Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 24
Varir eiga að vera áberandi í vetur og notaðir sterkir djúpir litir
til að framkalla þær. Vanda skal verkið og velja góða varaliti en
ekki bara skella á sig glossi og hlaupa út. Augun munu fyrir vikið
fá minni athygli og verður varaliturinn aðalvopnið í snyrtibuddu
vetrarins.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
HAUST Í SKARTHÚSINU
Ný sendin af alpahúfum, prjónuðum
sjölum og vettlingum.
Sendum í póstkröfu
Útsölustaðir
Lyf og heilsa um allt land, Hagkaup Smáralind, Garðsapótek, Hringbrautarapótek, Laugarnesapótek, Lyfjaval,
Rimaapótek, Apótek Ólafsvíkur, Apótek Vestmannaeyja, Dalakjör, Kaupfélag Skagfirðinga og Siglufjarðarapótek.
l i
il ll l li i j l
i l í j l j l i i i l j
Hafðu hárið
eins og þú vil
t
– alltaf!
fyrir stráka
og stelpur
Heildarlausn fyrir hárið
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Samkvæmiskjólar
Samkvæmisdress
Tískulitur:
Græna
aldan heldur
áfram
Grænn litur er sagður standa
fyrir öryggi, náttúru, gleði,
heilsu, ró og peninga. Liturinn er
misvinsæll í tískuheiminum en
undanfarið hefur mikið borið á
honum og grænar flíkur, skór og
fylgihlutir munu halda vinsæld-
um sínum fram í vetur. Dekkri og
dýpri litbrigði fylgja okkur inn í
veturinn en pastelgrænn heldur
líka velli.
Þessir grænu tónar fara líka
afar vel við jarðlitina, leðrið og
feldina sem einkenna haust- og
vetrartískuna og passa vel með
öðrum vinsælum litum eins og
antíkbleiku og gulu.
Síðir grænir galakjólar hafa
víða sést á tískusýningarpöllun-
um og töskur, skór og hanskar í
grænu litunum eru að sækja í sig
veðrið og verða sýnilegri í búðum
bæjarins þegar líða fer á haustið.
Dís og vinkonur hennar í sam-
nefndri kvikmynd tolla í tískunni
en eru ekki tískudrósir og þær
fara eigin leiðir í fatastíl, segir
Bergþóra Magnúsdóttir hönnuð-
ur, sem sá um búningana í kvik-
myndinni sem frumsýnd var á
dögunum.
Í stuttu máli segir myndin frá
bestu vinkonunum Dís og Blævi
sem búa og hringsnúast í Reykja-
víkurborg nútímans og lenda í
hinum skemmtilegustu ævintýr-
um. „Umfram allt eru Dís og Blær
ungar konur sem eru að reyna að
finna sig í lífinu, þær eru ekki al-
veg búnar að finna sinn stíl og
taka þar af leiðandi ólíka hluti úr
mismunandi áttum og setja í nýtt
samhengi,“ segir Bergþóra.
„Blær er svolítill hippi og bó-
hem, hún spáir lítið í litasamsetn-
ingar, blandar öllu saman og bros-
ir framan í lífið. Dís er aðeins
óöruggari, áhrifavaldarnir koma
héðan og þaðan, hún er afslöppuð
en spáir og spekúlerar í hverju
hún á að vera. Þær eru þó báðar
tiltölulega kærulausar og klæða
sig frekar eftir skapi heldur en
veðri og vindum, sem gerir per-
sónuleika þeirra einmitt svo
skemmtilega og áhugaverða. Vin-
konurnar eru báðar litríkar á sinn
hátt og það var mjög skemmtilegt
og skapandi ferli að búa til þeirra
heim, en það var gert í náinni
samvinnu við leikstjórann Silju
Hauksdóttur og hönnuði leik-
myndar.“
Tíska vinkvennanna í Dís lýsir
ákveðnu tímaleysi í samtíman-
um, segir Bergþóra og bendir á
að það sé alltaf viss hópur fólks
sem skapar sér sinn persónulega
stíl með eins konar hippalegri
samsuðutísku. „Að skapa sinn
persónulega stíl, það er þeirra
tíska.“
Þessi „hippalega samsuðu-
tíska“ er svo í dag mjög mikið í
tísku þannig að glögglega má sjá
samsvörun á milli tískunnar í
myndinni og götutísku Reykja-
víkuborgar, sem einkennist þessa
dagana meðal annars af sam-
blandi af gömlu og nýju, skraut-
nælum, hálsklútum, hárskrauti,
lopapeysum, ponsjóum og stígvél-
um.“
Bergþóra Magnúsdóttir út-
skrifaðist úr textíldeild Listahá-
skóla Íslands árið 2002 og hefur
haft nóg fyrir stafni síðan. Um
þessar mundir starfar hún ásamt
Helgu I. Stefánsdóttur við bún-
ingahönnun í leikverkinu Úlf-
hamssögu sem Hafnarfjarðarleik-
húsið mun frumsýna nú í október
og einnig hefur hún verið að að-
stoða Helgu við búningana í bíó-
mynd Baltasars Kormáks „A
Little Trip to Heaven“.
hildur@frettabladid.is
Bergþóra Magnúsdóttir hannaði búningana í kvikmyndinni Dís. Tískan í myndinni
endurspeglar hippalega samsuðutísku dagsins í dag.
Tískan í kvikmyndinni Dís:
Vinkonur með
persónulegan stíl
Kápa 32.990 kr. Kúltúr
Ljósgræn peysa
16.990 kr.
Kúltúr
Peysusett,
toppur 4.990 kr.,
peysa 8.990 kr.
Kúltúr
Rúllukragapeysa
8.990 kr. Kúltúr
Ljósgrænir skór 7.990 kr.
GS skór
Slöngumunstraðir
grænir skór
14.990 kr.
GS skór
Kjóll (með glimmeri)
19.990 kr. Karen Millen
Peysa (flöskugræn) 11.990 kr.
Karen Millen
Ponsjó 4.990 kr.
Skór 3.990 kr.
Top Shop
Laugavegi 32 sími 561 0075
S
JÓ
N
V
A
R
P
S
D
A
G
S
K
R
Á
V
IK
U
N
N
A
R
»
24-25 (02-03) Allt tíska 15.9.2004 16:06 Page 2