Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 16. september 2004 35 Anna Katrín, söngkona af guðs náð og umsjónarmaður 17/7 á Popptíví „Eva Cassidy er með eina fallegustu rödd í bransan- um. Hún er svo tær og falleg. Ég er mikill aðdáandi hennar og ég hlusta mikið á plötuna Songbird. Þessi plata er tilvalin ef mann langar að taka því rólega og slappa af. Uppáhaldslagið mitt á plötunni er Fields of Gold. Eva hefur þann sérstaka hæfileika að geta sung- ið af mikilli innlifun og hún túlkar allt fallega sem hún syngur.“ Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari „Ég er akkúrat núna að hlusta á Erykuh Badu, plötuna sem kom út í fyrra. Platan heitir Worldwide Under- ground og sveitin sem hún er með heitir Freakquency. Mér finnst þetta vera besta platan hennar. Hún er gjörsamlega að sleppa sér með hljóðfæraleikurunum í hljóðverinu. Þetta er svona retro hiphop. Ég elska hana.“ Gísli Galdur Þorgeirsson, plötusnúður og tónlistarmaður „Hef verið að rýna aftur í fortíðina og rifja upp nokkr- ar íslenskar perlur. Tívolí med Stuðmönnum og Ísland med Spilverki þjóðanna eru báðar frábærar plötur sem innihalda brilljant lagasmíðar og sérstaklega skemmtilega útsettar raddir. Síðan er ég búinn að hlusta dálítið á nýja diskinn með Hjálmari og hann lofar mjög góðu. Skemmtileg lög og sérstakur söngv- ari. Kominn tími á íslenskt reggí!“ Á HVAÐ ERU GRÚSKARARNIR AÐ HLUSTA? Kringlunni www.sonycenter.is Sími 588 7669 20GB harður diskur. Það er ekki aðeins hægt að geyma tónlist á spilaranum, heldur líka skjöl og myndir. G-Sensor er hannaður til að vernda þau gögn sem eru á harða disknum ef hann verður fyrir hnjaski. 30 klukkustunda líftími rafhlöðu. Þar sem spilarinn er hannaður til að eyða sem minnstri orku, þá endist rafhlaðan mun lengur en í öðrum spilurum . Betri hljómur. Þökk sé ATRAC staðli Sony færðu nú betri hljóm en hægt er að ná út úr venjulegum MP3 skrám. Hleðslustöð. Gerir allar tengingar einfaldar hvort sem um er að ræða rafmagnshleðslu eða gagnahleðslu. Finnd’ann - Eigð´ann - SMS leikur Í Fréttablaðinu í dag er Sony NW-HD1 spilarinn falinn. Ef þú finnur hann getur þú lesið SMS kóðann og sent hann á númerið 1900. Þú gætir unnið NW-HD1 spilarann frá Sony. NW-HD1 Finnd’ann, eigð´ann... Breiðbandið: Af fullum þunga „Gamansögurnar eru stundum nokkuð staðbundn- ar og á þessi plata því örugglega eftir að seljast eins og heitar lummur í Keflavík og nágrenni. Ekki er þar með sagt að hún geti ekki fallið í kramið annars staðar því bæði sögurnar og textarnir hafa oftast víðari skírskotun. Af fullum þunga er ágætis plata sem ætti að koma flestum í gott skap með léttleika sínum.“ FB The Thrills: Let's Bottle Bohemia „Platan hljómar eins og hún hafi verið gerð á sama tíma og fyrri platan. Þetta má bæði telja kost og galla. Lagasmíðarnar eru ögn veikari en áður og það gæti valdið því að þessi plata gleymist hættu- lega fljótt. Þessir piltar hefðu átt að bíða aðeins lengur, semja fleiri lög og skila frá sér betri plötu en síðast. Því miður tókst það ekki.“ BÖS Nick Cave and the Bad Seeds: Abattoir Blues /The Lyre of Orpheus „Þó að platan sé tvöföld, og hver plata heiti sínu nafni, er þetta mjög heilsteypt verk. Meistaraverk sem grípur við fyrstu hlustun og vex svo bara og vex. Þeir eru ekki margir sem hafa nægilegan sköpunarmátt í það að gefa út 17 laga plötu þar sem ekkert þeirra er slæmt. Lifi kóngurinn, húrra, húrra, húrra, húrra!“ BÖS The Fiery Furnaces: Blueberry Boat „Vegna undarlegs eðlis síns hlýtur þessi plata að vera með þeim forvitnilegri sem hefur komið út í ár. Hún fer yfir allan skalann þessi plata. Ótrúlega hrífandi, en ekki búast við því að grípa hana alla við fyrstu hlustun.“ BÖS Hjálmar: Hljóðlega af stað Gripurinn er í raun óaðfinnanlegur og ber þess greinilega merki að liðsmenn Hjálma hafi unun af því sem í gangi er. Þá er óhjákvæmilegt að hrósa hljómsveitinni fyrir töluverða fjölbreytni í sköpun- inni og sterkur karakter einkennir hvert lag sem gerir plötuna enn betri. Ég fulllyrði að þessi plata verði ein besta plata þessa árs þegar upp er staðið og hvet lesendur til að fylgja Hjálmum um hvert fótmál. Fullt hús stiga.“ SJ Damien Rice: b-sides „Það sem gerir Damien Rice að stórkostlegum tón- listarmanni í mínum eyrum er tjáning hans. Hann hefur fengið ótrúlega gjöf með rödd sinni sem hann gæti hæglega misnotað með því að syngja „gallalaust“ eins og Idolstjarna. Í staðinn er eins og hann sé að gefa hlustandanum bita af sál sinni þegar hann syngur. Ef Damien Rice nær að halda þessum hætti á næstu plötu gæti hann hæglega orðið einn merkasti tónlistarmaður Íra á þessum áratug.“ BÖS Geir Harðarson: Landnám „Geir er greinilega undir sterkum áhrifum frá trú- badorum á borð við Megas, Bubba Morthens og Bob Dylan. Í því felst bæði kostur og galli. Kostur- inn er auðvitað sá að lögin minna oft á þessa meistara og eru gæðin oft á tíðum eftir því. Gall- inn er aftur á móti sá að Geir gengur of langt í að hljóma eins og áhrifavaldar sínir því rödd hans er sjaldan eins tvö lög í röð. Einna best er þegar Geir er bara hann sjálfur, alla vega að því ég best veit.“ FB The Cooper Temple Clause: Kick Up the Fire & Let the Flames Break Loose „Þetta er rokktónlist og ekki er hægt annað en að líkja þessu við Radiohead. Þetta eru þó engar eftir- hermur, því þeir líkjast ekki bresku undrabörnun- um í lagasmíðum, flutning eða tjáningu... heldur útsetningum. Aðall sveitarinnar er ást þeirra á lag- línunni og vel útsett elektróníkin í bland við rokkið. Í Bandaríkjunum er greinilega að myndast ný indie-rokk sena sem finnst gaman að skreyta hug- smíðar sínar með tölvum. Tékkið endilega á þess- ari.“ BÖS Nina Nastasia: Dogs „Þessi plata er alls ekki frumleg en einlæg tónlist sem er vel útsett og smekklega. Einfaldar strengja- útsetningar skreyta einfalt gítarplokkið og tilfinn- ingaþrunginn sönginn. Nina Nastasia er svo sann- arlega gerð úr við en ekki plasti. Alvörukona sem fjallar um alvöruhluti og tjáir sig á almennilegan hátt. Heilsteypt og falleg plata.“ BÖS [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR PLATA VIKUNNAR Nýjasta afurð meist- ara Nick Cave er hans besta plata í sjö ár. Hún heitir Abattoir Blues /The Lyre of Orpheus og kemur í búðir á mánudag. PLATA VIKUNNAR 46-47 (34-35) Tónlist 15.9.2004 19:27 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.