Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 11
11FIMMTUDAGUR 16. september 2004
■ LANDBÚNÐAÐUR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Bíómiði
9. hver vinnur.
Mögnuð
spennumynd með
Denzel Washington
í fantaformi
Frumsýnd 17. september
á 99kr
Sendu SMS
skeytið JA MEN
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Vinningar eru:
Miðar á myndina
Tölvuleikir
DVD myndir
Margt fleira.
SMS LEIKUR
?
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS
klúbb. 99 kr/skeytið
HÁVAÐASÖM FAGNAÐARLÆTI
Nokkur ölvun og læti voru í leik-
mönnum, annars flokks ÍA , á
Akranesi í fyrrinótt, eftir að
þeir höfðu unnið bikarúrslita-
leik gegn Breiðabliki. Kvartanir
vegna þessa bárust lögreglu frá
íbúum sem áttu erfitt með svefn
vegna láta. Að sögn lögreglunn-
ar létu mennirnir segjast að lok-
um og höfðu hægar um sig.
LOKANIR VEGNA VIÐGERÐAR
Loka þurfti umferð yfir Borgar-
fjarðarbrúna tvisvar í hálftíma í
gær vegna viðgerða á stólpum
brúarinnar. Brúnni verður ein-
nig lokað að einhverju leiti á
milli klukkan hálf tvö og hálf
fjögur í dag að sögn lögreglunn-
ar í Borgarnesi.
Síld- og kolmunnaveiðar:
Afli lítill -
veðrið vont
VEIÐAR Eftir ágætis síldarafla á Hala-
miðum á dögunum hefur gamanið
kárnað og varla dregist bein úr sjó.
Ástandið kemur Freysteini Bjarna-
syni, útgerðarstjóra Síldarvinnsl-
unnar, ekki á óvart. „Það er þekkt að
ef eitthvað er hrært í þessari stóru
síld þá styggist hún og dreifir sér.“
Spáð er vitlausu veðri á miðunum
næstu daga og skip því komin annað,
jafnvel í land. Allt eins er mögulegt
að síldin þjappi sér í torfur á meðan
óveðrið gengur yfir og verði veiðan-
leg þegar því slotar.
Einnig er rólegt yfir kolmunna-
veiðum þessa dagana þó að einstaka
skip hafi fengið slatta og slatta.
„Hann er eitthvað að stríða okkur,“
segir Freysteinn útgerðarstjóri um
kolmunnann.
Uppsjávarveiðarnar hafa því
verið fjörlitlar að undanförnu en í
ofanálag ríkir bann við loðnuveið-
um. Freysteinn er þó bjartsýnn,
líkt og vanalega. „Já, já, öll él birt-
ir upp um síðir.“ ■
FRÁ SÍLDVEIÐUM
KJARNFÓÐURVERÐ LÆKKAR veg-
gja prósenta verðlækkun varð á
kjarnfóðri hjá Fóðurblöndunni
þann 6. september síðastliðinn,
að því er fram kemur á fréttavef
Landssambands kúabænda. Fram
kemur að ekki hafi borist tölur
frá öðrum kjarnfóðursölum, sam-
bandið fylgist með þróuninni og
uppfæri vefinn jafnóðum með
nýjum upplýsingum.
BRETLAND Sameinuðu þjóðirnar
vara við því að ef Vesturlönd
auki ekki fjárveitingar sínar í
sjóð samtakanna, sem notaður er
til að bæta heilbrigðiskerfi landa
þriðja heimsins og efla þar
kvenréttindi og menntun, muni
illa fara.
BBC greindi frá því í gær að
ef fram haldi sem horfi muni
fólki í 50 fátækustu löndum
heimsins fjölga um 1,7 milljarða
á næstu 46 árum. Þá verða jarð-
arbúar um 8,9 milljarðar en þeir
eru ríflega sex milljarðar í dag.
Á ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Kaíró árið 1994 hétu Vest-
urlönd að veita 440 milljörðum
króna í sjóðinn fyrir árið 2004.
Nú hefur komið í ljós að löndin
hafa einungis veitt 220 milljörð-
um króna í sjóðinn. Bandaríkja-
stjórn hefur ekki látið krónu í
sjóðinn síðustu þrjú ár þar sem
hún segir forsvarsmenn sjóðsins
hvetja til ólöglegra fóstureyð-
inga í Kína.
Talið er að það kosti um 280
milljarða króna að veita þeim
200 milljón konum getnaðar-
varnir sem ekki vilja eignast
börn. Með því væri hægt að
koma í veg fyrir 52 milljónir
fæðinga á ári og sporna gegn 1,4
milljónum dauðsfalla barna við
fæðingu. ■
UNGBARN
Bandaríkjastjórn hefur ekki látið krónu í
sjóðinn síðustu þrjú ár þar sem hún segir
forsvarsmenn sjóðsins hvetja til ólöglegra
fóstureyðinga í Kína.
Sameinuðu þjóðirnar hafa áhyggjur af aukinni fólksfjölgun:
Vilja aukið fé frá Vesturlöndum
Alnæmi:
Flestir sýktir
á Indlandi
INDLAND, AP Fleiri eru smitaðir af
alnæmi á Indlandi en í Suður-Afr-
íku, segir talsmaður virtra alþjóð-
legra samtaka sem berjast gegn
sjúkdómnum.
Samkvæmt nýjustu tölum Sam-
einuðu þjóðanna eru 5,6 milljónir
Suður-Afríkubúa smitaðar af al-
næmi en 5,1 milljón Indverja. Ric-
hard G.A. Feachem, framkvæmda-
stjóri samtakanna, dregur þessar
tölur stórlega í efa og segir að töl-
urnar frá Indlandi séu mjög óná-
kvæmar. Indverjar séu rúmlega
milljarður talsins og fjölmargir
íbúa landsins viti einfaldlega ekki
af því að þeir séu sýktir. ■
Tilkynningarskyldan:
Fóru á óleyfi-
legt svæði
TILKYNNINGASKYLDAN Tveir fiskibát-
ar, Ólafur HF-251 og Ólafur HF-200,
hurfu út úr sjálfvirka tilkynningar-
skyldukerfinu og ekki náðist í þá
um miðjan daginn í gær. Tilkynn-
ingarskyldan hafði því samband við
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar,
sem kallaði út þyrluáhöfn.
Þyrlan TF-SIF var reiðubúin til
flugs þegar tilkynning barst um að
bátarnir hefðu fundist. Bátarnir
höfðu siglt um sextíu sjómílur út af
Reykjanesi og voru því komnir út
fyrir leyfilegt hafsvæði miðað við
þann fjarskiptabúnað sem er um
borð í bátunum. ■
10-11 15.9.2004 20:52 Page 3