Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 37
Humarveisla á Argentínu
Fjórréttaður
Humarseðill
Humar risotto með sellerífroðu og humarsósu
Humar og villisveppa tagliatelle með skelfisksósu
Nauta Entrécote með grilluðum
humarhölum “Surf´n turf”
Tveggja laga súkkulaðimús með jógúrtís.
Dökk mús krydduð anis og vanillu, ljós mús
krydduð kanil og kardimommum
Kr. 5.900.-
Valin vín frá Ernest & Julio Gallo og Peter Lehmann
með kvöldverði kr. 2.700-
Borðapantanir í síma 551 9555 eftir
kl. 14:00 e-mail salur@argentina.is
Erum byrjuð að taka frá fyrir
jólahlaðborð. Sjáið leikhústilboð
Argentínu á www.argentina.is
24 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF...
Sýningu Íslenskrar kvenna-
hreyfingar í Þjóðarbókhlöðunni
sem lýkur sunnudaginn 20. sept-
ember.
Myndlistarsýn-
ingu Maríu
Molodykh í sýn-
ingarsal B&L,
Grjóthálsi 1-3.
Stendur út vikuna.
Tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Háskólabíói í
kvöld. Á efnisskránni eru Gríma
eftir Jón Nordal, Fiðlukonsert eft-
ir John Adams og Vorsinfónían
eftir Robert Schumann.
Sýningu Kjartans Guðjóns-
sonar myndlistarmanns á Veggn-
um í Mirale Grensásvegi 8.
Skáldsögur Sjóns Augu þín sáu mig og Með titr-
andi tár hafa komið út á Norðurlöndum á undan-
förnum misserum og fengið lofsamlega dóma.
Fyrr á árinu kom Augu þín sáu mig út hjá
finnska forlaginu. „Bókin er alger sagnapakki,“
skrifar Janna Kantola, gagnrýnandi Helsingin
Sanomat, og bætir við að gróteskur heimur henn-
ar, þar sem ekkert mannlegt er óviðkomandi,
minni að nokkru leyti á kvikmyndir danska leik-
stjórans Lars von Trier. Markku Soikkeli hjá Portti
hrósar Sjón fyrir frumlegan stíl, sem hafi „truflandi
markmið í sjálfum sér – og er afskaplega heill-
andi“. Lofsamlegustu ummælin er þó að finna hjá
Paulu Rönni í Kiiltomato en hún fjallar meðal ann-
ars um þær goðsögulegu víddir sem búi í frásögn-
inni. Síðan segir hún: „Uppáfinningasemi Sjóns og
mannúðin, sem greina má að baki hæðninni, gera
það að nautn að lesa þessa skáldsögu.“
Með titrandi tár kom út hjá sænska forlaginu
AnammaAlfabeta í vor. Andreas Brunner skrifar um
bókina í Sydsvenska Dagbladet og líkir Sjón þar við
húmorista á borð við Kafka og Búlgakov og segir
að Með titrandi tár sé „blessunarlegur hrærigrautur
af goðsögum og ævintýrum, draumsýnum og hvers-
dagslegum fáránleika. Hin magn-
aða spunalist Sjóns víkkar
sjónarsvið lesandans.“
Caroline Alesmark ber
Augu þín sáu mig saman við
Með titrandi tár og telur síð-
ara verkið standa hinu fyrra
fyllilega á sporði, það sé
„snjallt, nær-
göngult og af-
skaplega
skemmtilegt“
og Per Tviksta
hjá VLT klikkir út
með: „Með titrandi
tár“ var fyrir mig
eitt af lestrarævin-
týrum ársins!“
Hefur ekkert fyrir þessu
KL. 19.00
Hinn útvaldi, eftir Gunnar Helgason.
Frumsýning í Loftkastalanum í
kvöld klukkan 19.00. Leikarar:
Valur Freyr Einarsson, Jón Páll
Eyjólfsson, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson og Þórunn Lárusdóttir.
Leila Josefowics leikur
Fiðlukonsert eftir John Ad-
ams, mjög flókið verk, bæði
tæknilega og ryþmiskt.
„Hún er frábær fiðluleikari,“ segir
Guðný Guðmundsdóttir konsert-
meistari um Leilu Josefowicz, sem
er einleikari á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í kvöld, og
bætir við: „Það er svo mikil sam-
keppni í heiminum í dag, svo mik-
ið af ungu fólki sem er frábært að
maður er ekkert uppveðraður þótt
komi nýr og nýr og betri og betri
hljóðfæraleikari – en þessi stúlka
er einstök. Hún hefur gífurlegt
vald á hljóðfærinu og á þessu erf-
iða verki sem er mjög flókið, bæði
tæknilega og ryþmiskt. En það er
eins og hún hafi ekkert fyrir
þessu. Hver nóta er á sínum stað
og allt mjög flott. Hún kemur af-
skaplega látaust, elskulega og eðli-
lega fyrir og það er mjög gaman
að vinna með henni. Það er ekki
alltaf gefið að hljómsveitir undir-
búi sinn þátt verksins áður en ein-
leikarinn mætir á svæðið, en það
höfðum við hins vegar gert og
Leila var mjög ánægð með okkur.“
Sem sagt allt útlit fyrir eftir-
minnilega tónleika í kvöld með
undrabarninu Leilu Josefowicz.
Þegar Leila komst á táningsald-
ur hafði hún leikið fyrir fleiri fyrir-
menni og heimsfrægar stjörnur en
flestir hljóðfæraleikarar komast í
tæri við á heilli ævi, enda verður
undrabarn sem elst upp í Los Ang-
eles gjarnan vinsæll skemmtikraft-
ur í veislum fína og fallega fólks-
ins. En Leila hált ró sinni og þróast
frá barnastjörnu í fullþroska lista-
mann. Í dag er hún á miðjum þrí-
tugsaldri og á góðri leið með að
leggja heiminn að fótum sér í krafti
glæsilegrar spilamennsku og
spennandi verkefnavals.
Leila sló í gegn sextán ára göm-
ul þegar hún hlaut hinn eftirsókn-
arverða Avery Fisher-styrk, kom í
fyrsta sinn fram í Carnegie Hall
og skrifaði undir plötusamning við
Philips Classics. Fyrsti diskurinn
hennar hafði að geyma konserta
Tsjajkovskíjs og Sibeliusar. Ferill-
inn var kominn á fullan skrið.
Vegna anna við tónleikahald hafði
Leila ekki tíma til að vera viðstödd
útskrift sína frá Curtis Institute of
Music.
Undanfarin ár hefur Leila
Josefowicz leikið með flestum
virtustu sinfóníuhljómsveitum
heims og félagar hennar á kamm-
ertónlistarsviðinu eru meðal ann-
arra Martha Argerich, András
Schiff, Mitsuko Uchida, Truls
Mörk og Mischa Maisky.
Tónleikarnir hefjast klukkan
19.30, hljómsveitarstjóri er Rumon
Gamba.
!
menning@frettabladid.is
Eitt af lestrarævintýrum ársins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Guðleg tengsl
Leiksýningin Tenórinn eftir Guð-
mund Ólafsson, sem sýnd var í
Iðnó allt síðasta leikár, kemur nú
aftur á fjalir leikhússins við Tjörn-
ina, en í millitíðinni hefur það
gerst að hann, Tenórinn, var
sæmdur gullmerki Tenórafélags
Kórs Langholtskirkju síðastliðið
vor. Gullmerkið er aðeins veitt ör-
fáum útvöldum og þykir einhver
mesti heiður sem tenórsöngvara
getur hlotnast á lífsleiðinni, eins
og segir í fréttatilkynningu.
Tenórsöngvarinn gerist á einum
og hálfum klukkutíma í búnings-
herbergi ónefnds tónlistarhúss þar
sem söngvarinn, sem hefur dvalið
langdvölum í útlöndum, og undir-
leikari hans eru að búa sig undir
tónleika.
Upphitun þeirra og undirbún-
ingur tekur á sig undarlegustu
króka bæði til fortíðar og framtíð-
ar og kemur ýmislegt í ljós þegar
skyggnst er ofan í sálarkirnu
söngvarans ekki síður en í ferða-
tösku hans.
Í tónlist er víða leitað fanga svo
sem hjá rússneskum karlakór, há-
værum sópransöngkonum og rass-
síðum röppurum. Auk þess í hjarn-
björtum íslenskum tenórsöngvum,
amerískum söngleikjum, ítölskum
slögurum og óperuaríum.
Hlutverk Tenórsins er í höndum
Guðmundar Ólafssonar, undirleik-
ari er Sigursveinn Kr. Magnússon,
Sigrún Edda Björnsdóttir er rödd
eiginkonu og leikstjóri er Oddur
Bjarni Þorkelsson. ■
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON Tenórinn
undirbýr sig fyrir tónleika í búningsher-
bergi ónefnds tónlistarhúss.
Tenórinn snýr aftur í Iðnó
LEILA JOSEFOWICZ Undrabarnið sem hélt ró sinni.
Yolngu-frumbyggjar frá Ástralíu
kynna tónlist sína á tónleikum í
Salnum annað kvöld, föstudaginn
17. september. Tónlistarhúsi
Kópavogs. Yolngu er orð úr stað-
bundinni mállýsku og þýðir
„fólk“. Yolngu-fólkið býr á
Miwati-svæði í Norðaustur-Ástr-
alíu. Innan svæðisins eru sextán
mismunandi Yolngu-ættbálkar og
hefur hver ættbálkur eigið tungu-
mál, eða mállýsku, og guðleg
tengsl.
Yolngu-frumbyggjarnir sýna
hefðbundna opinbera athöfn á
tónleikunum en tónlistin og dans-
inn sem Yolnguarnir flytja eru að
öllum líkindum elstu söng- og
dansathafnir sem til eru í heimin-
um í dag. Þeir leika á Yidaki sem
er heilagt hljóðfæri frumbyggja.
Yidaki hefur andlega og hátíð-
lega merkingu fyrir Yolngu-fólk.
Það þjónar óaðskiljanlegu hlut-
verki sem hrynhljóðfæri með
söng- og dansathöfnum frum-
byggja en ástralskir frumbyggjar
viðhalda meninngu sinni með há-
tíðarsöng og danshátíðum.
Á tónleikunum, sem hefjast
klukkan 20.30, koma einnig fram
íslensku tónlistarmennirnir Hilm-
ar Örn Hilmarsson, Steindór And-
ersen, Diddi fiðla, Kristín Erna
Blöndal, Elfa Ingvadóttir og
Eþols-strengjakvartettinn. ■
YOLNGU-FRUMBYGGJAR Viðhalda menningu sinni með hátíðarsöng og danshátíðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
36-37 (24-25) Menning 15.9.2004 16:31 Page 2