Tíminn - 07.09.1973, Qupperneq 6
TÍMINN
Föstudagur 7. september 1973
1
Hér eru menn heldur betur I þungum þönkum, enda betra, að rétt verð sé skrifað á skrána
Sögur úr
biblíunni
Komin er út hjá Rikisútgáfu
námsbóka bók, sem Siguröur
Pálsson kennari hefur tekið sam-
an, og nefnist hún Góði hiröirinn.
Bókin er ætluð 2. og 3. bekk
barnaskóla til lesturs og umræðu.
Efnið er úr bibllunni, nokkuð að
jöfnu úr Gamla og Nýja testa-
menti.
Reynt var að velja sögurnar
sem bezt við hæfi barna og segja
þær á máli, sem ungir lesendur
skilja vel, og halda þó um leið
hefðbundnum málblæ bibliu-
sagna.
Tilvitnanir og bendingar varð-
andi efni bókarinnar eru á öftustu
siðu. Er þess að vænta, að þær
komi kennurum að notum.
I bókinni eru margar myndir
eftir Baltasar, prentaðar í litum.
Bókin er 64 bls. að stærð i stóru
broti. Setningu og prentun annað-
ist Litbrá hf., en bókband var
unnið i Bókfelli hf.
Dýrmæt áritun Sveins Björnssonar og Björns Þórðarsonar:
FYRSTADAGSUMSLAG FRÁ 1944 MEÐ
Benedikt
á vinafund
ÁRITUN ÞEIRRA FÓR Á 20 ÞÚSUND
á uppboði Félags frímerkjasafnara að Kjarvalsstöðum
EJ-Reykjavik. — A miðvikudags-
kvöldið fór fram frlmerkjaupp-
boð aö Kjarvalsstöðum á vegum
Félags frimerkjasafnara, og voru
þar seld frlmerki fyrir samtals
rúmlega 330 þúsund krónur. Mest
átök urðu um fyrstadagsumslag
frá lýðveldisstofnuninni 1944, en
þetta umslag var áritað af Sveini
Björnssyni, forseta, og Birni
Þórðarsyni, forsætisráðherra
utanþingsstjórnarinnar. Skráð
lágmarksboð I þetta umslag var
aðeins 2500 krónur, en þegar yfir
lauk fór það á 20.500 krónur eftir
harða samkeppni.
Frlmerkjauppboðið fór fram i
Myndlistarhúsinu við Miklatún,
Kjarvalsstöðum, þar sem nú
stendur yfir frimerkjasýningin
„Islandia 73”. Uppboðið hófst
klukkan rúmlega 20, og var upp-
boðssalurinn þá þéttskipaður
fólki á öllum aldri, Islending-
um og erlendum frlmerkjasöfn-
urum, sem fjölmennt hafa á sýn-
inguna.
A uppboðinu voru rétt tæplega
200 gripir, en um flesta þeirra
uröu litil átök meðal bjóðenda.
Enginn vildi bjóða i 26 númer, og
41 uppboðsnúmer fór á skráðu
lágmarksverði. Meðal þeirra
gripa, sem ekki gengu út, voru
sumir þeir, sem skráð höfðu hæst
lágmarksverð, svo sem Lindner-
albíím á 28 þúsund, og albúmið
Frimerkjasýningár á íslandi,
sem hafði að geyma 72 umslög og
5kort og var skráð á 15000 krónur.
Fór hægt af stað
Uppboðið fór frekar hægt af
stað. Enginn bauð i fyrsta upp-
boösnúmerið, en slöan komu
mörg númer, sem fóru á lágu
verði, innan við eitt þúsund krón-
ur. Einstaka sinnum kom þó til
nokkurrar samkeppni, er tveir
menn — og einstaka sinnum fleiri
— vildu fá sama gripinn. I ein-
staka tilfellum margfaldaðist
skráð lágmarksverð, en oftast
var þó um nokkur hundruð króna
hækkanir að ræða.
Nokkur dýr merki
Inn á milli komu nokkur fri-
merki, sem fóru á hærra verði.
Má þar sérstaklega nefna eitt sett
af Alþingishátiðarfrimerkjum frá
1930, óstimpluð. Dýrasta settið af
þessum frimerkjum fór á 9600
krónur.
Nokkur söfn
Þá voru nokkur söfn seld undir
lokin. Innstungubók með kompl.
safni af Islenzkum merkjum frá
1944 til 1973 (eitt af hverju
merki), öll stimpluð, fór á 5.500
krdnur, og Ghanasafn, konpl. i
Lindner albúmi, fyrir árin 1957 til
1969, fór á 12 þúsund krónur.
Keppnin um lýðveldis-
umslagið
En mesta keppnin var um lýð-
veldisumslagið, sem áður er
nefnt. Þetta var fyrstadagsum-
slag meðlýðveldisfrimerki frá 17.
júni 1944, stimplað. Það, sem
gerði þetta umslag svo eftirsókn-
arvert, var þó fyrst og fremst, að
það var áritað af tveimur helztu
forystumönnum þjóðarinnar á
þessum tima, þeim Sveini
Björnssyni, forseta, og Birni
Þórðarsyni, forsætisráðherra.
Skráð lágmarksboð var 2.500.-,
en fljótlega færðist fjör i leikinn,
og gekk boðið milli fjögurra
manna. Þeir helltust smátt og
smátt úr lestinni eftir þvi sem
upphæðin hækkaði, þar til
umslagið var slegið á 20.500 krón-
ur. Annað sams konar umslag,
nema hvað áritanirnar vantaði,
fór á 2300 krónur, og er þvi auð-
séð, að I augum safnara eru þess-
ar áritanir mikils virði.
Þessi keppni var hápunktur
uppboðsins, sem I heildina var
fremur rólegt.
Samtökin „Friends of Iceland”
gangast fyrir kynningarfundi um
landhelgismálið I Grimsby, laug-
ardaginn 8. þ.m., kl 7:30 e.h. og
hafa boðið blaðafulltrúum rikis-
stjórnarinnar að senda fulltrúa til
þess að túlka islenzkan málstað á
fundinum. ,
Form fundarins verður þannig,
að þingmaður frá Bretlandi og Is-
landi flytja i upphafi 20—30 min-
útna ræður hvor, en að framsögu-
ræðum loknum verða frjálsar
spurningar frá áheyrendum i
salnum. Munu frummælendur
svara þeim eftir þvi sem fundar-
stjóri beinir spurningum áfram
til þeirra.
Benedikt Gröndal, alþingis-
Framhald á 5. siðu.
ögri í Noregi en Vigri í
söluferð til Þýzkalands
Togarinn ögri er nú staddur i
Noregi, þar sem verið er að setja i
hann grandaraspil, en Vigri er á
leið til Þýzkalands, þar sem ætl-
unin er að hann selji á næstunni.
Þegar togararnir voru smiðaðir
i Póllandi árið 1972 voru hin svo-
kölluðu grandaraspil svo ný á
markaðnum, að Pólverjar voru
ekki farnir að setja þau i þau skip,
sem þeir höfðu i smiðum. Þar
sem þessi nýja tegund spila veitir
mjög mikið öryggi og af þeim er
auk þess mikill flýtisauki, þá hef-
ur það verið afráðið, að senda
báða togara ögurvikur h/f til
Noregs þar sem þessi nýju spil
verða sett i þau. Er ögri nú
staddur i Noregi af þessum sök-
um, en Vigri mun fara seinna.
Vigri er á leið til Þýzkalands i
söluferð, en þar eru mjög miklir
hitar þessa dagana og jafn'vel
möguleiki á þvi að farið verði til
Belgiu. Um það verður tekin á-
kvörðun þegar þar að kemur.
Hann mun siðan væntanlega fara
i enn eina veiðiferð áður en hann
fer til Noregs.
— hs.
SKYLDA MIN AÐ
LÁTA ALMANNA-
VARNIR VITA,
segir Ragnar Stefánsson
— Þaö hefur verið talsvert um
minni háttar jarðhræringar sunn-
an Langjökuls undanfarin ár,
einkum I grennd við Hagavatn og
Sandvatn, sagði Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræöingur við
Timann i gær. En þaö hefur ekki
verið sérlega mikið um þær slð-
ustu daga.
Ég sneri mér til Almannavarna
á miðvikudaginn vegna þess, að
bílstjóri, sem verið hafði hjá
vinnuflokki uppi á hálendi, til-
kynnti mér, að sprunga væri
komin i hjarn i Bláfelli, svo að
þær gætu látið kanna þetta, ef á-
stæða þætti til. Það er skylda min
að koma slikri vitneskju áleiðis,
en aðrir ákveða, hvernig þeim
finnst eiga að bregðast við.
Þó að þarna reyndist ekki neitt
sérstakt á seyði, má fólk ekki
kveinka sér við að láta vita um
það, ef það tekur eftir einhverju
varúðarveröu, sagði Ragnar.
Umslagiö á lofti — dýrgripur, sem sómir vel I bezta safni.
Erlend hafrannsókna
skip í Reykjavík
Undanfarið hafa farið fram mikl-
ar og viðtækar rannsóknir á
vegum alþjóða Hafrannsókna-
ráðsins á innstreymi kalda
sjávarins milli tslands og Græn-
lands og Islands og Færeyja.
Mikill fjöldi hafrannsóknaskipa
hefur verið við þessar rannsókn-
ir, m.a. Bjarni Sæmundsson og
nokkur þýzk, bandarisk og sovézk
skip. Nokkur af þessum skipum
voru að koma inn á höfnina i
Reykjavik i gær, miðvikudag, og
munu visindamennirnir á skipun-
um bera saman bækur sinar með-
an þeir dveljast hér. Ennfremur
var i för með rannsóknaskipunum
bandariskur isbrjótur. — hs —