Tíminn - 29.09.1973, Page 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Hálfnað
erverk
þá hafið er
T
I
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
FÆR SUNNA TUGMILLJÓNIR
KRÓNA ÚR RÍKISSJÓÐI ?
Tap af völdum Ingólfs, fyrrverandi samgöngumálaráðherra,
14,2-35,4 milljónir, segja dómkvaddir matsmenn
DÓMKVADDIR matsmenn, þeir
Guðmundur Magnússon prófess-
or og Báröur Danfelsson verk-
fræðingur, hafa skilað matsgerð i j
máli þvl, sem Ferðaskrifstofan
Sunna h.f. höfðaði gegn sam-
gönguráðherra og rikissjóði 19.
október 1971 til greiðslu skaöa-
bóta vegna ólögmætrar svipting-
ar flugleyfis árið 1970 I ráðherra-
tið Ingólfs Jónssonar, þáverandi
samgönguráðherra.
Miðað við það, aö talið verði að
svipting flugleyfis Sunnu hafi
verið ólögmæt, reikna matsmenn
skaðabætur út frá tveimur mis-
munandi forsendum:
A. Að dómurinn komist að
þeirri niöurstöðu, að samgöngu-
ráöuneytið hafi gert rangt I þvi að
meina eöa torvelda Sunnu að
flytja farþega sina með Air Vik-
ing, sem og með sviptingu flug-
leyfisins.
B. Að ráöuneytiö hafi gert rétt i
þvl að torvelda Sunnu flutning
eigin farþega með Air Viking, en
rangt hafi verið að svipta fyrir-
tækið flugleyfi.
Ef gengið er út frá forsendum
A, það er að segja, aö ráðuneytið
hafi gert rangt i þvi að meina
Sunnu aö flytja sina eigin farþega
með eigin flugvél, meta mats-
menn tjón Sunnu á kr. 35.430.411.-
En sé gengið út frá þvi, að ráð-
herra hafi gert rétt I þvi að meina
Sunnu flutning eigin farþega með
eigin flugvél, Air Viking, meta
þeir tjón Sunnu vegna sviptingar
flugleyfisins á kr. 14.185.522.-
Rétt er að taka fram i þessu
sambandi, að á sama tima og
ráðherra meinaði Sunnu að fljúga
með eigin farþega i eigin vél til
Mallorca 1970, heimilaði hann
Sunnu að leigja Flugstöðinni h.f.,
sem rekur kennsluflug á Reykja-
vfkurflugvelli, flugvél Sunnu til
aö fljúga farþegum Sunnu til
Mallorca með sömu flugvél og
sömu áhöfn. Sunna neyddist þá til
að notfæra sér þessa heimild, en
ráðherra mun hins vegar ekki
hafa gefið út neitt sérstakt flug-
leyfi til handa Flugstöðinni. i
þessu sambandi.
Aöur en Sunna hóf flugrekstur
aftur i sumar, hafði, vegna gagn-
kvæmra samninga Islands um
flug við önnur riki, verið veitt
leyfi til Sunnu um not á dönskum
flugvélum til flutninga á Sunnu-
farþegum til Spánar, auk þess
sem Sunna notaði danskar flug-
vélar á flugleiðinni milli Islands
og Norðurlanda.
En eftir að Sunna fékk sina eig-
in þotu i sumar, hefir hún tekið
við þeim flutningum, sem Air
Spain og Sterling önnuðust áður.
—TK
Fótt nýtt
hjó Heath:
Ólafur Jó-
hannes-
son sendi
svar
ÓLAFUR Jóhannesson for-
sætisráðherra afhenti i gær-
dag sendiherra Breta á ts-
landi svarbréf sitt til Ed-
ward ileath, forsætisráð-
herra Breta. Innihald svar-
bréfsins er trúnaöarmál. enn
sem komiö er, en reikna má
með,aö þar séu ftrekuð þau
sjónarmiö rikisstjórnar ts-
lands, sent komu fram I
ályktun hennar frá þvl á
fimmtudag.
t bréfi Heaths til Ólafs Jó-
hannessonar kom fátt nýtt
fram. Heath lýsti áhyggjum
sinum yfir þvi, hvernig mál-
in hefðu þróazt á miðunum
úti fyrir ströndum tslands að
undanförnu og harmaði, að
átökin á fiskimiðunum heföu
þegar valdið dauða eins is-
lenzks skipverja. Hann lagði
áherzlu á mikilvægi þess, að
rikisstjórnir landanna fyndu
lausn á þeirri sjálfheldu,
sem málið væri i núna, þann-
ig að unnt verði að setjast að
samningaborðinu aö nýju.
Sfðan stakk Heath upp á þvi,
að rikisstjórnirnar könnuðu,
hvort ekki væri unnt að gera
þegjandi samkomulag um,
að herskipin og dráttar-
bátarnir héldu sig utan hinna
umdeildu 50mflna marka, og
Bretar minnkuðu sjálfviljug-
ir sóknina á miðin, gegn þvi
að islenzku varðskipin hættu
að áreita brezku togarana,
sem þar eru að veiðum.
Heath taldi, að þegjandi
samkomulag af þessu tagi
yrði löndunum báðum mjög i
hag og gæti skapað þær að-
stæður, að unnt yrði að taka
upp samningaviöræður, sem
leitt gætu til bráðabirgða-
samkomulags. — SJ-
Ekki er seinna vænna að taka upp kartöflurnar, og I veöurblíöunni i gær var fólk önnum kafið f görðum
sinum. A þessari mynd sjáum við Ingibjörgu Karlsdóttur ásamt börnum sinum, Magnúsi og Berglind,
með hluta af afrakstri sumarsins. Þetta er þriðja árið sem Ingibjörg er með kartöflugarð, og er hún
mjög ánægð með uppskeruna.
Ný líparítnáma í Hvalfirði
LtPARÍT er eitt þeirra hráefna,
sem þarf til sementsgerðar.
Undanfarin fimmtán ár hefur Se-
mentsverksmiðjan sótt þetta hrá-
efni i liparitnámu I landi Þyrils,
rétt innan við Bláskeggsá á Hval-
fjarðarströnd. Senn liður að þvi
að liparitið þrjóti á þessum stað,
enda hafa verið sótt þangað 15-20
þús. tonn á ári eöa alls 250-300
þús. tonn. Þess vegna hefur að
undanförnu staðiö yfir leit að
liparitnámu. sem komið gæti I
stað þessarar, og nú bendir margt
til þess, aö hún sé fundin i landi
Litla-Sands, lítiö eitt utar f firðin-
um.
Allt siðan 1970 hefur Kristján
Sæmundsson jarðfræðingur hjá
Orkustofnun leitað að liparit-
námu.semgætikomið i staðgömlu
námunnar. Leitað hefur verið á
ýmsum stöðum og magn og gæði
íiparits á hverjum stað verið
rannsakað.
Ekki er skortur á lipariti á
þessum slóðum, en hins vegar eru
gæði þess misjöfn og eins hefur
reynzt torvelt að finna auðunnið
Nýr bæjarfógeti á Isafirði
Þorvarður K. Þorsteinsson.
FORSETI Isiands hefur i dag, að
tillögu dóm smá la rá öherra ,
skipað Þorvarö Kjerúlf Þorsteins
son. deildarstjóra i landbúnaðar-
ráðuneytinu, til að vera bæjarfó-
geti á Isafirði og sýslumaður i
Isafjarðarsýslu frá 1. október
1973 að telja.
Aðrir umsækjendur um em-
bættið voru: Andrés Valdimars-
son. sýslumaður i Strandasýslu,
Hermann G. Jónsson, settur
bæjarfógeti á Akranesi, og Þor-
steinn Skúlason, fulltrúi yl'ir-
borgarfógeta.
liparit, þannig að ekki þurfi að
leggja i mikinn kotnað viö að
fletta öðrum jarðlögum ofan af
eða hefja beinan námugröft. Þá
hefur lika reynzt erfitt að finna
liparit, sem þannig er I sveit sett,
að ekki þurfi aö kosta miklu til
vegagerðar.
Nú bendir hins vegar allt til
þess, að búið sé að finna nýja
llparitnámu skammt utan hinnar
gömlu, i landi Litla-Sands rétt ut-
an Bláskeggsár. Kristján Sæ-
mundsson hefur tekið yfirborðs-
sýni á þessum stað, en menn
höfðu ekki veitt þvi eftirtekt, að
þarna bólaði á liparitklöppum,
fyrr en hann hóf rannsókn sina.
Þau yfirborðssýni, sem þegar
hafa verið tekin, benda til þess.að
liparitið fullnægi þeim kröfum,
sem Sementsverksmiðjan gerir
til hráefnisins. Innan skamms
verður hafizt handa við boranir,
og væntanlega fæst endanlega úr
þvi skorið i haust, hvort liparit-
nám verður hafiö á þessum stað.
Segja má að stöðugt sé unnið að
hráefnaleit af einhverju tagi af
hálfu Sementsverksmiðjunnar.
I fyrrasumar fór Þórólfur Haf-
stað jarðfræðinemi um Borgar-
fjörð á vegum verksmiöjunnar til
þess að kanna, hvort þar væri að
finna isaldarleir, sem hentaði til
vinnslu. Vegagerð rikisins tók
þátt f þessari leit, þvi að æskilegt
er talið að nota fingert efm á borð
við leir að nokkrum hluta i malar-
vegi.
Arangur af leitinni varð hins
vegar litill, þvi að hentug leirlög
fundust ekki. — HHJ
Lesbók
í dag