Tíminn - 02.10.1973, Side 20
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
, Hittumst i hmtpjélaginu
fyrir góóan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
AAikil hdtíðahöld í Kína í gær:
AAaó formaður
lét ekki sjó sig
NTB—Peking — Flestir af æðstu
mönnum Kina tóku þátt f til-
komumiklum hátíöahöldum i
Peking I gær af tilefni af 24 ára af-
mæli alþýðulýðveldisins. Þö var
Mao formaður hvergi sjáanlegur,
en búizt hafði verið við þvi að
hann kæmi nú opinberlega fram i
fyrsta sinn sföan 1. maf 1971,
þegar hann stúö við lllið hins
himneska friðar og horfði á flug-
eidasýningu.
Hátiðahöldin i gær fóru sem sé
fram, án þess að nokkurt útlit
væri fyrir að formaðurinn ætlaði
aö koma og vera með. Chou En-
lai forsætisráðherra fór meö
Norodon Shianouk fursta, fyrrum
þjóðhöfðingja Kambódfu til Sun
Yat-Sen garösins I Peking og
horfðu þeir þar á þjóödansa, úr-
drætti úr byltingaróperum og
söngva, sem furstinn hafði sjálfur
samið.
Maður númer þrjú I Kfna,
Wang Hung-wen var einnig við-
staddur. Hann sat á milli furstans
og konu hans. Viða um borgina
söfnuðust tugþúsundir fólks sam-
an til að horfa á atriði i hátiða-
höldunum, sem voru með svipuðu
sniði og i fyrra, þegar ekki var
heldur farið i fjöldagöngu
gegnum Hlið hins himneska
friðar. Ganga þessi var fastur
liður i dagskrá þjóðhátiðardags-
ins allt fram til 1971, en þá var
henni aflýst.
Ekki bar nú nema litið á áróðri
gegn Bandarikjunum og heims-
veldissinnum, en hann var mjög
áberandi i hátiðardagskránni á
siðasta áratug. 1 þetta sinn var
aöalatriðið vinátta og tengsl við
Kfnverja, sem búa erlendis og á
Formósu.
Stokkhólmur og
Osló dýrastar
NTB—Genf. — Stokkhólmur og
Osló eru dýrustu borgir Evrópu,
samkvæmt könnun, sem tfmaritið
Business International hefur
gert. Næstar I röðinni eru borg-
irnar Parls, Dusseldorf, Frank-
furt, Zurieh, Genf, Kaupmanna-
höfn og Vín. Madrid og Barcelona
á Spáni eru hins vegar- ódýrastar
og siðan koma Lissabon, Milano,
Róm, Londou, Aþena og Amster-
dam.
Eftir allt, sem mætt hefur á
dollarnum, geta Bandarikjamenn
huggað sig við það, að New York
er ekki dýrari borg en Brussel,
sem er ( tiunda sæti i Évrópu og
að japönsku borgirnar Tókió,
Osaka og Kobe eru enn dýrari.
Rannsókn þessi er byggð á
verði venjulegrar matvöru,
áfengra drykkja, búsáhalda,
hreinlætisvöru, tóbaks, fata og
annarra nauðsynja, læknishjálp-
ar, skemmtana og ferðalaga.
Þess má geta, að samkvæmt
könnun blaðsins Financial Times
fyrir fáum árum, var Osló talin
næstódýrasta borg Evrópu.
Hart barizt um helgina í S-Víetnam:
Hræðsla
sókn að
NTB—Saigon — Van Thieu, for-
seti Suður-Vietnams varaði I gær
viö hættunni á nýrri stórsókn
Þjóðfrelsishreyfingarinnar. Hann
sagði, að árásin á Le Minh fyrir
hálfum mánuði hefði verið fyrsta
skrefið I undirbúningi hennar.
Forsetinn hélt þvi fram, að
sóknin myndi ná hámarki á næsta
ári. Hann sagði, að loka þyrfti
svæöum, sem þjóðfrelsisfylkingin
réöi, þannig að ekki bærust
þangað þær birgðir, sem hún
þyrfti til undirbúnings sóknarinn-
ar.
Yfirstjórn hers S-Vietnam
við stór-
norðan
hefur tilkynnt, að 183 hermenn
þjóðfrelsishreyfingarinnar hafi
fallið i sólarhrings löngum bar-
daga um 60 km NV af Saigon um
h.elgina. Stjórnarherinn hefði hins
vegar aðeins misst niu menn
fallna og 100 særða eða týnda.
Sagt var að þetta væri mesta
mannfall i einum bardaga siðan
vopnahléð gekk i gildi. Bardaginn
var háður i útjaðri gúmmiplant-
ekru.
í gær var hart barizt i Quang
Nam-héraöi, þar sem þjóöfrelsis-
herinn reyndi að stöðva umferð á
þjóövegi 1.
Hællinn varð eftir ó innbrotsstað
Klp-Reykjavik. A sunnudags-
morguninn var lögreglunni til-
kynnt um innbrot á Laugavegi 87.
Þar hafði verið stolið sjónvarps-
tæki og myndavélum ásamt
einhverju fleiru.
Lögreglan fór þegar á stúfana,
og fann tvo pilta skömmu síðar
meö þýfið i fórum sinum. Voru
þeir á gangi á Laugaveginum og
tóku komu lögreglunnar ósköp
rólega.
Annar piltanna viðurkenndi
strax að hafa átt þátt i innbrotinu,
en hinn neitaði. Sá var klæddur
skóm með háum hælum, eða
réttara sagt i einn slikan skó, þvi
hælinn undir annan skóinn
vantaði.
Þennan hæl fundu lögreglu-
þjónarnir á innbrotsstaðnum og
þýddi þvi ekkert fyrir kauða að
neita þátttökunni I þjófnaðnum
lengur og var hann fluttur með
hinum I gæzlu lögreglunnar.
Höfuðkúpa fannst
rekin á Siglufirði
Klp—Reykjavik. — Fyrir
nokkrum dögum rak höfuðkúpu
á fjöru undir gamalli bryggju á
Siglufirði.
Höfuðkúpa þessi hefur trúlega
legiö lengi i sjó, en hún hefur nú
veriö send suður til Reykjavikur
til rannsóknar, og er nú beðið
eftir skýrslu þaðan.
Eftir að höfuðkúpan fannst
hafa verið gengnar fjörur i ná-
grenni bryggjunnar og leitað að
fleiri beinum, en ekkert annað
hefur fundizt.
Það logaði glatt I geymslubragganum viðHafnarbló þegar slökkviliðið kom á staðinn. (Tlmamynd GE)
Margar filmur eyðilögðust
— er geymslubraggi við Hafnarbíó skemmdist í eldi
Klp—Reykjavik — A laugardags-
kvöldið brann geymslubraggi við
hlið Hafnarblós á Barónsstlg.
Eldurinn kom upp, þegar hlé var
á nlu-sýningu og fengu gestirnir
ekki að fara inn I bióiö aftur eftir
hlé, þar sem hætta var talin á, að
eldurinn læsti sig I sjálft kvik-
myndahúsið.
í bragga þessum voru geymdar
filmur, bæði gamlar og nýjar, þar
af nokkrar sem átti eftir aðsýna.
Eyðilögðust þær allar ásamt
mörgum öðrum filmum, sem
þarna voru inni og margs konar
dóti frá kvikmyndahúsinu.
Ekki er vitað um eldsupptök, en
talið er að um ikveikju hafi verið
að ræða. Börn og unglingar hafa
mikið sótt í þennan skúr að und-
anförnu og er talið að þau hafi
farið ógætilega með eld þarna
fyrr um kvöldið.
Markezinis falið að
mynda gríska stjórn
NTB—Aþenu — Papadoupoulos,
forseti Grikklands, fól I gær
SpyrosMarkezinis aö mynda nýja
stjórn I Grikklandi. Markezinis,
sem er 64 ára, verður þar með
fyrsti forsætisráðherra Grikk-
lands. Samt sem áður mun Papa-
doupoulos ráða ftestu I stjórninni
og hann dró enga dul á það, þegar
hann fól Markezinis verkefnið.
Undirbúningur þingkosninga á
næsta ári mun verða helzta verk-
Nýr skuttogari
til Sauðárkróks
— Skagfirðingar eiga nú þrjá
SUNNUDAGINN 30. september
stækkaði skipastóll Skagfirðinga
um tæp 300 tonn. Skipiö, sem um
ræðir er skuttogarinn Skafti SK 3,
sem keyptur var frá Noregi, en
hann er tæplega eins árs gamall
og var afhentur fyrri eigendum I
desembcr 1972. Tvö útgerðarfélög
stóðu að kaupum skipsins, þ.e.
Nöf h/f á Hofsósi og Útgerðar-
félag Skagfirðinga h/f á Sauðár-
króki. Skipið reynist ágætlega á
heimleiðinni og ganghraði þess
mældist um 13 sjómilur.
Aö sögn Stefáns Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Út-
geröarfélags Skagfirðinga, er
hinn nýi skuttogari 299 lestir,
samkvæmt nýju mælingunum.
Skipið er búið 1500 hestafla
Wichmann aðalvél og tveim
ljósavélum af Caterpillar-gerö.
Flottrollsútbúnaður fylgdi skip-
inu, en það mun fara á botn-
vörpuveiðar og flotvarpan höfð
um borð og notuð, ef tilefni gefur
til. Ennfremur fylgdu með skip-
inu kassar til að isa aflann i, en
lestin er öll útbúin með það fyrir
augum.
Gat Stefán þess, að kassa-
fiskurinn væri afgerandi betri, og
hefðu þeir reynslu af þvi, þvi að
félagið á fyrir tvo skuttogara
Drangey og Hegranes, þar sem
hið fyrrnefnda hefði rúm fyrir
kassa að 2/3 hlutum en hið siðar-
nefnda enga kassa. Talsverður
munur væri á gæðum fisksins,
Fyrirhugað er að sameina út-
geröarfélögin tvö og koma á fót
einum stórum útgerðaraðila við
Skagafjörð sem sæi um hráefnis-
öflun fyrir frystihúsin við Skaga-
fjörð, þ.e. tvö á Sauðárkróki og
eitt á Hofsósi. Framkvæmda-
stjóri fyrir Nöf h/f er Pétur
Jóhannsson.
—hs—
efni hins nýja forsætisráðherra á
næstunni. — Ég er bæði sagn-
fræðingur og stjórnmálamaður
og ég get notið góðs af reynslu
minni á báðum sviðum, segir
Markezinis sjálfur. Hann var einn
af fyrstu grisku stjórnmálamönn-
unum, sem vöruðu við hættunni á
að herinn tæki völdin og sagði að
slikt yrði endir konungdóms i
landinu. Hann hafði rétt fyrir sér.
Markezinis varð ráðherra 1953,
þegar Grikkland var að mestu i
rústum verðbólgan skelfileg og
hjálp Bandarikjanna að lokum
komin. Hann hófst þegar handa,
lækkaði gengið um helming og
gerði ýmsar ráðstafanir til að
auka landbúnaðarframleiðsluna
og lét einnig samþykkja lög til
verndar erlendum hagsmunum i
landinu. En ekki löngu eftir að
stefna hans kom i framkvæmd,
vék hann úr stjórninni vegna per-
sónulegs ósamkomulags við for-
sætisráðherrann, Alexandros
Papagos.
Þegar Papadoupoulos kom til
valda, hætti Markezinis öllum af-
skiptum af stjórnmálum og gaf
sig allan að skriftum og sagn-
fræði. Siðan hefur hann sent frá
sér tvær bækur af fjórum um
stjórnmálasögu Grikklands.
óskast
Sundlaugavegur
Seltjarnarnes
Austurbrún
Laugarásvegur
Tunguvegur
Sogavegur