Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 6
TÍMINN
Sunnudagur 14. október 1973.
Rætt við Sigtrygg Albertsson, hótelstjóra
Það var augljóst hagræði að
sameina þessi tvö hús i einni
glæsilegri byggingu. Hótelið losn-
aði á þann hátt við að byggja veit-
ingasali, en félagsheimilið aftur á
móti við að innrétta fullkomið,
dýrt eldhús, og auðveldara var að
skipuleggja veitingastarfsemi
félagsheimilisins. Var stofnað
hlutafélag um rekstur hótelsins,
en það hafði raunar lengi staðið
til.
Aðal hluthafar eru Húsavíkur-
bær, Kaupfélag Þingeyinga,
Félagsheimilið og undirritaður,
en auk þess eru fjölmargir aðrir
hluthafar, þvi mikill og almennur
áhugi er i bænum um byggingu
nýja hótelsins.
1 hótelinu verða 34 2ja manna
herbergi, og þar af eru 24 með
sérstöku baði, og tvær setustofur
verða fyrir gesti. Herbergin eru
mjög smekklega búin húsgögnum
og verða búin hljómtækjum, sima
og sjónvarpstækjum.
Við höfum reynt að miða
við beztu tegund svonefndra túr-
ista-hótela, sem hér á landi hafa
verið reist, eins og t.d. HótelEsju
I Reykjavik og Hótel Loftleiðir,
svo eitthvað sé nefnt af þvi, sem
tekið er til fyrirmyndar.
Lyfta er milli hæða i húsinu fyr-
ir gesti.
Þá verður rekin kaffiteria i
hótelinu, þar sem seldur verður
matur, kaffi og aðrar veitingar. í
kjallara hótelsins verður mjög
fullkomið eldhús, sem tekið verð-
ur i notkun innan skamms. Hótel-
ið mun kosta fullbúið með frá-
genginni lóð og innanstokksmun-
um um 60 milljónir króna.Er
þetta þvi mikið átak fyrir ekki
stærra bæjarfélag.
Grein
Jónas
Guðmundsson
Sem menn rekur ef til vill minni
til, þá brann hótelið á Húsavik
fyrir fáeinum árum,en það var til
húsa i litlu timburhúsi, er stóð á
landbakkanum ofan við hafskipa-
bryggjuna. Þangað áttu margir
ferðamenn leið, þótt húsakynni
væru i þrengra lagi.
Svo vel vildi þó til, að húsið var
gestalaust, þegar það brann til
ösku um áramótin 1970-1971. Þar
með var hótellaust um hrið i
höfuðstað Þingeyjarsýslna.
Það var öllum ljóst, að við svo
búiö mátti ekki standa til lang-
frama. Húsavik er 2000 manna
bær, og þangað leggja margir að-
komumenn leiö sina, ýmsir fara
brýnna erinda, en aðrir sér til
gamans, og nú er aftur risið hótel
á Húsavik, og það ekki af verri
endanum.
Timinn kynnir að þessu sinni
Hótel Húsavik, en á siðasta sumri
ræddum við við hótelstjórann,
Sigtrygg Albertsson, en hann rak
einnig gamla Hótel Húsavik um
árabil. Sagðist honum frá á þessa
leið.
— Það er orðið langt siðan sú
hugmynd kom fram, að nauðsyn-
legt væri að reisa nýtt og vandað
hótel hér á Húsavik. Gamla hótel-
ið hafði aðeins sex gistiherbergi,
sem vitanlega var alltof litið.
Þessi frumstæða aðstaða bein-
linis hindraði fólk i að koma til
Húsavikur og eiga þar viðdvöl.
Til bæjarins áttu margir erindi,
þvi hann liggur i þjóðbraut ferða-
manna. Hér er rekin umfangs-
mikil þjónusta við viölent, torfært
hérað á vetrum, sjúkrahús og
ýmis embætti, sem margir eiga
erindi við. Ljóst var, að við svo
búið mátti ekki standa öllu leng-
ur..
Það mun hafa verið árið 1967,
sem byrjað var á grunni nýja
hótelsins, sem er reyndar við-
bygging við glæsilegt félagsheim-
ili Húsavikur, sem reist hefur
verið á staðnum.
Herbergi með baði,
síma, hljómtækjum
og sjónvarpstæki.
Allt úr stóli, gleri og
pallisander í 60 milljón
króna ferðamannahöll
á Húsavík