Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 36

Tíminn - 14.10.1973, Blaðsíða 36
36 TÍMINN Sunnudagur 14. október 1973. Hinir „óekta” hippar Róma- borgar hafa flúiö heim til pabba og mömmu, lagt frá sér Indiána- skikkjurnar og leðursandalana og sitja nú við simann til að biða eft- ir fréttum af Getty-málinu. Lög- reglan hefur yfirheyrt alla vini hans, en árangurslaust. Paul Getty III, barnabarn oliukóngsins með sama nafni, hvarf, eða var rænt aðfaranótt 10. júli sl. 1 byrjun héldu flestir, að hér væri um að ræða gróflegt gabb, eða að milljónaerfinginn ungi hefði bara stungið af um stundar sakir til að sinna nýrri vinkonu i friði. Lögreglan i Róm tók það alls ekki alvarlega að piltinum hefði verið rænt. Hann svaf sjald- an heima hjá móður sinni, en bjó stundum langtimum saman hjá vinkonum sinum, nýjum og nýj- um,og listamönnum. Þessir vinir hans hafa skýrt frá þvi, að Paul hafi yfirleitt verið peningalaus og hann hafi oft rætt um það i gamni, að setja sitt eigið rán á svið til að bjarga efnahag sinum. Þá varð lögreglan enn tor- tryggnari. En nú er óttazt, að eitthvað hafi komið fyrir Paul. Hvarf hans hef- ur einnig ieitt til þess, að ungu hipparnir, vinir hans, hafa nú leitað skjóls heima hjá foreldrum sinum. Þeir eru farnir að hugsa. Hvað getur hafa komið fyrir vin þeirra „gullbryddaða” hippann, sem var erfingi margra milljóna dollara? Hvaða fólk er þetta svo annars, sem Paul Getty III umgekkst, og sóar lifi sinu i aðgerðarleysi á götum og torgum Rómaborgar? Hvaðan kemur það? Það talar sama mál, klæðir sig i sams kon- ar larfa, sem lita helzt út fyrir að vera einkennisbúningur. Það syngur sömu söngva og lifir eftir sömu einföldu reglunum, en þrátt fyrir það, á það sér ólika fortið og bakgrunn. Strokubörn i svelti Um leið og vora tekur i Róm, koma þessi ungmenni þangað, hvaðanæva að úr heiminum. Ef vill hafa þau aðeins hugsað sér aðtivelja nokkrar vikur, en setj- ast i þess stað að þarna. Þau verða gagntekin af borginni og loftslaginu. Þarna er hægt að sofa undir berum himni, án þess að nokkur skipti sér af og alls staðar er eitthvað fagurt að horfa á. Næstum allt, sem miðar að þvi að halda lífi, er leyft. Hér er ekkert eftir af þvi ung- lingafyrirbrigði, sem til varð i Bandarikjunum og kallaðist „blómabörn”. Hér eru þetta að- einshópar unglinga, sem ráfa um I eirðarleysi. Það er vandalaust að blanda sér I hópinn, en eftir nokkra mán- uði fer að verða erfitt að finna leiðir til að halda „hinu ljúfa lifi” áfram. Fyrstu hipparnir hugsuðu ef til vill alvarlega um að bæta heiminn, en sú hugsun er vist liðin undir lok. — Ég kom til Rómar fyrir tveimur árum. Þá kunni ég ekki orð i itölsku, en það hefur ekki verið mér vandamál, segir Si- mona Hoxxilia, en hún er kennaradóttir frá Sao Paulo i Brasiliu. — Hér eru öll mál töluð og hér gerir enginn greinarmun á lit eða stétt. Ég hafði með mér peninga að heiman og keypti næstum alltaf mat handa þessum nýju vinum minum, þegar þeir voru svangir. Hér hef ég kynnzt mörgum nýjum vinum, stórkost- legra ungu fólki en nokkurs stað- ar annars staðar i heiminum. En Simona hefur þegar tvisvar sinnum verið lögð inn á sjúkrahús vegna fiknilyfjaneyzlu. Það var þýzk vinkona, sem hún veitti húsaskjól, sem kom henni á bragðið. Þeir sem vel þekkja Si- mone, segja, að of seint sé að bjarga henni. Það er þessi hópur, sem Paul Getty III tilheyrir og það eru þessir „óekta” hippar, sem nú bfða eftir fregnum af „gullbrydd- aða” hippanum. Haldinn skemmdafýsn Móðir Pauls, Gail Getty Geff- rejs, 39 ára gömul, segir frá: — Ég þekki allflesta nánustu vini Pauls og lifið, sem þau lifa. Þetta eru allt ágætis krakkar, sem nú öðlast lifsreynslu, sem við eldri fengum aidrei. Það er ástæðan til að ég leyfði Paul að vera með þeim. Það sem nú hefur komið fyrir hefði getað orðið hvar sem var, annaðhvort á heimili okkar hér I Italiu, i Sviss, eða hjá föður hans I London. Það er sem sé með samþykki móðurinnar, að Paul Getty hefur valið hina rótlausu og sjálfstæðu tilveru. Hann var rekinn úr skóla 15 ára fyrir leti og slæma ávana. Einfaldlega slæm fyrirmynd jafnaldra sinna. Siðan hefur Paul Getty III lagt hönd að ýmsu. Nánasti vinur hans er hinn 10 ánam eldri Mario Crisi, fyrrverandi ljósmyndari, sem nú er orðinn listmálari. Hann býr i greni I hippahverfinu Trastevere og hefur þar málaraaðstöðu sina. Af honum hefur Paul lært að mála abstrakt-myndir og til að byrja með vildi hann ekki viðurkenna þær. En vinirnir lögðu að honum og nú undirritar hann myndir sin- ar fullu nafni. Þessar klessumyndir hans færðu honum iðulega máltiðir i svanginn og Hann fékk þá tilfinn- ingu, að geta bjargað sér sjálfur, án peninga fjölskyldunnar. — Á nokkrum mánuðum varð hann einn af okkur, segir Mary Spencer, 18 ára stúdent og leik- kona. — Hann vann sér inn smá- peninga með þvi að mála og búa til skartgripi. Hann kaus að lifa frjálsu lifi og hélt þvi áfram. Allir vissu hverra manna hann var, en það skipti engu máli. — Ég kenndi honum að sitja fyrir, segir Carlo Scimone. — Honum gekk vel að læra og vildi ekki vera öðruvisi en við hin. Hann var alltaf i leit að nýjum ævintýrum og nýrri reynslu. Hann spreytti sig á „under- ground”-kvikmynd, skrifaði handritið og var aðstoðarleik- stjóri. Allt þetta gerði hann til að sanna sjálfum sér, að hann þyrfti ekki á hinu fræga nafni sinu að halda til að koma sér áfram. Hann var á hraðferð allan heila daginn. Scimone heldur áfram : — Paul var aldrei meira en tiu minútur á sama stað. Hann kom heim til min á öllum timum sólarhrings- ins til að bera undir mig hug- myndir sinar. Hann borðaði, þeg- ar tækifæri var til. Stundum fór hann og heimsótti móður sina og systur. Annars var hann um- kringdur tilfallandi vinum og kunningjum og hann var ákaflega vinsæll meðal ungu stúlknanna. En þegar um var að ræða nafn hans og mannorð, var eins og hann væri haldinn skemmdar- fýsn. í skugga afans Að baki Pauls stendur afi hans eins og skuggi, Paul Getty I., auð- ugasti maður heims. Frá Sutton Place, gömlum herragarði við London, kippir gamli maðurinn enn I þræðina og segir fjölskyld- unni, hvernig hún eigi að sitja og standa. Eftirlætissonur hans, George, sem var meðeigandi i hinum geysilegu auðæfum, lézt af áfengiseitrun i Los Angeles fyrir nokkrum mánuðum. Lögreglan hefur enn ekki komizt að þvi, hvað raunverulega gerðist. Getty yngri, faðir Pauls III, beið i 35 ár, áður en hann gerði uppreisn gegn valdi föður sins á sinn hátt. Með Ein af siðustu myndunum, sem teknar voru af hinum 17 ára milljónaerfingja, áður en hann hvarf. Statistahlutverk og „gras” Marco R. hefur verið i Róm i sex mánuði. Hann er frá itölsku þorpi og strauk einfaldlega að heiman. — Ég er ekki byrjaður að „reykja” ennþá og kannski byrja ég ekkert á þvi, segir hann. — En ég fer ekki heim aftur. Ég var lærlingur hjá slátrara og þar sá ég aldrei neitt nema sama fólkið og þetta var eilift tilbreytingar- leysi. Hér er þetta allt öðruvisi. Á kvöldin förum við út og syngjum og spilum á torgunum. Vinir min- ir eru allra þjóða og hafa yfirleitt meiri menntun en ég, en það skiptir engan nokkru. Marco átti ekki grænan eyri, þegar hann kom til Rómar. Nú hefur hann til umráða ibúð, sem hann lánar nánum vinum sinum fúslega. Roskinn kaupmaður með vissar tilhneigingar greiðir húsa- leiguna. Þannig lifa margir hipp- ar I Rómaborg, af þvi sem þeim býðst frá degi til dags. Alex er Hollendingur. Aðeins lögreglan veit hið fulla nafn hans. Hann lifir á þvi að selja kunn- ingjunum marijuana og er orðinn eins konar '„yfirmaður” meðal hippanna. Hann á alltaf „gras”. Það kemur frá vinum hans i Amsterdam. Hluti þessara ungmenna aflar sér fjár fyrir hinu daglega spag- hetti með þvi að bregða sér til kvikmyndabæjarins Cinecitta og taka að sér statistahlutverk i ein- hverri þeirra mörgu mynda, sem þar eru framleiddar eins og á færibandi. — Ég hef verið I kvikmyndun- um I þrjá mánuði stanzlaust, seg- ir Maria, stúlka frá Sikiley, sem strauk að hoiman. — Þaðer erfitt, en veitir vissa ánægju og er allvel borgað. Nú er ég nýhætt, en hér i Róm hverfa peningarnir, áöur en maður veit af. En ég á marga góða vini, sem hjálpa mér. Þeir, sem þekkja Mariu, telja, að hún eigi aðeins einn góðan vin i einu, sinn á hverjum árstima. Tvo á veturna, þegar finu frúrnar fara upp i fjöll á skiði og einn á sumrin, þegar baðstrandalifið blómstrar. Hippabörn ,,fina fólksins” Hipparnir I Róm kalla hippa- börn fina fólksins „aðskotadýr” og eru ekkert sérlega hrifnir aí þeim. Meðal aðskotadýranna eru stúlkur og piltar úr finustu hverf- um borgarinnar og þau eiga for- eldra, sem finnst afkvæmin bara hafa gott af að afla sér alls kyns reynslu. Ef til vill leigja þessi finu börn sér kvistherbergi i hippa- hverfunum, en fara siðan heim og sofa I fina rúminu sinu. Þau flétta hálsbönd og tala máli hinna fá- tæku, en fá peninga frá pabba á kvöldin, til að skreppa á rándýra næturklúbba.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.