Tíminn - 29.09.1973, Blaðsíða 4
TÍMINN
Laugardagur 29. september 1973
Nýtt lím,
sem heldur betur
en logsuða
150 tonna brú brotnaði, þegar
verið var að gera tilraunir með
ofhleðslu á henni. — En það var
steypan sem lét undan, en ekki
samskeytin, sem voru lfmd
saman! Notað var nýtt efni
Epoxy-harpiks, sem var fundið
upp af visindamönnum i
sovétlýðveldinu Aserbajdzjan
og er limefni þetta ætlað til
stærri samsetninga. Epoxy-efni
(Epoxy-kvarts) er farið að nota
I úthöggmyndir, m.a. hér i
Reykjavik (Stóðið við Smára-
götu/Hringbraut) og þykir gef-
ast vel. Tilraunir hjá sovézkum
vísindamönnum hafa leitt i
Ijós, að nýja limefnið heldur
betur en góð logsuða.
Liza og Lorna —
efnilegar systur
Liza Minelli, eldri dóttir Judy
Garlands og Vincent Minellis,
vakti mikla hrifningu i kvik-
myndinni Kabarett, sem nú er
sýnd hér i Reykjavik, bæði i
kvikmyndahúsi og Þjóðleik-
húsinu. Hún fékk Oscarsverð-
laun, mikið hrós og mikla
peninga, fyrir leik sinn i þeirri
mynd. Nú hefur yngri dóttir
Judy, Lorna, sem er 19 ára,
einnig byrjað að leika. Hún kom
fram i sjónvarpsþætti hjá David
Frost, og siðan söng hún inn á
hljómplötu, og nú býðst henni
eitt af aðalhlutverkunum i söng-
leik á Broadway sem heitir
„Loforð, loforð”. Pabbi þeirra,
Vincent Minelli sem er kvik-
myndatökustjóri, er rasandi.
Hann segist ekki vilja hafa fleiri
stjörnur i fjölskyldunni.
Konungur
hryllingsmyndanna
Vincent Price hefur það aö sér-
grein, að leika i svokölluðum
hryllingsmyndum. Hann hefur
leikið marga kolbrjálaða próf-
essora, sem gera tilraunir á
mönnum á óhugnanlegan hátt,
eða hann leikur einhvern aftur-
genginn herramann, sem ekki
fær friö i gröfinni, nema að hann
hefni sin á einhverjum, sem er
af þeirri ætt, er hann átti í úti-
stöðum við I lifandi lifi. Blóð-
sugumyndirnar eru ófáar, sem
hann hefur leikið I, — og aðeins
röddin hans, sem er þó ein-
kennilega mjúk, getur haft þau
áhrif að það er sem kalt vatn
renni niður eftir baki manns,
þegar hann beitir henni eftir
kúnstarinnar reglum. Þarna er
verið að mála hann fyrir
upptöku á kvikmyndinni „Hefnd
dauðans”. Meistarinn, sem
málar Price, heitir George
Blackler og er mjög fær i sinni
grein eins og sjá má.
Jackie kvik-
myndastjarna
Ari Onassis hefur látið undan
þrábeiðni konu sinnar og gefur
náðarsamlegast leyfi sitt til aö
hún fái að leika i kvikmynd á
næstunni. Þetta ku lengi hafa
verið hennar heitasta ósk.
Og hlutverkiðer ekki dónalegt
— hún á nefnilega að leika sjálfa
sig. Bandariskt sjónvarpsfyrir
tæki kemur til með að framleiða
þessa kvikmynd, og hefur það
þegar fengið Truman Capote til
aö skrifa handritið. Hann fær
næstum frjálsar hendur við
samninguna, en auðvitað þarf
Ari karlinn að fá að ráða ein-
hverju. Hann er vist vanastur
þvi. Hann hefur að minnsta
kosti sett það skilyrði, að i
myndinni komi skýrt fram,
hversu vel Jackie huggaði hann
, þegar hann missti einkason
sinn I flugslysi fyrr á þessu ári.
Þetta er auðvitað ósköp fallega
hugsað hjá gamla manninum,
en framkvæmdin getur orðið
dálitið erfið, þvi að myndin á
(eða átti a.m.k.) eingöngu að
fjalla um Jackie sem forsetafrú.
Liklega verður sjónvarpsfyr-
irtækið þvi að endurskoða fyrri
áætlanir um myndina, þvi að
annars fær Jackie ekki að leika.
Langur aðskilnaður
Fyrir fimmtiu og þrem árum
fór Sören Löber frá Fölle i Dan-
mörku til Kanada. Sören fór alla
þessa leið i þeim tilgangi að
afla sér og fjölskyldu sinni betri
lifsskilyrða, en hann hafði ekki
heppnina með sér. Fjölskyldan
bjó áfram i Danmörku og
heyrði ekkert frá fjölskylduföð-
urnum öll þessi ár. Flestir höfðu
víst talið hann af, þegar hann
birtist skyndilega á heimili
eiginkonu sinnar ekki alls fyrir
löngu. Og það urðu svo sannar-
lega fagnaðarfundir. Þarna sjá-
um við Sören i faðmi fjölskyld-
unnar.
— Bæði pabbi og ínainma segia
að aUt hækki.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég ætla að hjálpa trúboðunum og
senda þeim allt grænmetið, sem á
aö borða allt árið.
© I y 3, PdfiuStefS - MLL S1WCKT&' -TM