Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 28
Hreyfðu tærnar Á löngu flugi er fátt mikilvægara en að hreyfa tærnar til að örva
blóðflæðið. Forðast skal að vera í þröngum skóm eða sokkum sem hefta tærnar.
Glenna skal tærnar og teygja og beygja reglulega á meðan flugi stendur því kyrr-
staða getur haft alvarlegar afleiðingar.
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
Að vinna að sjálfboðastörfum er gott tækifæri til þess að læra tungumál og
kynnast framandi menningu. Dvölin hefst á málanámi og undirbúningi fyrir störf
hjá hjálparstofnunum, þjóðgörðum og við samfélagsþjónustu.
Guatemala, Costa Rica, Su›ur Afríka og Perú
Harpa Arnardóttir leikkona fann
fjallið sitt. „Ég man eftir því að
þegar ég var lítil sá ég slæds-
mynd hjá pabba mínum af
Hjartafelli í Hofsjökli. Þetta er
hjartalaga fell sem jökullinn
hefur mótað og er einmitt í miðju
landinu, eins og hjarta Íslands.
Síðan hefur mig alltaf dreymt um
að sjá þetta með berum augum en
einhvern veginn varð aldrei af
því. Svo fór ég fyrir um tveimur
árum og gekk á Arnarfell hið
mikla og var djúpt snortin yfir
þessu magnaða svæði. Gróður-
lendið var alveg ótrúlegt og veðr-
ið stórkostlegt. Ég sá litla lind og
fór út af stígnum og speglaði mig
í lindinni og þegar ég leit upp þá
blasti Hjartafellið við og litla
lindin var búin að leiða mig á
fund fjallsins míns. Þegar maður
upplifir svona mikla fegurð þá
finnur maður hvað það er mikil
áskorun að vera Íslendingur í dag
og að ef stefna stjórnvalda í sam-
bandi við virkjanamálin breytist
ekki hverfur öll þessi fegurð.“
Hörpu finnst að Hofsjökull með
sínu plöntu- og dýralífi ætti að
vera á Heimsminjaskrá sem og
hálendið allt.
„Íslendingar verða að vakna til
vitundar um það sem er að gerast í
landinu. Ef allt sem er á teikniborð-
inu hjá Landsvirkjun nær fram að
ganga verða engar jökulár eftir og
hálendið bara eitt drullusvað. Hvað
eru raunveruleg gæði og raun-
veruleg verðmæti? Hvað eru lífs-
gæði ef ekki hin stórkostlega nátt-
úrufegurð sem við eigum svo
greiðan aðgang að?“ spyr Harpa
Arnardóttir og vill verja fjallið sitt
með ráðum og dáð. ■
Myndina af heiðagæsunum fékk Harpa í fyrstu verðlaun í keppni í Þjórsárverum um að þekkja jurtir á bala.
Fjallið mitt:
Hjartafell í miðju lands
Innréttingin er í mínímalískum stíl.
Lúxushótel
í Köben
GB ferðir hafa gert samning við
Skt. Petri sem er nýjasta 5 stjörnu
design-hótelið í Kaupmannahöfn.
Hótelið er í miðborg Kaupmanna-
hafnar milli Ráðhústorgs og braut-
arstöðvarinnar Norðurports. Á hót-
elinu eru 270 herbergi. Veitinga-
staður hótelsins, Brasserie Bleue,
þykir afar góður og við inngang
hótelsins er gott kaffihús þar sem
gestir geta skoðað dagblöð.
Ferðatímaritið Condé Nast Travell-
er valdi Skt. Petri eitt af 100 bestu
nýju hótelum heims á síðasta ári.
Skt. Petri og 101 Hótel í Reykjavík
voru einu norrænu hótelin sem
náðu inn á þennan lista. ■
[ FERÐALÖG ]
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
28 (6) Allt ferðir 15.9.2004 15:39 Page 2