Fréttablaðið - 16.09.2004, Síða 40
Útrásin eins og
tvær stóriðjur
Sjávarútvegurinn hefur ekki náð
sér á sömu siglingu og útrásarfyr-
irtækin vegna þess að hann býr
við skertan aðgang að fjármagni,“
segir Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Kauphallar Íslands. Þetta
var meðal þess sem kom fram á
fundi Félags viðskipta- og hag-
fræðinga í gær. Erlendum aðilum
er ekki heimilt að fjárfesta beint í
greininni. „Mér finnst það sterkt
sjónarhorn að spyrja sig hvernig
það geta verið hagsmunir sjávar-
útvegsins að búa við aðgangstak-
markanir að fjármagni.“
Þórður fjallaði í erindi sínu um
útrásarfyrirtækin og þátt þeirra í
þróun fjármálamarkaðar. Þau fyr-
irtæki sem Þórður leit til í sam-
henginu eru Actavis, Bakkavör,
Marel, KB banki og Össur.
Þórður segir útrásarfyrirtækin
hafa skipt sköpum fyrir Kauphöll-
ina, „...um leið og Kauphöllin og
fjármálamarkaður hafa skipt
sköpum fyrir vöxt og viðgang
þeirra“. Þórður segir athyglisvert
að viðskipti með þessi félög séu
helmingur veltu Kauphallarinnar.
„Markaðsvirði þeirra hefur aukist
um 400 milljarða frá því í ársbyrj-
un árið 2000 í tæpa 475 milljarða.“
Aukningin nemur sem svarar tvö-
földun virkjunar og álversfram-
kvæmda á Austurlandi.
Fyrirtækin hafa nýtt sér inn-
lendan fjármálamarkað og skrán-
ingu í Kauphöllinni með því að
afla fjár til fjárfestinga. „Þau
hafa kunnað þá list sem fólgin er í
innbyrðis sameiningum og yfir-
tökum á markaði. Reynslan af inn-
lendum hlutabréfamarkaði er
notadrjúgt veganesti við yfirtök-
um á eflendum fyrirtækjum.“
Fyrst og fremst sé um að ræða
framsækin fyrirtæki, stjórnendur
og starfsfólk sem byggt hafa á
þeim grunni sem lagður hefur
verið á undanförnum árum með
opnu og hagfelldu starfsum-
hverfi. Þessi fyrirtæki skjóti fjöl-
breyttari stoðum undir efnahags-
lífið. „Samkvæmt áætlunum
greiningardeilda er gert ráð fyrir
að hagnaður þessara fyrirtækja
verði um 20 milljarðar. Til saman-
burðar var árlegur meðalhagnað-
ur allra fyrirtækja í landinu á ár-
unum 1998 til 2002 milli 30 og 40
milljarðar.“
Þórður segir að vöxt og við-
gang útrásarfyrirtækjanna megi
þakka opnum fjármagnsmarkaði
og auknu viðskiptafrelsi. „Við
þurfum að standa vörð um þennan
grunn. Ég segi það af gefnu til-
efni, því að sumu leyti virðist
frelsið eiga undir högg að sækja, í
þeim skilningi. Því það virðist
vera nokkuð skýr ásetningur
manna að „taka á“ viðskiptalíf-
inu,“ segir Þórður.
haflidi@frettabladid.is
KAUPHÖLL OG ÚTRÁS Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir útrásar-
fyrirtækin hafa skipt sköpum fyrir hlutabréfamarkaðinn um leið og hlutabréfamarkaðurinn
hafi skipt sköpum fyrir þau.
Búist við samdrætti
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BAKKAVÖR Lækkandi gengi Geest er ekki áhyggjuefni stjórnenda Bakkavarar.
Forstjóri Kauphallarinnar telur að varlega beri að fara í að
herða að regluverki viðskiptalífsins eins og tilhneiging sé í
umræðunni. Frjáls fjármagnsmarkaður hafi skapað jarðveg
útrásarinnar sem skili sér af fullum þunga inn í þjóðarbúið.
Breska matvælaframleiðslufyrir-
tækið Geest birtir uppgjör sitt í
dag. Bakkavör á yfir 20 prósent í
félaginu og er það fært sem hlut-
deildarfélag í bókum Bakkavarar.
Búist er við samdrætti milli ára
hjá Geest en greining KB banka tel-
ur að afkoma breska félagsins hafi
lítil áhrif á afkomu Bakkavarar.
Greiningaraðilar breska mark-
aðarins gera að meðaltali ráð fyrir
um fimmtán prósenta samdrætti í
rekstri Geest. Frá því að afkomu-
viðvörun var gefin út um samdrátt
hafa bréf Geest lækkað um átta
prósent.
Sú skoðun er ríkjandi að Bakka-
vör hyggi á yfirtöku Geest. Sé sú
raunin má búast við að eigendur
Bakkavarar gráti þurrum tárum ef
afkoman leiðir til lækkandi gengis
bréfa Geest. ■
FIMMTUDAGUR 16. september 2004
38-39 (26-27) Viðskipti 15.9.2004 21:09 Page 3