Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 27

Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 27
Sunnudagur 14. október 1973. TÍMINN 27 — t núverandi mynd jú, en okkur hefur komið til hugar, að við getum fengið viðbótarsvæði vestan gamla flugvallaríns. Ekki er búið að ákveða skipulag þess svæðis endanlega af hálfu Reykjavikurborgar, en mér sýnist ekki vanþörf á þvi, að félagið fái viðbótarland. Framtak Valsmanna ekki metið sem skyldi — bú sagðir Þórður, að ykkur Valsmenn vanhagaði um fleiri æfingatima fyrir keppnisfólk ykkar. Hafið þið fengið verri fyrirgreiðslu hvað þetta snertir en önnur iþróttafélög? Margir fagrir verftlaunagripir prýfta hillurnar á skrifstofu Vais, eins og sjá má. — Eins og þú veizt eru öll mannvirki á félagssvæði okkar reist af Valsmönnum sjálfum. Siðar hefur það gerzt, að önnur iþróttafelög hafa fengið aðstöðu i hinum nýju iþróttahúsum, sem byggð hafa verið við skólana. Við okkur hefur verið sagt, að við þyrftum ekki á slikri fyrir- greiðslu að halda, þar sem við hefðum eigið iþróttahús. Að þessu leyti hefur mér fundizt, að fram- tak okkar hafi ekki verið metið sem skyldi, og við látnir gjalda þess. Við þurfum fleiri iþrótta- tima eins og aðrir, og mér finnst ósanngiarnt að útiloka okkur. — Ég geri mér vonir um það. Salur i þvi iþróttahúsi kemur samt ekki til að uppfylla allar okkar kröfur, þar sem hann verður minni en salurinn i Vals- húsinu. Hins vegar getur hann komib að góðum notum fyrir körfuknattleiksdeild okkar. Valsdagurinn velheppnað- ur — Nú hafið þið Valsmenn gerzt frumkvöðlar að ýmsu i félags- málum t.d. efnt til sérstaks Vals- dags. Hvaö hefurðu um það að segja? til að fylgjast með börnum sinum i keppni og notað tækifærið til að spjalla við forustumenn félags- ins. Ég hef aldrei orðið var við annað en foreldrar hafi verið ánægðir með þátttöku barna sinna i iþóttum. — Er um einhverja fundar- starfsemi að ræða hjá Val? — Eins og gefur að skilja fer mestur timi til æfinga og keppni. Hinsvegar höfum við kappkostað að halda uppi félagsstarfsemi yfir vetrarmánuðina fyrir yngri félagana. Þá er efnt til funda með þeim, sýndar kvikmyndir og rætt um ibróttir. Reksturinn erfiður — Nú eru starfræktar 5 iþrótta- deildir i Val, körfuknattleikur, badminton og skiði, auk hinna gamalgrónu greina knattspyrnu og handknattleiki Errekstur i svo stóru félagi ekki erfiður? — Ég neita þvi ekki, aö um- svifin eru orðin mikil, þvi að auk þess þarf að sjá um reksturinn á iþróttahúsinu og félagsheimilinu. Einhvern veginn hefur þetta blessast hingað til, enda er félagið fjölmennt og hefur alltaf notið stuönings eldri félaganna. Stundum hefur hvarflað að okkur i stjórninni, hvort ekki væri timabært að ráð'Sérstakan fram- kvæmdastjóra til að sjá um hinn daglega rekstur. Ennþá hefur ekkert orðið úr þvi, enda óttast sumir, að með ráðningu sliks manns muni öllum verkefnum verða hlaðið á hann og sjálfboða- vinnan hverfa. Af mörgum snjöllum knatt- spyrnumönnum Vals, hefur einna mest kveöift aft Hermanni Gunnarssyni hin síftari ár. — Nokkið að lokum, Þórður? — Ekki annað en það, að al- menn bjartsýni rikir meðal Valsmanna um framtið félagsins. fþróttalega hefur okkur vegnað vel á þessu ári, hlutum Islands- meistaratitil i handknattleik karla og silfurverölaun i knatt- spyrnunni. Aðrar greinar eru á uppleið, nema hvað deyfð hefur verið yfir skíðadeiidinni, en það stendur til bóta. Við setjum markið enn hærra á næsta ári, en umfram allt leggjum við þó áherzlu á samstöðu og samhug Valsmanna utan vallar sem innan. —alf tþróttahús Vals. t forgrunni er brjóstlikan sr. Friftriks Friftrikssonar, hins andlega leiðtoga Vals. Eins og sakir standa höfum við aðeins 15 iþróttatima á leigu annars staðar. — Breytist þetta ekki til batn- aðar, þegar iþróttahús ris við Hliðaskóla? — Það er rétt, að við hófum fyrir 5 árum að halda sérstakan Valsdag. Það átti að vera tiiraun til þess að auka tengsl foreldra við félagið. Þetta hefur heppnazt mjög vel. Foreldrar hafa komið — Og svo gefið þið út myndar- legt félagsblað árlega? — Já. Ég er mjög ánægður með það, hve vel hefur tekizt til um út- gáfu Valsblaðsins. Ungir og gamlir Valsarar hlakka alltaf tií útkomu þess. Margir ágætir félagar hafa borið veg og vanda af útkomu blaðsins, sérstaklega þó Frimann heitinn Helgason. Æfing I iþróttahúsi Vals.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.