Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 8
16. september 2004 FIMMTUDAGUR Siv víkur fyrir Sigríði: Lyklakippan minnti á rjúpnaveiðibannið STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir af- henti Sigríði Önnu Þórðardóttur lykla að umhverfisráðuneytinu síðdegis í gær og voru þeir festir í kippu á rjúpufæti. Siv sagðist hafa ráðlagt arftaka sínum að halda fast í umdeilt þriggja ára rjúpnaveiðibann enda hefði nýleg rannsókn rennt stoðum undir bannið. Sigríður Anna er sjöundi ráð- herra sjálfstæðismanna en Siv hverfur úr ríkisstjórn enda gefa framsóknarmenn einn ráðherra- stól eftir. Siv var þó hvergi bang- in þegar hún lét af embætti í gær og sagðist eiga jafna möguleika og hver annar þegar ríkisstjórnin verður stokkuð upp að nýju, ári fyrir kosningar, eins og Halldór Ásgrímsson hefur boðað. ■ STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson seg- ist ekki óttast að Davíð Oddsson og sjálfstæðismenn láti illa að stjórn þótt þeir víki nú úr stjórnarforystu. „Ég held að það sé stjórninni þvert á móti styrkur að hafa hann innan- borðs“, sagði Halldór þegar hann tók við lyklavöldum í forsætisráðu- neytinu af Davíð síðdegis í gær. Halldór sagði að fyrsta verk sitt yrði að semja stefnuræðu ríkis- stjórnarinnar en til þess þyrfti hann að hafa náið samráð við alla ráðherra. Forsætisráðherrann nýi sagði „ekkert liggja á nýju fjölmiðlafrum- varpi“ nú öfugt við nýliðið sumar. Haldið yrði fast við að selja Símann, þótt hann vildi ekki fastsetja tímaramma að öðru leyti en því að segja að þetta væri spurning um „vikur eða mánuði“. Halldór stað- festi að tekjuskattur yrði lækkaður um 4 prósentustig á kjörtímabilinu og byrjað á eins prósents lækkun um áramót. Hann sagði að lækkun eigna- og virðisaukaskatts og hækk- un barnabóta yrðu forgangsmál enda bentu hagvaxtarspár til þess að svigrúm gæfist til þeirra. Hall- dór neitaði að skýra nánar frá. Halldór lagði áherslu á að varn- armálin væru meðal erfiðustu verkefna stjórnarinnar og sagði ekkert óeðlilegt þótt þau yrðu á hendi nýs utanríkisráðherra. For- sætisráðuneytið hefði farið með þau mál á meðan samskiptin hefðu verið beint við Bandaríkjaforseta. Davíð Oddsson útskýrði afskipti sín af því máli úr stjórnarráðinu með „sérstöku eðli forsætisráð- herraembættisins“ sem gæti haft afskipti af einstökum málum. „Það er hefð fyrir því í íslenskum stjórn- málum, að forsætisráðherrann geti blandað sér í nánast hvaða málefni sem er,“ sagði Davíð er hann lét af embætti forsætisráðherra eftir þrettán ára setu í stjórnarráðinu. a.snaevarr@frettabladid.is– hefur þú séð DV í dag? VARÐ MOLDRÍKUR Á KVÓTAKERFI SEM HANN SKÓP SJÁLFUR Forsætisráðherra milljarðamæringur RJÚPNAFÓTUR Siv Friðleifsdóttir afhenti Sigríði Önnu Þórðardóttur lykla að umhverfisráðuneyt- inu í rjúpnafótarkippu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA RÍKISRÁÐ Ráðuneyti Halldórs: 5 framsóknarráðherrar og 7 sjálfstæðisráðherrar, fleiri en nokkru sinni. Aðeins Sigríður Anna Þórðardóttir ný í stjórninni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Styrkur fyrir stjórnina að hafa Davíð með Halldór Ásgrímsson, nýr forsætisráðherra, segir það styrk fyrir ríkis- stjórnina að hafa Davíð Oddsson innanborðs. Hann segir skattalækkan- ir, einkavæðingu og varnarmál mikilvægustu málefnin. STJÓRNMÁL Aðeins eitt dæmi er um að forystuflokkur í ríkisstjórn hafi haft jafn lítið fylgi og Framsóknarflokk- urinn hefur nú þegar hann tekur við forystu í ríkisstjórn. B-listi Fram- sóknarflokksins fékk 17,7% í síðustu kosningunum vorið 2003. Sami flokkur var í stjórnarforystu 1978 með 16.9% á bakvið sig og er það minnsta fylgi sem dæmi er um að forystuflokkur í ríkisstjórn hafi haft. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir enga reglu um að stærsti flokkurinn hafi stjórnarforystu: „Óvenjulegar aðstæður hafa valdið því í stjórn- málasögu okkar að lítill flokkur fái stjórnarforystu, ýmist vegna þess að samstarfsflokkar gefa eftir ráðu- neyti í skiptum fyrir forsætisráðu- neytið eða vegna þess að þeir eru í óvenjulega sterkri aðstöðu í stjórn- armyndun.“ ■ Ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar: Næstminnsta fylgi forystuflokks FORMAÐURINN Framsóknarflokkur Halldórs er sá forystuflokk- ur í stjórn sem næstminnst fylgi hefur haft. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA 08-09 15.9.2004 21:18 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.