Fréttablaðið - 16.09.2004, Síða 14
16. september 2004 FIMMTUDAGUR
Hringinn á grænu ljósi:
Framsóknarkonur fjölga sér
STJÓRNMÁL Una María Óskarsdóttir
stóð í gær upp úr stóli aðstoðar-
manns umhverfisráðherra og sest
undir stýri á tveggja ára gömlum
Toyota Land Cruiser jeppa. Förinni
er heitið hringinn í kringum landið
og er ætlunin að fá nýjar konur til
liðs við flokkinn og efla þær sem
fyrir eru.
Landssamband framsóknar-
kvenna stendur fyrir ferðinni en á
fundi sambandsins í ágúst var sam-
þykkt að hvetja konur og aðra jafn-
réttissinna innan flokksins til að
stuðla að fjölgun kvenna í öllu
flokksstarfi. Var fundurinn haldinn
þegar ljóst var að Siv Friðleifsdótt-
ir viki úr ríkisstjórn og framsóknar-
konum í ríkisstjórn fækkaði um
helming.
Una María segir að nákvæm
ferðaáætlun liggi ekki fyrir, verið
sé að yfirfara bílinn góða og ákveða
undir hvaða slagorði skuli farið.
Auglýst er eftir slagorði en þegar
hafa nokkur borist. Má þar nefna:
Framsóknarkonur – til áhrifa! Kon-
ur – fram til áhrifa! Brjótumst til
valda! Áfram framsóknarstelpur!
Áfram framsóknarkonur! Konur –
framsóknar – til áhrifa! Framsókn-
arkonur – við erum flokkurinn! og
Framsókn – konur til áhrifa!
Fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar stóð landssambandið
fyrir fundarherferð til að fjölga
konum í sveitastjórnum. Var þá far-
ið um landið undir kjörorðinu:
Kveikjum í konum. ■
Meira nám verði
í grunnskólunum
Byrjunaráfangar fjögurra námsgreina verða fluttir að hluta eða í heild
úr framhaldsskólum til grunnskóla. Þetta er ein af tillögum í skýrslu
menntamálaráðuneytisins um breytta námsskipan til stúdentsprófs.
MENNTAMÁL Mikið rými hefur
myndast í grunnskólanum til að
taka við meira námsefni. Það sta-
far meðal annars af því að hann
hefur lengst um tvö skólaár á síð-
ustu 7-8 árum, að sögn Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra.
Í skýrslu menntamálaráðuneyt-
isins um breytta námsskipan til
stúdentsprófs kemur meðal annars
fram sú tillaga að viðfangsefni
byrjunaráfanga á framhaldsskóla-
stigi í ensku, dönsku, íslensku og
stærðfræði verði flutt til grunn-
skóla að hluta eða í heild. Sé það
liður í að stytta námstíma til stúd-
entsprófs. Skólaárið í framhalds-
skóla verði lengt í 180 daga og
verði við gerð nýrrar aðalnáms-
skrár miðað við 155 kennsludaga.
Jafnframt verði aðalnámskrá
framhaldsskóla breytt þannig að
áfangar muni stækka sem nemi
lengingu kennslutíma. Miðað verði
við að nám til stúdentsprófs verði
111 einingar, sem samsvara 119
einingum í núgildandi námsskipan.
Nám til stúdentsprófs er nú 140
einingar. Þessar ráðstafanir ásamt
fleirum verði til þess að stytta
námstímann til stúdentsprófs um
eitt ár, úr fjórum í þrjú.
„Með þessum breytingum
fáum við aukna samfellu í öllu
skólastarfinu, allt frá leikskóla
og upp í framhaldsskóla,“ sagði
menntamálaráðherra. „Allar
þessar breytingar hafa ekki í för
með sér lengingu skóladags í
grunnskólanum né heldur aukn-
ingu á starfstíma kennara. Það er
einfaldlega verið að nýta það
rými sem hefur skapast innan
hans.“
Ráðherra sagði að skýrslan
væri mjög góður grunnur fyrir
breytingar á skólakerfinu.
„Þetta er eðlilegt næsta skref í
þróun okkar skólastarfs sem átt
hefur sér stað á undanförnum
árum. Byrjað verður að endur-
skoða námsskrárnar 2006. Stefn-
an er að fyrstu nemendur inn í
nýtt kerfi framhaldsskóla innrit-
ist 2007. Árið áður, það er í 9.
bekk, fari þeir í undirbúning und-
ir nýtt kerfi,“ sagði ráðherra,
sem bætti við að mjög mikil
áhersla yrði lögð á að allar breyt-
ingar á starfi og starfstilhögun
kennara yrðu gerðar í mikilli
sátt. Málið yrði unnið á löngum
tíma til að gefa öllum, bæði nem-
endum og kennurum, tíma til að
laga sig að breyttu skólakerfi.
jss@frettabladid.is
UNA MARÍA ÓSKARSDÓTTIR
Á leið um landið til að fjölga framsóknar-
konum.
LOKAÐ Á
FÖSTUDAGINN
Tengi ehf. verður lokað
föstudaginn 17. sept. vegna
árshátíðar starfsmanna.
Við opnum aftur mánudaginn
20. sept. kl. 08.00
Viðskiptavinir
athugið !
RÚSSLAND, AP Skólar í Beslan í
Norður-Ossetíu hófu kennslu á ný
í gær eftir að hafa verið lokaðir í
tvær vikur, eða allt síðan eitt þús-
und manns voru teknir í gíslingu í
einum þeirra. Tæplega 350
manns, stærsti hlutinn börn, lét-
ust í uppgjöri hersins og gísla-
tökumannanna.
Þau börn sem sluppu ómeidd
frá gíslunum þurftu ekki að mæta
í skólann. Fjöldi foreldra annarra
barna hélt börnum sínum einnig
heima, enn hræddir um að hryðju-
verkamenn létu til skarar skríða á
ný. Mínútuþögn var í öllum skól-
unum áður en kennsla hófst til að
minnast fórnarlamba gíslatökunn-
ar.
Lögreglumenn og hermenn
fóru í eftirlitsferðir um skólana
áður en kennsla hófst til að ganga
úr skugga um að engin hætta væri
ferðum og engar sprengjur faldar.
Ströng öryggisgæsla var síðan
meðan kennsla fór fram.
Alls eru 329 börn, konur og
menn enn á sjúkrahúsi. Af þeim
eru 122 í Moskvu en 209 í Norður-
Ossetíu. Flestir þeirra sem eru á
sjúkrahúsinu í Moskvu eru illa
haldnir og um fimmtíu þeirra eru
enn í lífshættu. ■
Ströng öryggisgæsla var við skólana í Norður-Ossetíu:
Kennsla hafin á ný í Beslan
AFTUR Í SKÓLANN
Foreldrar fylgdu börnum sínum í skólana í Beslan í gær þegar kennsla hófst á ný tveim
vikum eftir gíslatökuna.
BREYTINGAR Á SKÓLAKERFI
Námsefni í grunnskólum verður aukið í einhverjum mæli samfara styttingu námstíma til
stúdentsprófs. Menntamálaráðherra segir nægilegt svigrúm innan grunnskólans til þess.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
14-15 15.9.2004 21:32 Page 2