Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 26

Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 14. október 1973. Samstaða og samhugur Vals- manna utan vallar sem innan Rætt við Þórð Þorkelsson, formann Vals Knattspyrnufélagiö Valur er talandi tákn um fórnfúst starf áhuga- manna, sem byggt hafa upp öflugt íþróttafélag á einhverjum feqursta bletti borgarinnar, viö rætur öskjuhlíðar, með iþróttahúsum og völlum, sem eru, og hafa veriö, vettvangur reykvísks æskufólks svo aö þúsundum skiptir. Enda er oft vitnað til Vals og forustumanna þess félags, þegar rætt er um íþróttafélög, sem skarað hafa fram úr, bæði iþróttalega og félagslega. Og þvi verður ekki á móti mælt, að það er vinalegt um að litast að Hlíðarenda, íþróttasvæði Vals, sérstak- lega þó, þegar allir vellir eru yfirfullir, iðandi af lifi þeirra, sem etja kapp í bróðurlegum leik. Þórður Þorkelsson hefur verið formaður Vals undanfarin 4 ár. Iþróttasiðan átti viðtal við hann i þeim tilgangi að forvitnast um hagi félagsins og um þau verk- efni, sem framundan eru. Vandalaust að fylla annað hús Enda þótt iþróttaaðstaða Vals sé eins og hún gerist hvað bezt i Reykjavik, kom það á daginn i viðtalinu við Þórð, að hún er allsendis ófullnægjandi. „Þó að viö byggðum annað iþróttahús, væri vandalaust að fylla það”, sagði hann, ,,en það er hjá okkur Þóröur Þorkelsson, formaður Vals, viö hinn nýja grasvöll, sem Valsmenn byggja nú á svæði sinu. (TímamyndirGE) eins og öðrum iþróttafélögum borgarinnar, að aðstöðuleysið kemur i veg fyrir, að við getum aukið starfsemi okkar. Byltingar- nar á iþróttalögunum, svo og lof- orð Reykjavikurborgar um aukna aðstoð við byggingu iþróttamann- virkja, eykur bjartsýni manns um það, að hægt verði, áður en langt um liður, að auka húsakost, svo að hægt sé að anna hinni miklu eftirspurn, sem er eftir iþróttatimum”. Nýr grasvöllur í byggingu — Hvaða framkvæmdir standa yfir hjá félaginu núna, Þórður? — Nú er unnið að byggingu nýs grasvallar á svæðinu, en hann verður 90x120 metrar að stærð. Framkvæmdum við hann hefur miðað nokkuð vel áfram og gerum við okkur vonir um, að á miðju næsta ári veröi hann til- búinn undir sáningu eða tyrfingu. Astæðan fyrir þvi, að ráðist var i byggingu þessa vallar er tviþætt. Annars vegar þótti nauðsynlegt að fjölga grasvöllum á svæðinu svo að unnt sé að hvila vellina til skiptis, sem ekki er vanþörf á i okkar óbliðu veðráttu. Og hins vegar þótti rétt að stefna að þvi að fjölga grasvöllum til þess, að yngri aldursflokkarnir geti, eins og meistaraflokkurinn^ æft og keppt á grasi. Alhliða iþróttamiðstöð. — Nú búið þið Valsmenn við ágæta aðstöðu hér að Hliðarenda, a.m.k. ef miðað er við mörg önnur iþróttafélög, en samt er aðstaðan ekki fullnægjandi að þinum dómi? — Aðstaðan verður sjálfsagt aldrei það góð, að hægt sé að tala um að hún sé fullnægjandi. Það sést bezt á þvi, að það virðist sama hve mörg iþróttahús eru byggð i Reykjavik, alltaf skortir æfingatima. Þetta eina iþróttahús okkar fullnægir hvergi þörfum félagsins. Við þurfum að leigja æfingatima annars staðar, og þyrftum á fleiri timum að halda en okkur er unnt að útvega, og þá miða ég einvörðungu við æfinga- tima fyrir keppnisfólk okkar. En okkur dreymir einnig um það, að einhvern tima komi að þvi, að við getum sinnt eldri félagsmönnum meira. Hér þarf að risa aðstaða til iþróttaiðkana fyrir fólk á öllum aldri ásamt gufubaðstofu og setustofu, þar sem hægt er að koma saman, m.ö.o. alhliða iþróttamiðstöð. En sjálfsagt verðum við að biða lengi eftir sliku. — En hafið þið hugsað fyrir byggingu nýs iþróttahúss? — Já, það höfum við raunar gert. Einnig þarf félagið að koma sér upp nýju félagsheimili. Þessar byggingar verða stað- settar á svæðinu vestan megin við núverandi iþróttahús. — Verður svæðið þá ekki full- byggt? Hvað er á döfinni hjá félög- unum? Handknattleiksmenn Vals hafa staðiö sig mjög vel á þessu ári. Stúlkurnar sigruðu aö venju I innanhússmótinu. Og nú tókst Val einnig aö sigra i karlaflokki. Á myndinni sést Ólafur H. Jónsson, einn bezti leikmaður Vals, i landsleik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.