20:30
Heilun við sorg, reiði, þunglyndi, kvíða...
Kærleikssamtökin sjá www.ccw.is
Fyrir bætta líðan og betri stjórn á lífi þínu.
• Virk leið til sjálfsstyrkingar
• Helgar- og kvöldnámskeið
• Gjafakort - upplögð jólagjöf!
Hafðu samband í síma 553 3934
milli kl. 10 og 12 virka daga.
Guðrún Óladóttir reikimeistari
Reiki
Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK
FRÍ HEIMSENDING
Nánari
uppl‡singar
á somi.is
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ GINSENG
FÆST Í APÓTEKUM,
HAGKAUP, NETTÓ, SAMKAUP,
SPARKAUP, NÓATÚNI,
ÚRVALI OG STRAX.
Aukin líkamleg orka
og andleg vellíðan
Besta leiðin til að stuðla að bein-
um tönnum er að ungbörn séu á
brjósti. Þetta er niðurstaða
ítalskrar rannsóknar sem greint
er frá á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC. Í henni var komist að
því að ungbörn sem drukku af
pela og sugu þumalinn fyrsta árið
voru tvisvar sinnum líklegri til að
fá skakkar tennur en börn sem
fengu brjóstamjólk. Skýringin er
sú að börn beita munninum á ann-
an hátt þegar þau sjúga brjóst en
pela. Það hefur áhrif á hvernig
tennurnar raðast í góminn. Þó að
börnin missi síðar barnatennurn-
ar og fái fullorðinstennur er talið
sýnt að staðsetning barnatanna
hafi áhrif á hvernig fullorðins-
tennurnar raðast. ■
Natural Calcium er lífrænt kalk
unnið úr kalk- og steinefnarík-
um sjávarþörungum, car-
bonat kalk. Natural Calcium
er eina kalkið á markaðin-
um sem er vottað lífrænt og
er algerlega laust við auka-
efni eða dýraafurðir. Sam-
anburðarrannsóknir sýna
betri upptöku í beinin af líf-
rænu kalki. Kalkið fæst bæði
í hylkjum og í nær bragðlausu
dufti. Ein teskeið af duftinu er
dagskammtur, þægilegt að
blanda út í safa, jógúrt, kakó
eða annan mat. Kalkið er auð-
melt og veldur ekki melting-
artregðu. Það hentar til
dæmis fólki með mjólkur-
óþol. Natural Calcium fæst í
apótekum og versluninni
Maður lifandi. Framleiðandi
kalksins er Lifestream og
umboðsaðili Celsus ehf. ■
Börn hafa mjög gott af brjóstamjólk.
Brjóstamjólk og
beinar tennur
Börn sem ekki eru á brjósti fá frekar skakkar tennur.
Lífrænt kalk úr þörungum
Fæst bæði í dufti og hylkju
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Síðuspik
Ert þú með síðuspik?
Fer síðuspikið í taugarnar á þér?
Í næstu hollráðum mun ég fjalla um
hvernig best er að losna við síðu-
spik. Ef þú ferð eftir því sem ég legg
fyrir þig, kæri lesandi, munt þú ná
að ganga verulega á fituforða líkama
þíns og þar með talið hið alræmda
síðuspik. Áður en við byrjum að
hugleiða hvernig við brennum síðu-
spiki þurfum við að gera okkur grein
fyrir því af hverju síðuspik verður til.
Hvernig verður síðuspik til?
Líkaminn notast aðallega við þrjú
orkuefni. Þau eru fita, kolvetni og
prótín, reyndar er fjórða orkuefnið
alkóhól en við skulum láta það
liggja á milli hluta. Orkuefnin eru
geymd í líkamanum og mynda orku-
forða hans. Orkuefni þýðir einfald-
lega efni sem gefur okkur orku, þá
orku sem við lifum á og göngum fyr-
ir. Auk þess eru prótín og fita aðal-
uppbyggingarefni líkamans. Ef við
hugsum okkur líkamann sem bíl þá
er bíllinn úr prótíni og fitu meðan
hann notar kolvetni meira eins og
bensín.
Hvers vegna fitnum við?
Við fitnum, svo til undantekningar-
laust, vegna þess að við neytum
fleiri hitaeininga en við brennum. Þá
er sama hvaða orkuefni við innbyrð-
um því kolvetni, prótín og fita verða
öll að fitu sé þeirra neytt í of miklu
magni, þó líklegra verði að teljast að
líkaminn geymi fitu sem fitu en kol-
vetni eða prótín þar sem hann þarf
að hafa fyrir því að umbreyta síðar-
nefndu efnunum yfir í fitu áður en
hann geymir þau.
Hvar eru orkuefnin geymd?
Kolvetnin eru geymd í mestu magni
í lifrinni, svo í vöðvunum og í
minnstu magni í blóðinu. Vöðvar,
húð, hár, bein og fleiri vefir líkamans
„geyma“ prótínefnin. En hvar er fitan
geymd?
Ástarhandföng?
Líklega væru flestir alveg sáttir við
að vera lausir, altént að mestu, við
hin svokölluðu ástarhandföng.
Ástæðan fyrir því að við fáum ástar-
handföng er að við geymum öll fitu
á fyrir fram ákveðnum stöðum, en
það ræðst mest af erfðum.
Epli og perur - karlar og konur?
Almennt er talað um tvær tegundir
fitusöfnunar; annars vegar þeir sem
verða eins og epli í laginu þegar þeir
fitna, fitna meira á efri hluta líkam-
ans; hins vegar þeir sem verða eins
og pera í laginu, fitna meira á neðri
hluta líkamans. Eplalagið er oftar
kennt við karla og perulagið við kon-
ur. Þó eru vissulega til karlar sem
fitna meira eins og konur og öfugt.
Besta leiðin til þess að losna við ást-
arhandföngin er að stunda líkams-
rækt sem er frekar orkufrek. Sjálfur
hef ég alltaf sagt að besta aðferðin til
þess að brenna fitu og grennast sé
gott, reglulegt og kraftmikið kynlíf
plús vatn og svefn! Líklega er það
skemmtilegasta líkamsræktin! Þó er
nokkurn veginn sama hvaða líkams-
rækt er stunduð, eina skilyrðið sem
hún þarf að uppfylla er að hún örvi
hjartsláttinn.
Í næsta hollráði mun ég fjalla um
hvernig best er að taka fyrstu skrefin í
áttina að því að losna við síðuspikið.
Sölvi Fannar
Viðarsson er
framkvæmda-
stjóri Heilsu-
ráðgjafar. Hann
hefur starfað
við einkaþjálfun
og heilsuráðgjöf
um árabil.
Alzheimer dregur úr minni, náms-
færni, samskiptahæfileikum,
dómgreind og skynsemi auk þess
sem hæfni til daglegra at-
hafna verður sífellt minni.
Samkvæmt bandarísku
aldursrannsóknarstöðinni
þjást um 4,5 milljónir
Bandaríkjamanna af Alzh-
eimer. Engin lækning
finnst við þessum sjúk-
dómi en daglega finnast
samt aðferðir til að halda
honum í skefjum. Suma
áhættuþætti varðandi
Alzheimer er ekki hægt að ráða
við svo sem öldrun og erfðir. En
það er hægt að fresta sjúkdómn-
um og halda honum í skefjum með
eftirfarandi aðgerðum:
-Stefndu að heilbrigðu hjarta.
Hár blóðþrýstingur og hjartasjúk-
dómar auka líkurnar á því að þú
fáir minnissjúkdóma. Það
er hægt að stjórna hvoru
tveggja með því að halda
þyngdinni, kólesteróli og
blóðsykri í skefjum.
-Stundaðu reglulega
líkamsþjálfun. Líkams-
rækt heldur stöðugu blóð-
flæði til heilans og minnk-
ar líkurnar á hjartasjúk-
dómum og heilablóðfalli.
-Þjálfaðu hugann líka. Ráddu
krossgátur, lestu góðar bækur,
farðu á námskeið. Þannig geturðu
styrkt heilasellurnar. ■
Að halda heilanum heilum
Alzheimersjúkdómurinn herjar á heilann.