Fréttablaðið - 23.11.2004, Side 25
Ríkisstjórn Íslands hefur í hyggju
að selja Landssíma Íslands hf. og
um leið tryggja takmarkaða sam-
keppni á markaði. Samkeppnin
verður takmörkuð að því leyti að
ríkisstjórnin hyggst einkavæða
grunnnetsrekstur Landssíma Ís-
lands hf. með fyrirtækinu og þá
um leið tryggja nýju fyrirtæki
á markaði einokunaraðstöðu á
grunnnetssviði. Það er einkenni-
legt og í raun dularfullt að ríkis-
stjórn Íslands skuli ekki nota tæki-
færið og tryggja ótakmarkaða
samkeppni á markaði með því að-
skilja grunnnetið frá sölu Lands-
síma Íslands hf. Sá sem pistilinn
skrifar hefur lagt fram tvær fyrir-
spurnir á Alþingi sem lúta að
þessu máli. Sú fyrri var til sam-
gönguráðherra þar sem spurt er
hvort hægt sé að aðskilja grunn-
línukerfi Landssíma Íslands hf.
frá fyrirtækinu. Hvort það sé
tæknilega flókið og ef svo er, á
hvaða hátt? Sú seinni var til fjár-
málaráðherra en þar var spurt um
eftirfarandi:
a) Hvert er talið söluandvirði
grunnlínukerfisins á markaði nú
og hversu hátt hlutfall er það talið
vera af söluandvirði Landssíma Ís-
lands hf.? b) Hefur verið athugað
hvort gerlegt sé fyrir ríkið að selja
Landssíma Íslands hf. án grunn-
línukerfisins og ef svo er, hverjar
voru niðurstöðurnar? c) Hefur
verið athugað hvort ríkið geti not-
ið tekna af grunnlínukerfinu eftir
aðskilnað frá Landssíma Íslands
hf. og ef svo er, hverjar voru nið-
urstöðurnar? Þessum fyrirspurn-
um hefur enn ekki verið svarað.
Í umræðunni hefur margsinnis
verið rætt um grunnlínukerfi
Landssíma Íslands hf. Ég tel rétt
að fólkið í landinu upplýsist betur
um grunnnetið, úr hverju það er
og hvaða hlutverki það gegnir.
Einfalda hluti má misskilja og
hætt er við að ryki sé kastað í augu
almennings þegar jafn viðamikil
hagsmunarmál eru til umfjöllunar
í þjóðfélaginu.
Í fyrsta lagi má nefna kopar-
netið eða allar heimtaugar og
leigulínur sem tengjast beint í hús
til notanda. Þá kemur að ljósleið-
aranetinu en kerfið er umhverfis
landið og í þriðja lagi er svokallað
SDH net en þar um að ræða fjöl-
rásakerfið sem byggt er ofan á
kopar og ljósleiðaranetið. Fyrir-
tæki sem vilja veita almenna tal-
símaþjónustu eða DSL þjónustu
verða að ráða yfir aðgangi að
heimtaug til notandans með einum
eða öðrum hætti. Hér á landi er
einungis um eitt heildstætt
grunnnet að ræða. Það er enginn
annar kostur í stöðunni. Víða ann-
ars staðar eru fleiri kostir í stöð-
unni m.a. í Benelux-ríkjunum.
Uppbygging á nýju neti kostar
óheyrilega mikið fjármagn en
þess má geta, að við skattborgarar
greiddum fyrir grunnnetinu, eins
og það liggur fyrir í dag. Því má
segja, að ef Landssími Íslands hf.
fari á markað með grunnnetinu, þá
muni einokunarstaða fyrirtækis-
ins ekkert breytast. Alla vega ekki
er varðar koparnetið. Ef hægt er
að aðskilja grunnnetið frá fyrir-
tækinu þá um leið gefst stjórn-
málamönnum gullið tækifæri til
að afstýra því að eitt fyrirtæki á
markaði njóti einokunaraðstöðu.
Ef einkavæða á Landssíma Íslands
hf., þá verður sú einkavæðing að
vera háð því skilyrði að fyrirtæk-
inu verði skipt upp og grunnlínu-
kerfi fjarskipta á Íslandi tilheyri
áfram íslensku þjóðinni. ■
Ef einkavæða á
Landssíma Íslands
hf., þá verður sú einkavæð-
ing að vera háð því skilyrði
að fyrirtækinu verði skipt
upp og grunnlínukerfi
fjarskipta á Íslandi tilheyri
áfram íslensku þjóðinni.
Einokun á fjar-
skiptamarkaði
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2004
Heldur uppi merki Novosti
Ég sagði frá því í síðasta pistli, að ég hefði
heimsótt kommúnistasafn í Prag. Þar
voru sýnd áróðursplaköt gegn Bandaríkj-
unum og þegar þau eru skoðuð kemur í
ljós, að í þeim er einmitt sami tónn og í
þessum leiðara Jónasar Kristjánssonar
[um að stjórnendur Bandaríkjanna ættu
heima á hæli]. Þegar ég starfaði sem
blaðamaður á Morgunblaðinu fengum
við daglega sendingu úr sovéska sendi-
ráðinu í nafni Novosti-fréttastofunnar og
var uppistaðan í þeim áróðri, að ofstæk-
ismenn, sem best væru geymdir á hæli,
stjórnuðu ferðinni í Bandaríkjunum og
ógnuðu heimsfriði – nú er Novosti á
öskuhaugi sögunnar en Jónas Kristjáns-
son heldur merkinu enn á loft!
Björn Bjarnason á bjorn.is
Sakna Þórólfs
Ég held að fólk sakni Þórólfs [Árnasonar]
almennt og virðist mér almennur vilji
innan Ungra jafnaðarmanna til að fá
hann á fullt í pólitík. Það verður tíminn
þó að leiða í ljós.
Stefán Ómar Stefánsson á politik.is
Meðferðarkerfið til endur-
skoðunar
Það er löngu kominn tími til þess að allt
meðferðarkerfið á Íslandi verði skorið
upp og tekið til endurskoðunar. Það er
að mörgu leyti þannig að SÁÁ rekur fag-
legt og gott sjúkrahús þar sem áralöng
þekking hefur safnast saman og fagfólk í
flestum stöðum. Hins vegar er ótækt að
fárveikir vímuefnasjúklingar með geð-
sjúkdóma séu þeir fyrstu sem verða fyrir
niðurskurðarhnífnum. Þetta er kolröng
forgangsröðun. Hvers vegna eru afeitr-
unarstöðvar á Íslandi fleiri en ein? Hver
vegna má ekki reka þessa starfsemi
miðlægt eins og aðra hluta heilbrigðis-
þjónustunnar? Hér er ekki átt við að
einn aðili geri allt en í dag er það þannig
að margar stofnanir og staðir sinna
þessari þjónustu og flestir þessara aðila
tala ekkert saman.
Grímur Atlason á vg.is/postur
Billegt svar Steinunnar
Steinunn Valdís Óskarsdóttir sagði í
þætti hjá Jóni Ársæli að kannski væri
bara talað svona um sig af því hún er
kona. Hún var að svara því hvort hún
væri málamiðlun – óvæntur sigurvegari í
einhvers konar pólitískum Survivor leik.
Ég vona að ég sé að fara rétt með, sá
bara kynningu á þættinum þar sem
þetta kom fram. En þetta er svolítið
billegt svar. Atburðarásin innan R-listans
var vissulega þannig að enginn bjóst við
Steinunni sem borgarstjóra. Ekki hefur
hún atfylgi sitt til dæmis vegna sigurs í
prófkjöri. Eða vegna þess að hún hafi
verið talin öflugt leiðtogaefni sem hrífur
borgarbúa. Hún varð borgarstjóri vegna
þess að eftir mikið makk gátu VG og for-
ysta Framsóknar sætt sig við hana.
Egill Helgason á visir.is
Vinstristjórnin hækkar skatta
Það kemur líklega fáum á óvart að
vinstristjórnin í Reykjavík hafi nú ákveð-
ið að hækka skatta á borgarbúa, en út-
svar næsta árs hækkar úr 12,7% í
13,03%, og raunar hækka fasteigna-
skattar á íbúðarhúsnæði jafnframt. Það
hefur ítrekað sannað sig að vinstrimenn
treysta einstaklingum ekki fyrir sínum
eigin fjármunum. Af einhverjum ástæð-
um virðast þeir telja að stjórnmálamenn
séu betur til þess fallnir að eyða pening-
um skattgreiðenda
Ragnar Jónasson á sus.is
GUNNAR ÖRN ÖRLYGSSON
ALÞINGISMAÐUR FRJÁLSLYNDA
FLOKKSINS
UMRÆÐAN
FJARSKIPTI
,,
AF NETINU
Merkimiðar við hendina
• Á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og
Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír
og plast, stærðir eftir vali, allt að eins
meters langa
• Allt að 62 mm breidd
• 50 miðar á mínútu
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti merkimiðaprentarinn
á markaðnum
Umboðsmenn um land allt
Kynningarverð t i l áramóta
Nýbýlavegi 14, Kópavogi.
Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is
www.rafport.is
QL-550
12.999 kr.
A
ug
l.
Þó
rh
ild
ar
1
39
0.
37