Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 47
„You show your age, when you drown your rage.“ - Dease, söngvari og textasmiður The Thrills, sýnir þroskamerki á nýju plötunni Let's Bottle Bohemia í laginu Not For All the Love in the World. 34 16. september 2004 FIMMTUDAGUR Í spilaranum hjá ritstjórninni Nelly: Sweat, Nelly: Suit, Sparta: Porcelain, Hjálmar: Hljóðlega af stað, Nicolai Dunger: Tranquil Isolation og Pretty Girls Make Graves: The New Romance. Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is [ NetListinn ] TÓNLIST.IS VIKA 36 ÁST Ragnheiður Gröndal VÍSUR VATNSENDA-RÓSU Ragnheiður Gröndal AFGAN Papar I THINK OF ANGELS KK MARÍA Mannakorn EINHVERS STAÐAR EINHVERN... Nylon HEF ÉG SAGT ÞAÐ HÁTT Friðrik Ómar Hjörleifsson EINA NÓTT Mannakorn WE WILL ROCK YOU Queen THE LONG FACE Mínus DÍS Ragnheiður Gröndal STUN GUN Quarashi EINS OG GENGUR Páll Rósinkranz og Kalli Bjarni ÓRALANGT Í BURT Mannakorn ÞESSA EINU NÓTT Védís Hervör Árnadóttir WILD DANCES Ruslana HVAÐ VITA ÞEIR Björgvin Halldórs. og Jón Jósep ÞÚ BÍÐUR EFTIR MÉR Ragnheiður Gröndal FYRIR ÁTTA ÁRUM Páll Rósinkranz FALLEGUR DAGUR Bubbi og Bang Gang DRY YOUR EYES The Streets YOU BELONG TO ME Björgvin Halldórsson og Krummi YOU'LL NEVER WALK ALONE Aretha Franklin SKYTTAN Papar ÖLDUEÐLI Papar HAFIÐ Mannakorn FÆDDUR TIL AÐ ELSKA Mannakorn VIÐ ÁTTUM SAMAN Mannakorn DAGLEGA FER MÉR FRAM Mannakorn ENGINN EINS OG ÞÚ Mannakorn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Hljómsveitin Embrace hefur aldrei orðið að því sem hún hefði getað orðið. Þegar frumraun hennar kom út árið 1998 var sveit- in kölluð „arftaki Oasis“ í bresku pressunni. Sveitin var áberandi í fjölmiðlum þar og átti nokkur vin- sæl lög í útvarpi, en svörun frá plötukaupendum vantaði. Margir sökuðu hana um að stíga of gaum- gæfilega í troðin spor The Verve og Oasis þannig að frumleikann vantaði. Fyrsta breiðskífan seld- ist best, en tveir fylgifiskar henn- ar ollu vonbrigðum. Þrjú löng ár eru frá því að sveitin gaf út plötu síðast og höfðu margir afskrifað hana eftir að hún missti plötusamning sinn við Virgin. En piltarnir í Embrace lögðu hvergi árar í bát og skila nú af sér sinni bestu plötu eftir að hafa róið upp á móti straumi í vonleysi frá því að þeir hurfu af sjónarsviðinu. „Við lofuðum sjálfum okkur þegar við gerðum samning við nýja plötufyrirtækið okkar að við myndum ekki gefa út plötu fyrr en við værum búnir að gera okkar bestu,“ útskýrir Danny McNamara, söngvari Embrace. „Það hefur tekið okkur rúmlega þrjú ár og rúmlega 500 lagahug- myndir að klára það. Þess vegna erum við búnir að vera svona lengi.“ Danny viðurkennir að fjarvera hljómsveitarinnar frá sviðsljósinu hafi verið henni erfið og það hafi verið erfiðara að gera nýju plötuna, Out of Nowhere, en allar hinar þrjár til samans. Fyrsta smáskífa plötunnar heitir Gravity og fór hún beint í sjöunda sætið á breska vinsælda- listanum við útgáfu. Embrace er því aftur komin með tærnar á þröskuld velgengninnar. Þegar Fréttablaðið náði í Danny var hann enn í sæluvímu yfir fyrstu viðbrögðum. „Mér líður eins og ég sé orð- inn 17 ára. Þetta er stórkostleg tilfinning. Mér finnst okkur vera sýndur mikill heiður. Við höfum farið í gegnum erfiða tíma og þetta er stórkostleg tilfinning.“ Það getur verið gott að eiga góða vini að, og Embrace geta líklegast þakkað félaga sínum Chris Martin, söngvara Coldplay, fyrir þessa nýfengnu velgengni. Íslandsvinurinn semur nefnilega lagið Gravity og beinir þannig eyrum Breta aftur að sveitinni. „Við kynntumst honum á tón- leikum í Blackpool fyrir um 5 árum síðan, þegar Coldplay hitaði upp fyrir okkur. Við erum alltaf að spila lög fyrir hvorn annan í gegnum símann. Hann spilaði Gravity fyrir mig fyrir svona tveimur árum. Ég var alveg dolfallinn og sagði honum að mér fyndist þetta með betri lögum sem hann hefði samið. Hann var sammála, en sagði að honum fyndist það hljóma of mikið eins og Embrace til að geta notað það. Hann hringdi svo í mig þegar við vorum að gera plötuna og spurði hvort ég hefði áhuga á að nota lagið. Fyrst var ég mjög skeptískur á hugmyndina. Þá sagði hann mér frá því hvernig Gram Parsons og vinir hans skiptust stöðugt á lögum á sjöunda áratugnum. Þannig gæti þetta virkað vel fyrir alla. Ég spjallaði við strák- ana í sveitinni og við ákváðum að ef lagið kæmi vel út myndum við nota það, annars ekki.“ Þegar þið byrjuðu voru allir að líkja ykkur við The Verve og Oasis, því það voru stærstu sveitirnar á þeim tíma. Hvað segja bresku gagnrýnendurnir núna? „Þeir eru eiginlega að segja að það hafi verið rangt að líkja okkur við þessar tvær sveitir,“ segir Danny og hlær. „Ég las grein eftir gagnrýnanda í gær sem sagði að við værum endurkomukóngar. Hann sagði að það væri greinilegt að hæpið sem var í kringum okkur í fyrstu hefði orðið til af góðri ástæðu, því við erum enn að. Hann sagði að við ættum það skilið, sem mér fannst gott að lesa.“ Líður þér eins og þetta sé ný byrjun? „Þegar við byrjuðum á þess- ari plötu höfðum við bara trúna á okkur sjálfa. Við áttum enga pen- inga og vorum ekki með neinn samning. Þess vegna líður mér eins og þessi plata sé spunnin upp úr engu,“ segir Danny og út- skýrir þannig titil plötunnar Out of Nowhere. biggi@frettabladid.is Endurkomukóngar í Bretlandi RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Hún gerir það gott með fjögur lög af þrjátíu vinsæl- ustu lögunum á NetListanum. EMBRACE Fyrir ári síðan töldu allir að dagar Embrace væru taldir. Í dag á hljómsveitin eitt vinsælasta lagið í Bretlandi. Gítarleikari U2, sem heitir réttu nafni Dave Evans en er þekktur sem The Edge, vinnur nú hörðum höndum þessa dagana við að búa til tónlist fyrir nýja teiknimyndaseríu um Batman. Þetta verður í annað skiptið sem gítarleikarinn býr til tónlist fyrir ofurhetjuna því eins og margir muna gerði U2 lag við myndina Batman Forever árið 1995. „Það sem er svo frábært við hug- myndafræðina að Batman er hversu berstrípuð sagan er í barátt- unni á milli góðs og ills,“ sagði The Edge í viðtali við MTV. „Það er auð- velt að tengja sig við báðar hliðar einhvern tímann í sögunni.“ Í upphafi nýju seríunnar hefur milljónamæringurinn Bruce Wayne barist við glæpi í búningi Batmans í þrjú ár. Í eilífri baráttu sinni fyrir réttlætinu eignast hann erkifjendur á borð við Jókerinn, Kattarkonuna og Ráðgátumanninn. ■ The Edge og Batman THE EDGE Á milli þess sem gítarleikari The Edge býr til tónlist um ofurhetjur sem reyna að bjarga heiminum reynir hann sjálfur að leggja sitt af mörkum til heimsfriðar. 46-47 (34-35) Tónlist 15.9.2004 19:26 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.