Tíminn - 27.09.1973, Side 1

Tíminn - 27.09.1973, Side 1
IGNIS FRYSTIKISTUR BAFIÐJAN SÍMI: 19294 Hálfnað erverk þá hafiðer T i i sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn Ásiglsng- ar Breta: UTANRÍKISMÁLA- NEFND hélt i gær fund, þar sem fjallað var um hugsanleg stiórnmála- slit við Breta vegna þeirra atburða, er freigátan Lincoln sigldi á varðskipið úti fyrir Austurlandi á laugar- daginn. Sat Einar Ágústsson utanrikisráð- herra fundinn, svo sem venja er. Fyrir nefndinni lágu afrit af sjóprófum þeim, sem farið hafa fram, og álit dómkvaddra sér- fræðinga, sem fengnir voru til þess að meta niðurstöður sjó- prófsins með tilliti þess, hver sökiná bæri. Nefndarmenn ræddu málið ítarlega og gerðu hver fyr- ir sig grein fyrir afstöðu sinni. Fær ríkisstjórnin þvi fulla vit- neskju um afstöðu þeirra allra. Málið fer nú fyrir ríkisstjórn- ina, sem halda mun fund árdegis i dag og taka ákvarðanir sinar i samræmi við eðli þess. Sérfræðingarnir sam- mála Ríkisstjórnarfundur í dag Utanríkismálanefnd á fundi i gær vegna siöustu ásigiinga Breta á varðskipin. Talið frá vinstri: Pctur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri, Matthfas A. Mathiesen, Benedikt Gröndal (sat fundinn i fjarveru Gylfa Þ. Gfslasonar), Kinar Agústsson utanrikisráðherra, Þórarinn Þórarinsson, for- maður nefndarinnar, Eysteinn Jónsson, Magnús Kjartansson, iðnaðarmálaráðherra (sat fundinn i fjarveru Gils Guðmundssonar) og Bjarni Guðnason. Jóhann Hafstein sótti fundinn ekki. — Tfmamynd: Gunnar. VIÐ HÓFUM störf strax eftir að sjóprófum var lokið. I dómkvaðn- ingunni var farið fram á,að þrir hæfir og óvilhallir menn hlýddu á sjóprófin og að þvi loknu skyldu þeir skila áliti um, hverjar ályktanir megi draga af sjópróf- unum um aðdraganda og orsök árekstranna. Við unnum að þessari álitsgerð fram eftir nóttu og lukum störfum klukkan fimm i morgun, sagði Jón Finnsson, hrl., einn hinna þriggja dómkvöddu sérfræðinga i viðtali við blaðið i gær. — Gengið var frá álitsgerðinni i morgun, og við afhentum hana dómsmálaráðuneytinu á hádegi. Framhald á 35. siðu. STÍFLAN í LAGARFLJÓTI AÐ VERÐA FULLGERÐ Skortur á verkamönnum við virkjunina SB—Reykjavík. — Vinna við Lagarfossvirkjun gengur sam- kvæmt áætlun, þrátt fyrir tilfinnanlegan skort á verka- mönnum. Fljótið er nú i þann veginn að stfflast, og hefur vatns- horð við stifluna hækkað um rúm- an metra á þremur dögum. Við Kgilsstaði vcrður hins vegar eng- in hækkun vatnsborðs. m Gert er ráð fyrir að vélaupp- setning hefjist um áramótin. Byggingu stöðvarhússins er nú að ljúka, og verður þakið væntan- lega sett á það um mánaðamótin. Allri steypuvinnu verður lokið um mánaðamót október nóvember, ef ekki gerir frost fyrir þann tima. Undanfarið hefir verið auglýst eftir trésmiðum og verkamönn- um til starfa viö virkjunina. Sæmilega hefur gengið að fá smiðina, en verkamenn fást ekki. Ástæðan fyrir skortinum er sú, að i sumar hafa unnið þarna um 40 menn, sem fara i skóia i haust. Þegar flest hefur verið i sumar, hafa um 60 manns verið þarna að störfum, en nú eru þeir um 30, og gengur verkið þvi hægar. Veðurguðirnir hafa verið starfsmönnum við virkjunina einkar góðir i sumar. Sérstaklega var júlimánuöur heitur, og þá var einmitt verið að starfa úti við, en niðri á milli bergveggja hitaði sólin svo upp, að hitinn þar var yfirleitt um eða yfir 30 stig. Ef allt heldur áfram eins vel og þaö hefur gert og stenzt áætlun, fara vélarnar i Lagarfossvirkjun aö snúast um áramótin 1974-1975. SIÐUR I DAG Kynlífsvandamál ó- þekkt i Kina, bls. 11. Gamlir bæir i Borgar- firði, sunnan Skarðs- heiðar, bls. 15 og 16. Ég andaðist tvisvar bls. 29. Gefið mér tækifæri, bls. 18 og 19. Ég er gift Hitchc oek bls. 6 og 7. Maðurinn bak við Hvitu vagnana bls. 22 og 23. Á þrælamarkaði i Bamaskus, bls. 10 íþróttir bls. 25, 26 og 27. Hann varð harðast úti Liklcga hefur enginn orðið harðar úti i stórviðrinu á dögunum en Þorsteinn Sigmundsson i Elliðahvammi eigandi hænsnabúsins, sem fauk. Sennilega er eignatjón hans þrjár til fjórar milljónir króna, og stendur hann nú uppi nálega slyppur. Hæsnin fuku út um holt og móa, og þar hefur hann verið að tina skrokkana sam- an. llér stcndur hann við húsrústirnar, og plastpokarnir eru full- ir af dauðum hænum. — Timamynd:GE. S"Ö bl 33

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.