Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 39
MESTA HÆKKUN
HB Grandi 7,46%
Burðarás hf. 3,73%
Landsbanki Íslands hf. 3,54%
ICEX-15 3.571
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta: 329
Velta: 2.356 milljónir
0,31%
MESTA LÆKKUN
AFL Fjárfestingarfélag -10,00%
Marel hf. -2,80%
Og fjarskipti hf. -1,30%
MARKAÐSFRÉTTIR...
Guðmundur Birgisson, sem
kenndur er við Núp, hefur eign-
ast tæp þrettán prósent í Slátur-
félagi Suðurlands. Hann átti fyrir
tæp níu prósent.
Yfir helmingur hluthafa Kredit-
banken í Noregi hefur tekið til-
boði Íslandsbanka um kaup á
bankanum. Tilboðið er liður í yf-
irtöku á norska bankanum, til-
boðstímabilið stendur til 1.
október.
Breytingar urðu á félögum
sem eiga ráðandi hlut í Trygg-
ingamiðstöðinni. Guðbjörg
Matthíasdóttir, sem ræður
þriðjungi hlutafjár, hefur fært
eign sína í eitt eignarhaldsfélag.
Um formbreytingu er að ræða
en hlutföll í hluthafahópi breyt-
ast ekkert.
MÓTBYR Í IÐNAÐI Láni iðnfyrirtækja í núverandi
efnahagsumhverfi er misskipt, að því er fram kem-
ur í samantekt Þorsteins Þorgeirssonar, hagfræð-
ings Samtaka iðnaðarins. Velta í iðnaði í heild jókst
um tæp þrettán prósent á fyrri helmingi ársins.
Heilsuiðnaður hefur vaxið mest á tímabilinu eða
yfir 40 prósent. Aukning er einnig töluverð í jarð-
efna- og byggingariðnaði.
Heildarsamdráttur fram-
leiðslugreina er 3,2 prósent
að meðaltali. Mestur er
samdrátturinn í málm-
steypu og endurvinnslu eða
40 prósent. Samtök iðnað-
arins segja ljóst að erfið
samkeppnisstaða hafi
áhrif á vöxtinn. Slík
þróun geti verið alvar-
leg til lengdar og neyt-
endur eru hvattir til að
versla við íslensk fyrir-
tæki.
MARKAÐIR LÆKKA Í BANDARÍKJUNUM Markaðir
lækkuðu í Bandaríkjunum í gær.
Ástæður lækkunarinnar eru eink-
um taldir vera tveir dökkir vökvar
sem heimsbyggðin treystir mjög á
- olía og kók. Olía hækkaði tölu-
vert í verði í gær og hlutabréf í
Coca Cola lækkuðu eftir að fyrir-
tækið sendi frá sér tilkynningu
um að afkoma félagsins væri verri
en búist var við.
MEST HÆKKUN Á NORÐURLÖNDUM
Í Vegvísi Landsbanka Íslands í gær kemur fram að
hlutabréfavísitölur á Norðurlöndum hafa hækkað
mun hraðar á þessu ári en víða annars staðar. Ís-
land er þar í sérflokki. Úrvalsvísitalan hefur hækkað
um 68 prósent frá áramótum en næstir í röðinni
eru frændur okkar Norðmenn. Þeirra vísitala hefur
hækkað um 24,2 prósent. Hátæknimarkaðurinn
Nasdaq í Bandaríkjunum hefur hins vegar lækkað
um fimm prósent.
26 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
og hvað segir þú?
Hluthafafundur Og Vodafone
Og Vodafone (Og fjarskipti hf.) boðar hér með til
hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 23.
september 2004 kl. 16.00 í Ársal Radisson SAS Hótel
Sögu við Hagatorg í Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Tillaga um heimild til stjórnar til hækkunar hlutafjár
um allt að 150.000.000 kr. vegna yfirtöku eða
samruna við önnur félög.
2. Stjórnarkjör.
3. Önnur mál.
Dagskrá og fundargögn verða hluthöfum til sýnis á
skrifstofu félagsins, Síðumúla 28, Reykjavík, viku fyrir
fundinn. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða
afhentir á fundarstað.
Stjórn Og fjarskipta hf.
ÍSLEN
SKA
A
U
G
LÝSIN
G
A
STO
FA
N
/SIA
.IS O
G
V
25857 09/2004
Sérfræðingar á markaði telja að
hugmyndir um að söluverðmæti
Símans sé á bilinu fimmtíu til sjötíu
milljarðar króna séu umfram það
sem eðlilegt geti talist. Þeir sem
Fréttablaðið hefur rætt við telja að
eðlilegt verð fyrir félagið sé á bil-
inu 35 til 55 milljarðar króna en
telja ólíklegt að skynsamlegt sé að
kaupa félagið á meira en 50.
40 milljarðar nær lagi
Í Morgunkorni greiningardeildar
Íslandsbanka á þriðjudag var einig
fjallað um hugsanleg verðmæti
Símans. Notast var við ýmsar
kennitölur úr rekstrinum og þær
mátaðar saman við verðhugmynd-
irnar sem ríkistjórnin hefur látið í
ljós. Fram kemur að miðað við
rekstrartölur Símans séu verðhug-
myndirnar háar.
Að sögn Atla B. Guðmundsson-
ar er gjarnan miðað við að hlutfall
heildarverðmætis og framlegðar í
fjarskiptafyrirtækjum sé í kring-
um sex. Að þeirri forsendu gefinni
ætti verð Símans að vera um fjöru-
tíu milljarðar króna.
Önnur þekkt leið til að meta
verðmæti er svokallað V/H hlutfall.
Með því er reiknað út hversu leng-
an tíma það tekur fyrir fjárfesti að
fá fjárfestingu í fyrirtækinu endur-
greidda ef allur hagnaður er
greiddur til hluthafa. Viðmiðanir
um þetta hlutfall eru misjafnar eft-
ir eðli rekstrar og framtíðarmögu-
leikum fyrirtækja. Þannig er þetta
hlutfall gjarnan mjög hátt hjá fyr-
irækjum sem álitin eru eiga mikla
vaxtarmöguleika en lág hjá félög-
um sem eru í stöðugum rekstri.
Í lok ágúst bar KB banki verðið
á Símanum saman við nokkur er-
lend fjarskiptafyrirtæki. KB banki
sagði þá að miðað við helstu kenni-
tölur þá ætti verðið á Símanum að
vera í kringum fjörutíu milljarðar .
Möguleikar felast í útrás
Þó að kennitölur renni ekki stoðum
undir verðhugmyndir stjórnvalda
þá þarf að taka með í reikninginn
að Síminn hefur á undanförnum
árum greitt háan arð í ríkissjóð.
Rekstrarafgangur hefur því ekki
farið í uppbyggingu nema að tak-
mörkuðu leyti. Því kann að vera
möguleiki á því að Síminn vaxi
nokkuð hraðar en verið hefur.
Vaxtarmöguleikar Símans gætu
þó verið til staðar ef kaupendur
hafa í hyggju að taka þátt í alþjóð-
legum verkefnum. Síminn á nú
þegar hlut í búlgarska símafyrir-
tækinu BTC ásamt Björgólfi Thor
Björgólfssyni og öðrum fjárfest-
um. Í samtali við Fréttablaðið í
kjölfar fjárfestingarinnar sagði
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, að íslenski markaðurinn
byði ekki upp á mikinn vöxt og því
væri litið út fyrir landsteina að
tækifærum. Það má þó gera ráð
fyrir að farið verði af mikilli var-
kárni í slíka útrás á meðan fyrir-
tækið er enn í eigu ríkisins.
Í höndum manna sem telja að
Síminn geti gegnt hlutverki í al-
þjóðlegri útrás í fjarskiptamálum
er líklegt að fyrirtækið geti verið
mikils virði - meira virði en kenni-
tölur úr rekstrinum segja til um.
Ef slík tækifæri eiga að endur-
speglast í verði á félaginu þarf rík-
isstjórnin hins vegar að halda rétt
á spilunum og tryggja að allir
mögulegir kaupendur standi jafn-
fætis.
Aðferð við einkavæðingu mikilvæg
Greiningardeildirnar hafa ekki
lagt út í að verðmeta Símann þótt
þær munu allar takast á hendur
það verkefni þegar hjólin fara að
snúast og ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um tímasetningar og aðferð
liggur fyrir.
Greiningardeildirnar eru sam-
mála um að ákvarðanir einkavæð-
ingarnefndar og ríkisstjórnar geti
haft mjög mikil áhrif á það verð
sem kaupendur verða tilbúnir til
að greiða. Því minni kvaðir sem
hvíla á fyrirtækinu þeim mun
verðmætari er Síminn. Sérfræð-
ingar telja til að mynda einsýnt að
pólitísk ákvörðun um að Síminn
þurfi að sjá öllum landsmönnum
fyrir aðgangi að ADSL háhraða-
tengingu komi til með að draga úr
verðmæti fyrirtækisins. Þá er lík-
legt að ef stjórnvöld hafa ein-
hverjar séróskir um hverjir skuli
kaupa og sníði söluna að því þá
muni verðmætið lækka töluvert.
Eins er talið fullvíst að fjár-
festar haldi að sér höndum nema
einkavæðingarferlið verði mjög
skýrt afmarkað allt frá upphafi.
Engan langar til þess að verja
tugum milljarða í fjárfestingu
sem síðan lúti duttlungum sjtórn-
málamanna. Sú leið að selja Sím-
ann í litlum skömmtum skapar
óvissu í rekstrinum sem dragi úr
verðmæti félagsins. Aðilar sem
fylgjast grannt með markaðinum
leggja mikla áherslu á að algjört
forræði yfir stefnu félagsins sé
lykilforsenda þess að kjölfestu-
fjárfestar sjái sér hag í að kaupa
félagið á verði sem nálgast það
sem ríkisstjórnin virðist hafa
hugmyndir um. ■
BRYNJÓLFUR BJARNASON
Telur vaxtamöguleika Símans
vera í útlöndum.
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
EINKAVÆÐING SÍMANS
Sérfræðingar í hlutabréfaviðskiptum telja ólíklegt að
Síminn verði seldur á meira en fimmtíu milljarða
króna. Samanburður við erlend fyrirtæki gefur til
kynna að verðið eigi að vera nær fjörutíu. Aðferð við
einkavæðingu hefur mikla þýðingu fyrir verðlagningu.
Háar verðhugmyndir
vidskipti@frettabladid.is
Meiri olíuframleiðsla
Samtök olíuframleiðsluríkja
ákváðu á fundi í gær að auka
framleiðslu um eina milljón tunna
á dag. Helstu olíuríki heims eiga
aðild að samtökunum en á þeim
vettvangi hafa ríkin samráð um
hvernig haga skuli framleiðslu
sinni.
Olíuverð hækkaði á markaði
þrátt fyrir ákvörðun OPEC. Tunn-
an hækkaði um meira en eitt pró-
sent. Ástæður hækkunarinnar eru
taldar vera annars vegar fram-
leiðslutruflanir í Norður-Ameríku
af völdum fellibylsins Ívans.
Hins vegar olli ákvörðun OPEC
vonbrigðum þar sem talið var að
auka þyrfti framleiðsluna mun
meira til þess að verð á heims-
markaði lækkaði. Talsmenn OPEC
segja að eftirspurn í Kína og
Bandaríkjunum valdi háu verði.
Samvæmt nýju samkomulagi
OPEC munu aðildarríkin fram-
leiða 27 milljónir tunna á dag. Yf-
irlýst markmið OPEC er að olíu-
verð sé á bilinu 22 til 28 dalir á
tunnu. Til greina kemur að hækka
verðmarkmið OPEC á næsta fundi
sem verður í desember. ■
PURNOMO YUSGIANTORO Orku- og olíumálaráðherra Indónesíu situr í forsæti í Vín í
gær. Hann situr í forsæti OPEC, samtak olíuframleiðsluríkja.
Peningaskápurinn…
[
H
LU
TA
B
R
É
F
]
38-39 (26-27) Viðskipti 15.9.2004 21:05 Page 2