Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 19
19FIMMTUDAGUR 16. september 2004 Ráku einkafangelsi: Dæmdir í tíu ára fangelsi AFGANISTAN, AP Þrír Bandaríkjamenn hafa verið dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir að pynta Afgana í einkafangelsi í Kabúl. Jonathan Idema, sem Banda- ríkjastjórn kallar mannaveiðara, segir að aðgerðirnar hafi verið gerðar með samþykki Bandaríkja- stjórnar. Bandaríska varnarmála- ráðuneytið þvertekur fyrir að hafa haft nokkur tengsl við mennina. Mennirnir voru handteknir í júlí og segir lögmaður þeirra að dómn- um verði áfrýjað enda hafi réttar- öryggi þeirra ekki verið tryggt þar sem dómstólar í Afganistan starfi ekki í samræmi við alþjóðalög. ■ JAFNRÉTTISMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur það mjög mikilvægt að konur komi í auknum mæli inn í íslensk stjórnmál og fagnar auknum áhuga kvenna á stjórnmálum. Halldór Ásgrímsson tók við embætti forsætisráðherra í gær. Af því tilefni ræddi Fréttablaðið meðal annars við hann um stöðu kvenna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar óánægju framsóknar- kvenna með ákvörðun Halldórs um að Siv Friðleifsdóttur yrði vikið úr ráðherrastóli. „Ég hef reynt að leggja mig fram um það að konur fái nauðsyn- legan vettvang í stjórnmálum og ég fagna því starfi í Framsóknar- flokknum,“ segir Halldór. Hann segist hafa reynt að stuðla að því að konum í stjórnmálum fjölgi. „Ég geri það vegna framtíð- arinnar. Ég tel að konur muni skipa meiri og meiri sess í samfélaginu. Ég á engan son, ég á þrjár dæt- ur og ég hlýt að hugsa um framtíð kvenna eins og hver annar faðir. Þar af leiðandi gleðst ég yfir því að mér finnst konur á margan hátt hafa meiri möguleika en karlmenn- irnir. Við sjáum að þær standa sig afskaplega vel í námi, þær eru reglusamari og sennilega sam- viskusamari,“ segir hann. Spurður hvað hægt sé að gera til að auka þátttöku kvenna á efri stig- um samfélagsins enn fremur en orðið hefur segir hann að hvatning til að taka þátt og vera óhræddar til að takast á við erfið verkefni sé mikilvæg. „Ég held að það sé einnig að hluta til spurning um sjálfstraust. Konur eru smátt og smátt að öðlast meira sjálfstraust. Breytingin sem orðið hefur á fyrirkomulagi fæð- ingarorlofs skiptir einnig miklu máli. Þar er lögð áhersla á ábyrgð feðra ekki síður en mæðra. Því verður ekkert á móti mælt að til dæmis mín kynslóð hefur vanist því að mæðurnar beri meiri og aðra ábyrgð á börnunum en feð- urnir. Ég held að það muni smátt og smátt breyta miklu, jafnvel tiltölu- lega hratt,“ segir Halldór. Hann segir að karlmenn geti lagt sig fram við að bæta jafnrétti kynjanna enn meir en orðið hafi. „Þeir mættu taka meira tillit til kvennanna og viðurkenna að hæfi- leikar þeirra séu ekki síðri en karl- anna. Það hefur stundum skort á það. Karlmenn þykjast oft geta miklu meira en konurnar, það er kannski helst vegna þess að þeir hafa meiri líkamlega burði, en það eru nú að verða færri og færri störf sem útheimta alla þessa lík- amlegu burði,“ segir Halldór. sda@frettabladid.is Fleiri konur í stjórnmál Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur það mjög mikilvægt að konur komi í auknum mæli inn í íslensk stjórnmál og telur sig hafa reynt að stuðla að því. Hann fagnar jafnframt auknum áhuga kvenna á stjórnmálum. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Segir að karlmenn geti lagt sig fram við að bæta jafnrétti kynjanna enn meir en orðið hafi. „Þeir mættu taka meira tillit til kvennanna og viðurkenna að hæfileikar þeirra séu ekki síðri en karlanna. Það hefur stundum skort á það.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N BANGLADESS, AP Neyðarástand ríkir í Dakka, höfuðborg Bangladess, vegna mikilla flóða. Ekki hefur rignt meira í landinu í fimmtíu ár. Um 600 manns létust í mikl- um flóðum í Bangladess í lok júlí en ástandið núna er talið enn verra. Borgin er í lamasessi, en um tíu milljónir manna búa í henni. Allir helstu vegir eru undir vatni og öll fyrirtæki og stofnanir eru lokuð. Rafmagns- laust er víða og ekkert símasam- band er á sumum svæðum. Stjórnvöld í Bangladess ótt- ast að skólp muni menga drykkj- arvatn en það gæti haft alvar- legar afleiðingar í för með sér. Khaleda Zia, forsætisráðherra landsins, hefur þegar boðað að- gerðir til að sporna gegn flóðun- um. Reynt hefur verið að koma í veg fyrir að ár flæði yfir bakka sína og vinna verkamenn og sjálfboðaliðar hörðum höndum að því að stafla upp sandpokum til þess að mynda flóðgarða. Enn er ekki ljóst hversu margir hafa látist í flóðunum. ■ FLÓÐ Í DAKKA Götur borgarinnar eru allar undir vatni og öll fyrirtæki og stofnanir eru lokuð. Ólympíuleikar fatlaðra: Taívanar ósáttir TAÍVAN, AP Stjórnvöld í Taívan eru reið út í stjórnendur Ólympíuleika fatlaðra sem hefjast í Aþenu á föstudaginn. Eiginkonu forseta Taí- vans, sem er fötluð og í hjólastól, hefur verið bannað að leiða hóp taí- vanskra íþróttamanna á leikunum. Taívanar segja að stjórnendur leikanna hafi látið undan þrýstingi kínverskra stjórnvalda. Í gegnum árin hafa miklar deilur staðið milli Taívana og Kínverja, en Kínverjar segja Taívan hluta af Kína. Talsmað- ur taívönsku stjórnarinnar segir að ferð forsetafrúarinnar tengist ekki stjórnmálum á neinn hátt. Því sé ráðstöfunin óskiljanleg. ■ Alvarlegt ástand blasir við í Bangladess: Verstu flóð í fimmtíu ár 18-19 15.9.2004 19:54 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.